Morgunblaðið - 12.05.2016, Síða 48
48 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 2016
Loftkæling
Funahöfða 7, 110 Reykjavík, s. 577 6666
og varmadælur
Geimvísindastofnun Bandaríkj-
anna, NASA, skýrði frá því í
fyrradag að hún hefði staðfest
1.284 áður óþekktar fjar-
reikistjörnur, þ.e. plánetur fyrir
utan sólkerfi okkar, með hjálp
Kepler-geimsjónaukans. Áður
hafði sjónaukinn fundið 984 fjar-
reikistjörnur.
„Þetta gefur okkur von um að
einhvers staðar þarna úti sé að
finna aðra Jörð sem gengur um
stjörnu á borð við sólina okkar,“
hefur fréttaveitan AFP eftir Ellen
Stofan, geimvísindamanni í höfuð-
stöðvum NASA í Washington.
Kepler-sjónaukinn hefur verið
notaður frá árinu 2009 til að skoða
um 150.000 stjörnur í leit að vís-
bendingum um hvort þær séu
reikistjörnur. Sjónaukinn fylgist
með hárfínum breytingum á birtu
stjarnanna sem rekja má til reiki-
stjarna sem ganga fyrir þær, líkt
og þegar Merkúr gekk fyrir sólina
okkar á mánudaginn var.
Gætu verið lífvænlegar
NASA sagði að af 1.284 nýstað-
festum fjarreikistjörnum gætu
nær 550 þeirra verið úr bergi eins
og Jörðin. „Níu af þessum stjörn-
um eru á lífbelti sólar sinnar, það
er að segja í hæfilegri fjarlægð frá
henni til að vatn gæti verið í fljót-
andi formi á yfirborði þeirra,“ hef-
ur AFP eftir geimvísindamönnum
NASA.
Alls er nú vitað um 21 fjarreiki-
stjörnu sem er á lífbelti sólar
sinnar og gæti verið lífvænleg, að
sögn geimvísindastofnunarinnar.
1.284 reikistjörn-
ur staðfestar
Níu þeirra á lífbelti sólar sinnar
Áður óþekktar plánetur fundnar
Heimild : NASA
1.284
nýstaðfestar
reikistjörnur
Staðfestar
nýlega
Mjög
líklega
reiki-
stjörnur
Ekki
líklegar
Á stærð
við Mars
Á stærð
við
Jörðina
Risa-
jarðir
Stærri
en
Júpíter
Minni en
Neptúnus
Á stærð
við
Neptúnus
Minni en
Jupíter
Á stærð
við
Júpíter
Höfðu áður
verið
staðfestar
1.327
707
984
Þar af eru...
Stærð reikistjarnanna
Stærð reikistjarna í
sólkerfi okkar
1.000
Merkúr Mars Venus Jörðin Neptúnus
Úranus
Satúrnus
Júpiter
800
600
400
200
Nýstaðfestar plánetur
Plánetur sem höfðu áður
verið staðfestar
Kepler, geimsjónauki NASA, hefur staðfest 1.284 áður óþekktar reikistjörnur fyrir utan sólkerfi okkar
Skv. skrá NASA frá júlí í fyrra
hefur Kepler fundið alls
4.302 hugsanlegar reikistjörnur
Upptaka náðist af því þegar Elísabet
II Englandsdrottning lýsti fulltrúum
kínverskrar sendinefndar sem
„mjög dónalegum“ en þeir voru í
fylgdarliði Xi Jinping, forseta Kína,
og sótti hópurinn Bretland heim
seint á seinasta ári.
Drottningin lét ummæli sín falla í
samtali við Lucy D’Orsi lögreglufor-
ingja þar sem þær voru staddar í
fjölmennri garðveislu í Buckingham-
höll. Hafði D’Orsi skömmu áður ver-
ið kynnt fyrir drottningu þar sem
henni var sagt að hún hefði verið sá
lögreglumaður sem fór með yfir-
stjórn öryggismála er opinber heim-
sókn Kínaforseta fór fram í október í
fyrra.
Á upptökunni má því næst heyra
drottninguna bregðast við þessu
með orðunum: „Oh, óheppni.“ Tók
D’Orsi þá til máls og sagði: „Ég veit
ekki hvort þú vissir af því, en þetta
reyndist mikil þolraun fyrir mig.“
Drottningin svaraði þessu játandi og
hélt lögregluforinginn þá áfram og
sagði: „Það var þegar þeir gengu út
úr Lancaster-setrinu og sögðu mér
að heimsóknin væri búin, sem mér
leið...“ Sagði þá drottningin: „Þeir
voru mjög dónalegir við sendiherr-
ann.“ D’Orsi lög-
regluforingi tók
undir með Elísa-
betu drottningu
og sagði: „Þeir
voru það, þetta
var mjög dóna-
legt og ódiplóma-
tískt að mínu
viti.“ Lýsti
drottningin þá
þessari uppá-
komu sem „stórfurðulegri“.
