Morgunblaðið - 12.05.2016, Side 53
UMRÆÐAN 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 2016
14 sönghópar keppa í Norðurljósum
13. maí kl. 16.00
Kvartetta-
keppni
Dagana 12.–14. maí standa Fóstbræður fyrir norrænu karlakóramóti í Hörpu í samvinnu
við Norræna karlakórasambandið og með stuðningi Sambands íslenskra karlakóra.
Mótið er haldið í tengslum við 100 ára afmæli kórsins á þessu ári. Alls eru 23 karlakórar
frá Íslandi, Færeyjum, Noregi, Svíþjóð, Finnlandi og Sviss skráðir til þátttöku.
Karlar
sem elska
Sex súper karlakórar,
Egill Ólafsson og Stórsveit Reykjavíkur
í Eldborg 13. maí kl. 20.30
Fóstbræður og félagar í Hörpu:
Akademiska Sangforeningen┃Muntra Musikanter┃Den norske Studentersangforening
Männerstimmen Basel┃Karlakór Reykjavíkur ┃Fóstbræður┃Egill Ólafsson & Stórsveit Reykjavíkur
Miðasala á tix.is og harpa.is
Þúsund
kallar
Tónleikar karlakóra í sölum Hörpu
14. maí yfir daginn. Aðgangur ókeypis
Norrænt mót
karlakóra
Hátíðartónleikar 23 karlakóra
í Eldborg 14. maí kl. 18.00
Aðalstyrktaraðili mótsins:
Kæri ráðherra
menntamála, Illugi
Gunnarsson.
Er mjókurfræði for-
tíðin? Vinnur fagmað-
ur mjólkina þína og
smjörið þitt í framtíð-
inni?
Sú staða er stað-
reynd og þekkt víða
um heim að mjólkur-
vörur frá Íslandi þykja
gæðavörur og eftirsóttar til útflutn-
ings. Það er varla tilviljun þar sem
þekking í faginu er með afbrigðum
góð og sókn fyrirtækja í greininni
hefur aukist og hróður okkar vöru
samhliða úti um allan heim.
Sú staða er einnig staðreynd og
fáum kunn, utan iðngreinarinnar, að
nám í mjólkurfræði er á krossgötum
og engin endurnýjun er í stéttinni. Í
dag eru starfandi í greininni rúm-
lega 90 mjólkurfræðingar, flestir
menntaðir í Danmörku. Á næstu tíu
árum er útlit fyrir að um 14% þeirra
mjólkurfræðinga sem starfandi eru í
dag muni hætta, einungis vegna ald-
urs. Enginn, ég endurtek enginn, er
á leið í mjólkurfræðinám frá árinu
2012. Þegar bíða um 5-6 ein-
staklingar sem vilja mennta sig í
faginu en halda að sér höndum
vegna kostnaðar og eru að skoða
aðra menntunarmöguleika. Þess ut-
an er þegar vöntun á fagfólki til
starfa í greininni vegna aukinnar
framleiðslu og útflutn-
ings á mjólkurvörum
og skyldum afurðum.
Skiptir þekking í
faginu einhverju máli
eða er okkur alveg
sama um þessa iðn-
grein?
Mjólkurfræði, sem
löggild iðngrein hér á
landi, nýtur engrar
fyrirgreiðslu frá ís-
lenskum stjórnvöldum.
Eftir að skólayfirvöld í
Danmörku lögðu þá
byrði á íslenska nema að greiða fullt
skólagjald frá og með árinu 2013
hefur enginn kosið að mennta sig í
þessu fagi. Allar umleitanir við
danska skólann Kold College sem og
hjá mennta- og menningarmálaráðu-
neytinu af hálfu fagráðs mjólkuriðn-
aðarins (áður fræðsluráðs mjólkur-
iðnararins) og fleiri hagsmunaðila,
hafa engan árangur borið. Skila-
boðin úr ráðuneyti eru einfaldlega,
„námslán“!
Námslán eru ekki einföld lausn,
kæri ráðherra. Af hverju ætti ungur
Íslendingur að mennta sig í iðnnámi
og kosta til þess aukalega 2-3 millj-
ónum í skólagjöld sem annars eru
greidd af íslenska ríkinu í iðnnámi
kenndu hérlendis? Hvar er sann-
girnin og jafnræðið í því að hinar fá-
mennu iðngreinar eins og bólstrun,
úrsmíði, mjólkurfræði o.fl. iðngrein-
ar sem ekki eru kenndar hér á landi
skuli kostaðar af nemanum sjálfum.
