Morgunblaðið - 12.05.2016, Qupperneq 52
52 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 2016
Fíknsjúkdómur er
langvinnur heilasjúk-
dómur sem orsakast af
erfða- og umhverfis-
þáttum. Hann hefst
oftast snemma á æv-
inni, oft á unglings-
aldri. Margt hefur
áhrif á tilurð hans,
bæði líffræðilegir
þættir og uppeldis-
legir, aðrir sjúkdómar
og heilaskaðar, aldur og kyn.
Hann greinist með sögu; einkenni
um að neysla vímugefandi efna,
(áfengis, lyfja, vímuefna löglegra og
ólöglegra) er meiri en ætlað er, leng-
ur en ætlað er, endurtekin þrátt fyr-
ir ásetning um annað og heldur
áfram þrátt fyrir afleiðingar. Til-
raunir til að minnka, stjórna eða
hætta neyslu þessara efna ganga
ekki eins og óskað var.
Sjúkdómurinn er algengur og
herjar á venjulegt fólk, þverskurð
samfélagsins. Það má
ná bata frá þessum
sjúkdómi á mörgum
stigum og á mismun-
andi sviðum, eins og
betri líkamlegri heilsu
og/eða geðheilsu, minni
afleiðingum, bættri fé-
lagslegri stöðu eins og
atvinnu, fjölskyldulífi
o.s.frv. Batinn getur
komið að hluta, í áföng-
um og til lengri tíma,
og bakslag getur orðið.
Sjálfstæður sjúkdómur
Þessi heilasjúkdómur er sjálf-
stæður sjúkdómur, svo honum þarf
að sinna sérstaklega. Margir hafa
aðra sjúkdóma samhliða og þurfa
því að sinna fleiri sjúkdómum á
sama tíma. Þeir geta verið bæði lík-
amlegir sjúkdómar og geðsjúk-
dómar, það reynir meira á ein-
staklinginn og hann þarfnast jafnan
aukinnar meðferðar og fleiri úr-
ræða.
Mörgum dugir lítið inngrip við
fíknsjúkdómnum, aðrir þurfa lengri
sérhæfða meðferð og endurtekn-
ingar.
Afleiðingar fíknsjúkdóms eru
margbreytilegar, líkamlegar, geð-
rænar og félagslegar og valda við-
komandi og hans aðstandendum
vonbrigðum, sorg og harmi.
Eitt af því erfiðara við að eiga er
hversu dulinn og falinn vandinn
sjálfur oft er. Gjarnan er einblínt á
afleiðingarnar og orkan sett í að laga
þær. Einnig er algengt að skömm og
fordómar komi í veg fyrir að ræða
þennan vanda, fíknsjúkdóminn, sér-
staklega, en einblínt á samhliða
vandamál s.s. verki, svefntruflanir
og kvíðaeinkenni. Jafnvel er reynt
að finna sökudólg fyrir þessari
„hegðun“ sem ofneyslan er, í stað
þess að greina fíknsjúkdóm sem
samhliða sérstakt vandamál sem
þarf einnig meðferðar við. Þetta get-
ur orðið flókið og valdið talsverðum
erfiðleikum fyrir hvern þann sem
reynir að takast á við slíkt.
Í dag er algengt að þeir sem koma
á Vog og hafa fíknsjúkdóm, noti
mörg mismunandi vímugefandi efni.
Áfengi er algengasta og mest notaða
vímuefnið. Örvandi vímuefni (am-
fetamín, kókaín, mdma) og kanna-
bisefni eru vandi hjá um helmingi
þeirra sem þangað leita. Ávanabind-
andi lyf eins og róandi-, kvíðastill-
andi- og svefnlyf, ásamt sterkum
verkjalyfjum og örvandi lyfjum
(methylphenidate), eru einnig stór
hluti af vímuefnaneyslu þeirra sem á
Vog koma. Þótt fíknin sé af sama
toga eru afleiðingar og eftirköst
neyslunnar ólíkar. Það getur því
verið flókið fyrir einstakling að sjá
skóginn fyrir trjám og oft eru erf-
iðleikar sem að steðja flóknir og
koma í veg fyrir að hefjast handa og
takast á við vandann.