Kannast ekki við lýsinguna
Kínverskir fjölmiðlar fjölluðu mik-
ið um heimsókn Kínaforseta og
fylgdarliðs hans til Bretlands á sín-
um tíma. Var heimsóknin sögð hafa
styrkt mjög samskipti ríkjanna.
„Opinber heimsókn Xi Jinping
forseta til Bretlands í fyrra var mjög
árangursrík. Báðir aðilar eru sam-
mála um það,“ hefur fréttaveita AFP
eftir Lu Kang, talsmanni utanríkis-
ráðuneytisins í Kína.
Spurður hvort Kínverjar hefðu
hótað því að hætta við heimsóknina,
líkt og D’Orsi minntist á í samtali
sínu við Elísabetu Englandsdrottn-
ingu, svaraði Kang: „Ég hef ekki
vitneskju um að sú atburðarás hafi
átt sér stað.“
Fram kemur á vef breska ríkisút-
varpsins (BBC) að þegar greint var
frá samtali drottningar og D’Orsi á
BBC World hafi umfjöllunin verið
ritskoðuð í Kína og datt stöðin um
stund út þar í landi.
Talsmaður Buckingham-hallar
segist ekki ætla að tjá sig um málið
við fjölmiðla. „Opinber heimsókn
Kína var hins vegar afar vel heppnuð
og unnu allir hörðum höndum til að
tryggja að svo yrði.“
„Stórkostlega spillt“ ríki
David Cameron, forsætisráðherra
Bretlands, lýsti Nígeríu og Afganist-
an sem „stórkostlega spilltum“ ríkj-
um í samtali sínu við Elísabetu Eng-
landsdrottningu í Buckingham-höll í
vikunni. Voru þau að ræða alþjóð-
lega ráðstefnu gegn spillingu sem
hefst í Lundúnum í dag.
„Það er von á leiðtogum frá stór-
kostlega spilltum ríkjum hingað til
Bretlands, Nígeríu og Afganistan,
sem eru líklega tvö spilltustu ríki
heims,“ sagði Cameron, en það voru
fréttamenn BBC sem náðu ummæl-
unum á upptöku.
AFP
Konungleg veisla Elísabet II Englandsdrottning, sem hér sést klædd bleiku, hélt garðveislu í Buckingham-höll þar
sem hún var m.a. kynnt fyrir Lucy D’Orsi lögregluforingja. Samtal þeirra náðist á upptöku og hefur vakið athygli.
Kínverska sendinefndin
sögð „mjög dónaleg“
Samtal Englandsdrottningar og lögregluforingja tekið upp
David
Cameron
Að minnsta kosti 94 biðu bana og
150 særðust í þremur sprengjuárás-
um í Bagdad í gær. Árásirnar eru
þær mannskæðustu sem hafa verið
gerðar á einum degi í borginni í ár.
Mannfallið var mest í árás sem gerð
var í Sadr-borg, hverfi sjíta, þar
sem a.m.k. 64 létu lífið.
Íslömsku samtökin Ríki íslams
lýstu árásunum á hendur sér. Sjítar
eru í meirihluta í Írak og árásir
Ríkis íslams hafa oft beinst gegn
þeim vegna þess að samtökin líta á
þá sem trúvillinga. Þau náðu um
40% Íraks á sitt vald árið 2014 en
talsmaður ríkisstjórnarinnar í Bag-
dad sagði í gær að aðgerðir hersins
hefðu borið þann árangur að aðeins
14% landsins væru nú á valdi sam-
takanna. Embættismenn Samein-
uðu þjóðanna hafa varað við því að
stjórnarkreppa sem hefur verið í
Írak geti grafið undan baráttunni
gegn íslamistunum.
ÍRAK
Nær 100 létu lífið í árásum í Bagdad
Blóðsúthellingar Írakar skoða
skemmdir eftir sprengjuárás í Bagdad.
Forseti þingsins á Nýja-Sjálandi sá
ekki ástæðu til að hygla forsætis-
ráðherra landsins í heitri umræðu
um Panamaskjölin og ákvað að vísa
honum af þingfundi í gær.
Þingforsetinn David Carter sagði
að hann hefði átt einskis annars úr-
kosti en að vísa John Key forsætis-
ráðherra á dyr vegna þess að hann
hefði hvað eftir annað hunsað til-
mæli um að sýna stillingu. „Hann
nýtur engra forréttinda hér á
þinginu og þarf að lúta sömu
reglum og allir aðrir,“ sagði Carter.
Key hafði þrisvar sinnum verið
vikið af þing-
fundi áður en
hann varð for-
sætisráðherra.
Hann er ekki
fyrsti forsætis-
ráðherrann á
Nýja-Sjálandi
sem er rekinn af
þingfundi. Helen
Clark var vísað
úr þingsalnum
árið 2005 og David Lange tvisvar á
árunum 1986-87 þegar þau gegndu
embættinu.
NÝJA-SJÁLAND
Forsætisráðherra vísað af þingfundi í
heitri umræðu um Panamaskjölin
John Key for-
sætisráðherra.