Morgunblaðið - 12.05.2016, Side 35

Morgunblaðið - 12.05.2016, Side 35
FRÉTTIR 35Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 2016 HLEDSLA.IS NÝJUNG! KOLVETNASKERT OG LAKTÓSAFRÍ HLEðSLA MEð SÚKKULAðIBRAGðI. FÆST NÚ Í 330 ML FERNUM. FRÁBÆR Á MILLI MÁLA OG EFTIR ÆFINGAR. ÍSLE N SK A/SIA.IS M SA 79077 03/15 hvernig það væri að vera raddlaus, hvað þrýstingurinn hefði verið of- boðslegur og hvernig hann nýtti allan lífskraftinn sem hann átti til að kalla á lögreglumanninn: „Hey, þú þarna. Opnaðu hliðið. Sonur minn er að deyja. Gerðu það, hjálpaðu okkur.“ Það náðist á myndband BBC þeg- ar lögreglumaðurinn horfði á hann, beið, snéri sér við og labbaði í burtu. Skömmu síðar leið yfir drenginn og hann lést. Það var þarna sem ég hugsaði hver væru næstu skref og þessar 20 ein- ingar væru ekki þess virði. Það var ekkert búið að gerast í öll þessi ár og hann gekk með þetta sár í öll þessi ár. Hann lést áður en niðurstaða kom því miður,“ segir Anton og tekur sér hlé. „Mig langaði ekki að halda áfram. Ég fékk nóg en eftir smá umhugsun ákvað ég að klára þetta.“ Símtal um miðja nótt Ritgerðarsmíðin gekk vel og hann var vel á veg kominn þegar síminn hringdi hjá honum um miðja nótt. Þá voru tvær vikur í skil. „Ég svaraði og á hinum enda línunnar var maðurinn sem ég hafði hitt á Íslandi 2008. Hann spurði mig hvort ég væri að nota þessa og hina heimild, hvort ég hefði talað við þennan og hinn og þegar ég svaraði því játandi bað hann mig um að eyða því öllu. Það væri komið lögbann á þetta efni og þó að þetta hefði fallið utan breskrar lög- sögu bað hann mig að eyða þessu. Þetta var tveimur vikum áður en ég átti að skila ritgerðinni og ég var bugaður. Var búinn að eyða einu og hálfu ári og átti að taka út hálfa rit- gerð rétt fyrir skil. Ég hugsaði með mér að segja þeim að ég væri búinn að skila henni og það væri ekki hægt að draga hana til baka. Svo kom hin hliðin að ég var ekki öskrandi spenntur fyrir að vera sá sem stofn- aði þessu öllu í hættu. Sú tilhugsun hræddi mig meira. Þannig að ég eyddi öllum nöfnum, tók 90% af bein- um tilvitnum og tók út kaflann um eftirlifendur.“ Skrifaði með krepptan hnefa Þrátt fyrir ófrávíkjanlegan sann- leik sem loks hefur verið staðfestur af dómstólum að lögreglan sé sú sem beri ábyrgðina hafa 74 lögreglumenn neitað samstarfi. „Stundum var erfitt að vera hlutlaus. Stundum var maður sár og ég var oft að skrifa eitthvað á tölvuna með krepptan hnefann. Ég eyddi mörgu því móðir mín las próf- örk og benti mér á þar sem ég var búinn að gleyma hlutleysinu. Hver sem er getur lesið ritgerðina mína núna og ég neita að trúa því að nokk- ur geti lesið það sama og ég því svona er þetta, svona gerðist þetta og þetta er ófrávíkjanlegur sannleikur sem dómstólar hafa loksins tekið undir.“ 16:30 Síðasta fórnarlamb slyssins flutt af vellinum. 15:17 Duckenfeld upplýsir lögreglumenn um að það hafi orðið mannfall og að aðhlaup stuðningsmanna sem hafi brotið sér leið inn á völlinn hafi valdið því. 15:10Walter Jackson, ábyrgðar­ maður viðbragðsáætlana staðfestir skipun um að sækja vírklippur til að klippa girðingarnar sem halda fólki innilokuðu. 15:40 Útvarpsstöðin BBC Two sendir út: „Óstaðfestar fréttir um að hlið við Liverpool­enda vallarins hafi verið brotið niður og valdið slysinu.“ 15:35-15:36 Fleiri sjúkrabílar koma að vellinum (nú frá Edwards­sjúkrahúsinu). 15:35 Addis, yfirmaður rannsóknarlögreglunnar, kemst í símasamband við stjórnherbergið. 15:30 Duckenfield, Jackson og Graham Kelly, fulltrúi Enska knattspyrnusambandsins, funda með dómurum og fulltrúum liðanna. 15:29 Óskað er eftir læknum og hjúkrunarfræðingum úr hópi áhorfenda. 15:22 Slökkvilið kemur, og fær þau skilaboð frá lögreglu að krafta þess sé ekki óskað. 15:20 Annar sjúkra­ bíllinn af þremur kemur. 15:13 Fyrsti sjúkra­ bíllinn kemur á vett­ vang.Trevor Bichard lögregluþjónn kallar eftir vírklippum og aðstoð slökkviliðsins. 17:15 Duckenfield og Jackson snúa aftur til höfuðstöðva lögreglunnar. 17:45 PeterWright, yfirmaður lögreglunnar fundar með Duckenfield og Jackson. Þar var ákveðið hvernig safna ætti saman vitnisburði lögreglumanna á vellinum og hvernig snúa ætti almenningsáliti frá samúð yfir í áfellisdóma. 17:45 Einhvern tímann á bilinu 16:30 til 09:00 næsta morgun, hverfa upptökur úr öryggismyndavélum frá stjórnherberginu. Ekki hefur enn tekist að upplýsa, hvorki um stuldinn né hver stóð að honum. AFP Sorg Við dómsuppkvaðningu brustu margir Liverpool-búar í grát.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.