Góð byrjun að huga að
fíknsjúkdómnum
Ef vandinn er flókinn, félagslega,
andlega, líkamlega, og hluti vandans
er ofneysla vímugefandi efna eða
lyfja, þá er áreiðanlega góð byrjun
að huga að fíknsjúkdómnum. Þegar
fíkn er annars vegar, er erfiðara að
eiga við verki (eða fara af verkjalyfj-
um), eiga við svefntruflanir og kvíða
(eða minnka töku róandi lyfja og
svefnlyfja), koma sér út úr braski
(eða hætta að reykja kannabis),
halda sér í vinnu (eða hætta helg-
ardrykkju eða örvandiefnatúrum),
o.s.frv.
Fyrir þá sem kannast við að
neysla vímugefandi efna sé hluti af
þeirra vanda, þá getur verið besta
byrjunin á flóknum vanda að taka á
fíkninni. Þannig gefst svigrúm og
næði til að sinna því sem á eftir kem-
ur, samhliða eða í framhaldi. Þetta
er oft þolinmæðisvinna en vel þess
virði.
Þannig má byrja á byrjuninni.
Að byrja á byrjuninni
Eftir Valgerði
Rúnarsdóttur » Sjúkdómurinn er al-
gengur og herjar á
venjulegt fólk, þver-
skurð samfélagsins.
Valgerður Rúnarsdóttir
Höfundur er yfirlæknir
á Sjúkrahúsinu Vogi.
Tilgangur laganna
var að koma í veg fyr-
ir að óeðlilega margir
fjölmiðlar færu í eign-
arhald fárra – eða
eins – eigenda sem
gætu samnýtt þá alla
til að mynda skoðun
þjóðarinnar með
áróðri og „fréttum“ úr
mörgum áttum, sjón-
varpi, útvarpi, dag-
blöðum og samfélaginu. Allt til að
hygla orðuprýddum útrás-
armönnum – vinum forseta Íslands
í þessu tilfelli.
Þá fór undirritaður – óþekktur –
fram hið fyrra sinni og fékk ca.
13.000 atkvæði þrátt fyrir óvenju-
dræma kjörsókn.
Reynsla og rányrkja
Um leið og Ólafur hafði verið
kosinn forseti 1996 var skrifstofa
forsetans flutt úr stjórnarráðs-
byggingunni í sérkeypt hús við
Sóleyjargötu. Fróðar tungur sögðu
Davíð hafa hlutast til um þetta því
hann þyldi Ólaf ekki nálægt sér.
Fleiri atvik, svipað spunnin,
komu svo fram; boð eða ekki boð í
afmæli heimastjórnar okkar var
t.d. eitt. Nú tala þessir menn báðir
um erfiða tíma og þörfina fyrir
frambjóðendur, eins og sig,
reynsluríka úr stjórnmálunum.
Ég ætla að mótmæla þessu og
horfi þá á stöðu þjóðfélagsins og
framgöngu reynsluríkra stjórn-
málamanna og kvenna: Eins og
þessir – og alls ekki bara þeir, því
ég er ekki að alhæfa,
hafa hagað sér í ára-
tugi: Er þetta reynsla
sem okkur vantar?
Fólk á fullum launum
hjá okkur sem lofar
og svíkur, sólundar fé
okkar í gæluverkefni,
bregst hinum efna-
minni svo grimmilega
að þúsundir búa við
eða undir fátækt-
armörkum. Þeir
einkavæddu bankana
og Póst og síma sem
malaði gull í ríkissjóð. Þeir eru í
rólegheitum að einkavæða heilsu-
gæsluna og selja sameignir okkar;
þar á meðal húseignir sem það
leigir svo aftur – Heilsuvernd-
arstöðin – þó enn sé það bundið
dýrum leigusamningi hjá þriðja að-
ila – til tuttugu og fimm ára!
Kaupir dýra ráðgjöf, allt frá ráð-
gjöf skipaverkfræðings um ferju-
kaup til margra binda bankahruns-
skýrslu. Bankarnir kreista enn fé
undan blóðugum nöglum fólks sem
þegar hefur farið illa út úr
hruninu. Ef eitthvað er herða þeir
tökin og hækka vaxtamuninn.
Ferjan sigldi beint heim í kjör-
dæmi þáverandi fjármálaráðherra,
í endurbyggingu, sem mun hafa
kostað svipað og splunkuný ferja.
Samt hafði skýrsla verkfræðings-
ins kveðið á um að kaupin borguðu
sig aðeins yrði hún gerð upp í
Austur-Evrópu þar sem skipa-
smíðastöðvar vinna á langtum
lægri töxtum. – En til Hafn-
arfjarðar skyldi ferjan, líklega skv.
sérfræðiáliti ráðherrans, en hann
er jú hámenntaður – dýralæknir.
Össur gaf honum meðmælabréf
sem tryggði honum vinnu hjá SÞ í
Róm enda var skýrslan um þátt
hans í hruninu ekki komin úr
prentsmiðju.
Bessastaðir, nei
Við verðum að geta treyst for-
setanum.
Þegar t.d. meirihluti Alþingis er
jafn ósvífinn og hann var undir Jó-
hönnustjórninni er forsetinn síð-
asta varnarlína okkar. Við þurfum
ekki fólk sem alla ævina hefur flot-
ið á milli skóla fyrirtækja og stofn-
ana og ákveðið launin sín sjálft. –
Sama hvað það heitir. Okkur vant-
ar fólk sem skilur fátækt, atvinnu-
leysi, skort, vonleysi, íbúðarmissi
og sjúkdóma. Fólk sem hefur þurft
að standa á eigin fótum – bera
ábyrgð á sér sjálft. Fólk sem elsk-
ar land sitt og þjóð – og frelsi
hennar og sjálfstæði – og daðrar
ekki við annað. Og, eftir allt þetta,
hefur hugsjónir og kjark til að
standa og falla með þeim. Fólk
sem vinnur vel og er ekki á eilífu
„utkik“ eftir atkvæðum fyrir
næstu kosningar – sem það er
meira en tilbúið að láta okkur,
þjóðina, borga.
Reykjavík 8.5. 2016
Reynsluríkur forseti?
Eftir Baldur
Ágústsson » Við verðum að geta
treyst forsetanum.
Baldur Ágústsson
Höf. er fyrrv. forstjóri.
flugumferðarstjóri og forsetaframbj.
2004
Og forsetaframbjóðandi nú, 2016.
www.landsmenn.is
Vegna mikillar sölu vantar okkur
fasteignir á höfuðborgarsvæðinu,
á söluskrá.
Ef þú ert í söluhugleiðingum,
endilega hafðu samband sem fyrst, í
síma 5334200 eða : arsalir@arsalir.is
Ef þú vilt selja, kaupa eða leigja fasteign,
hafðu samband í síma 533-4200
eða arsalir@arsalir.is
Ágæti fasteigna
eigandi !
Björgvin Björgvinsson,
löggiltur fasteignasali
Örugg og traust þjónusta í
fasteignaviðskiptum í áratugi.
Stjórnarskrá Íslands
byggist á greiningu rík-
isvaldsins í þrjá aðskilda
þætti; löggjafarvald,
framkvæmdarvald og
dómsvald. Þetta er ein
meginstoð lýðræðis okk-
ar og sjálfstæðis.
En er það svo? Við
kjósum til Alþingis með
mismunandi vægi á at-
kvæðum, sem mismunar
þannig grunnrétti kjósanda, sem eiga
að búa við lýðræði. Þessi réttur er enn
frekar skertur með þvingun til kjörs á
listum, þar sem kjósandi ræður litlu
um kjör einstakra manna til Alþingis.
Síðan ræður meirihluti alþingismanna
ráðherra til að fara með fram-
kvæmdavald, sem jafnframt ræður
meira og minna með sínum embætt-
ismönnum hvaða lög eru sett. Fram-
kvæmdavald og löggjafarvald leggur
síðan dómsvaldinu til aðstöðu og lög
til þess að veljast til starfa og dæma.
Þessi þrískipting valdsins er lösk-
uð, án skýrra valdmarka. Eftir banka-
hrunið ber fólk æ minna traust til
þeirra, sem með þetta vald fara. Um
það vitnar málþóf og endalausar ræð-
ur um fundarstjórn á Alþingi. Þegar
alþingismenn eru komnir upp í horn
gagnvart því að fá frí frá þeirri um-
ræðu, eru mál afgreidd með hraði í
tímaþröng. Ráðherrar virðast ekki
hafa burði eða þekkingu til þess að
fara gegn embættismönnum ráðu-
neyta og um 700 nefndum ráðherra
eða ráðuneyta. Þannig tefjast mál,
þau dagar uppi og flytja þarf þau al-
veg upp á nýtt með umsagnarferli á
nýju þingi. Dómsvaldið er í miklum
þrengingum og nýtur því miður æ
minna trausts vegna rökstuddrar
gagnrýni úr ýmsum áttum, m.a. frá
fyrrverandi hæstaréttardómara, sem
ekki er svarað.
Embættismannavaldið
Ég kalla embættismannavaldið í
ráðuneytum fjórða valdið. Embætt-
ismenn í ráðuneytunum eru ráðgjafar
bæði framkvæmdavalds og lög-
gjafavalds. Þar sem alþingismenn, án
ráðherrastöðu, hafa litla aðstöðu til
rannsókna á þingmálum ráðherra og
njóta ekki aðstoðar við samningu
lagafrumvarpa, þá leyfi ég mér að
halda því fram, að embættismenn
ráðuneyta séu í dag valdameiri í þjóð-
félagi okkar en ráðherrar og alþing-
ismenn. Þessir embættismenn leita
einnig oft til hæstaréttardómara um
samningu lagafrumvarpa. Það, að
þessir dómarar séu síðan að kveða
upp endanlega dóma eftir eigin lög-
um, er skaðlegt lýðræði okkar. Eins
er það með ólíkindum, þegar skjöl í
ráðuneytum eru lokuð inni sem leynd-
armál, sem enginn má vita um og
einnig þegar sagt er að fundargerðir í
ráðuneyti hafi týnst eða ritari verið
veikur og engin fundargerð verið
skrifuð. Hvernig er hægt að líða
þetta? Þjóðin hefur ekki samþykkt í
kosningum að embættismannavald
ráðuneyta skuli vera sterkara en
framkvæmdarvaldið og löggjaf-
arvaldið. Það verður að aðgreina þessi
þrjú framangreindu „völd“ með skýr-
um hætti, t.d. með breytingu á stjórn-
arskrá þannig að forsætisráðherra
verði kosinn með jöfnum atkvæð-
isrétti kjósanda, sem velji sína ráð-
herra og beri einn ábyrgð á fram-
kvæmdavaldi með nýrri skipan
embættismanna í ráðuneytum. Hann
verði síðan að vinna með alþing-
ismönnum, sem setji lögin með hjálp
sérfræðinga. Ágreiningi milli þessara
aðila sé vísað til þjóðarinnar og verði
sá aðili sem tapar í þeirri þjóðar-
atkvæðagreiðslu að leita eftir nýju
umboði í kosningum.
Vald fjölmiðla
Ég kalla þetta vald fimmta valdið
og tel það sterkara í þjóðfélagi okkar
en hin, sem ég hef áður vikið að. Þetta
vald ryðst inn á almenning í útvarpi,
sjónvarpi, símum og tölvum með ein-
hliða viðhorfi til mála sem almenn-
ingur á erfitt með að
afla sér þekkingar á til
þess að greina hvort
þarna sé fluttur sann-
leikur eða ekki.
Pólitískir einstakl-
ingar í ríkisfjölmiðlum
sem ráða fréttum skera
sig ekki frá öðrum
fréttaflutningi fjölmiðla
sem við kostum og ætt-
um að eiga og stjórna,
án aðkomu ráðherra,
breyta eða leggja af,
vegna engu síðri upplýsinga frá öðr-
um fjölmiðlum.
Engin lög ná til þess hvort eigendur
hafi óeðlileg áhrif á umfjöllun miðils-
ins um tiltekin mál. Samkeppnisstaða
fjölmiðla er einnig skökk þar sem rík-
isfjölmiðlar njóta skylduáskriftar, rík-
isstyrks og óhefts aðgangs að auglýs-
ingum, sem þekkist raunar hvergi
annars staðar með sama hætti. Í síð-
ustu alþingiskosningum stjórnuðu t.d.
ríkisfjölmiðlar umræðu frambjóðenda
með pólitískri umfjöllun sérfræðinga
sem þeir kölluðu til á undan um-
ræðunni. Fréttamennirnir stýrðu síð-
an umræðunni með ákveðnum spurn-
ingum til frambjóðenda út frá
umfjöllun sérfræðinganna! Vald fjöl-
miðla birtist einnig í skoðanamyndun
fyrir kosningar með því að birta skoð-
anakannanir fram að kvöldi fyrir
kosningar og láta sína sérfræðinga út-
lista og spá um niðurstöður.
Vald skoðanakannana
Ég kalla þetta vald sjötta valdið og
tel það sterkast með hjálp fimmta
valdsins. Það stjórnar skoðanamynd-
un fólks fyrir kosningar. Þá erum við
leidd áfram að kjörkassanum með þá
vitneskju skoðanakannana, að ekki
þýði að kjósa nema þá sem eiga mögu-
leika á að komast að eða möguleika á
að bæta við manni. Hér hefði mátt
ætla að löggjafarvaldið hefði sett leik-
reglur um svo áhrifamikinn þátt í okk-
ar lýðræðisferli. Hefur löggjaf-
arvaldið gert það? Engin lög eru til
sérstaklega um skoðanakannanir,
hvenær þær megi fara fram, t.d.
hversu mörgum dögum fyrir kosn-
ingar, hverjir megi setja þær fram,
hverjir séu spurðir og eftir hvaða
reglum úrtak sé gert, þ.e. eftir hlut-
fallsfjölda, hver geti átt félagið/
stofnunina sem spyr og hver sé
ábyrgð þeirra, hvernig spurningar
séu bornar fram, hverjir geti keypt
skoðanakannanir og þá ráðið hvernig
spurt er. Einnig hvernig skoð-
anakannanir séu birtar, greina í
hverri skoðanakönnun, fjölda í úrtöku
með hlutfalli kyns, aldurs og búsetu,
hversu margir neiti að svara eða segj-
ast ekki ætla að kjósa eða segjast óá-
kveðnir.
Fimmta valdið, sem ég svo kalla,
fjölmiðlarnir, keppast við að birta
ýmsar niðurstöður. Það leggur einnig
fram eigin skoðanakannanir og túlkar
á sinn hátt, jafnvel í kosningum, fram
að kveldi fyrir kjördag. Sú fram-
kvæmd hlýtur að hafa áhrif á ákvörð-
un kjósandans í kjörklefanum. Auðvit-
að eru skoðanakannanir fram-
kvæmdar með mismunandi hætti en
vitað er að í flestum þeirra eru eldri
borgarar, 67 ára og eldri, ekki spurðir.
Hvers vegna?
Skoðanakannanir hafa áhrif á hvað
einstaklingurinn gerir með dýrmæt-
asta rétt sinn í kjörklefanum. Skoð-
anakannanir um ýmis önnur atriði
hafa áhrif á hvað fréttamenn, embætt-
ismenn, dómarar og alþingismenn
gera, segja og ákveða og því er nið-
urstaða mín, að þetta „vald“ sem eng-
in lög ná yfir og starfar óheft út um
allt, sé sterkasta „valdið“ í dag með
hjálp fjölmiðla.
Sjötta og
sterkasta valdið?
Eftir Halldór
Gunnarsson
Halldór Gunnarsson
» Skoðanakannana-
valdið ryðst inn á al-
menning með einhliða
viðhorfi til mála.
Höfundur er fyrrverandi
sóknarprestur í Holti.