Skilaboðin úr ráðuneyti mennta-
mála eru köld, mönnum þar virðist
alveg sama um þessar iðngreinar.
Getur það verið, herra ráðherra?
Undangengin ár hefur mikið verið
reynt til lausnar á þessu máli hjá
skólayfirvöldum í Danmörku sem og
hjá menntamálaráðuneytinu hér-
lendis án árangurs. Fjöldi hags-
munaaðila hefur talað fyrir daufum
eyrum. Fyrir þinginu núna er til
annarrar umræðu þingsályktunar-
tillaga um eflingu náms í mjólkur-
fræði en óvíst hvort þetta mál nær á
dagskrá á þessu þingi sökum fjölda
mikilvægari mála sem þarf að koma í
gegn. Málið ætti því að vera þing-
heimi og ráðamönnum vel kunnugt.
Það er von okkar og trú að það
finnist farsæl lausn á þessum mál-
um. Meðan ekkert er að gert er
ástandið óbreytt og grafalvarlegt.
Þekking í mjólkuriðn mun minnka
og í versta falli glatast ef ekkert er
að gert. Viljinn er allt sem þarf,
herra ráðherra.
F.h. Fagráðs mjólkuriðnaðarins.
Er mjókurfræði fortíðin,
Illugi Gunnarsson?
Eftir Anton
Tómasson »Nám í mjólkurfræði
er á krossgötum.
Áhugi ráðuneytis
menntamála er lítill sem
enginn. Aðgerða er þörf.
Anton Tómasson
Höfundur er mjólkurfræðingur og
formaður fagráðs mjólkuriðnaðarins.
Því heyrist nú
fleygt, að sálmabók-
arnefnd Þjóðkirkj-
unnar sé að hugsa um
að fella úr bókinni
sálminn nr. 256: Lát
þennan dag, vor
Drottinn, nú. Hann er
snilldarþýðing sr.
Valdimars Briem,
vígslubiskups á Stóra-
Núpi, á sálmi eftir
norska biskupinn Johan Nordahl
Brun (1745–1816).
Fyrsta erindið hljóðar svo:
Lát þennan dag, vor Drottinn, nú
oss dýran ávöxt færa.
Ó, besti faðir, blessa þú
vorn barnahópinn kæra.
Nú frammi fyrir þér,
vor faðir, stöndum vér,
þín eldri’ og yngri börn,
þín elska líknargjörn
vor hjörtu virðist hræra.
Þessi sálmur er mörgum einkar
kær og hefur lengi verið sunginn við
fermingar í kirkjum landsins. Mun
raunar erfitt að finna þá fermingar-
athöfn, að hann hafi þar ekki verið
um hönd hafður. Það eru því ólítil
tíðindi ef sálmurinn skal burt úr
sálmabókinni; ég sel það ekki dýrar
en ég keypti. En sé þetta rétt, er
hætt við að fleira gott verði látið
fjúka.
Nú er það engin nýlunda og raun-
ar sjálfsagt, að sumir
gamlir sálmar víki fyrir
nýjum. Í nýrri Sálma-
bók íslensku kirkjunnar
verður væntanlega
fjöldi nýrra sálma.
En sporin hræða.
Löngu látinn prófastur
lét svo um mælt í ævi-
minningum sínum:
„…harmaði ég það,
hvernig tókst til með
sálmabókina síðustu, að
nefndarmenn ráku úr
bókinni sumar perlur séra Matthías-
ar til þess að tylla glertölunum sín-
um í þeirra stað.“
Vinur minn gamall sagði við mig:
„Ósköp er eitthvað lítill kristin-
dómur í þessum nýju sálmum núna;
þetta er mestallt um sólina, fuglana
og blómin. Næstum, að manni detti í
hug vísan eftir danska mjólkurfræð-
inginn:
Blessuð litla lóan
labbar út á tún.
Og ég labbar líka,
labbar eftir hún.“
Lát þennan dag,
vor Drottinn, nú
Eftir Gunnar
Björnsson
Gunnar Björnsson
» Þessi sálmur er
mörgum einkar kær
og hefur lengi verið
sunginn við fermingar í
kirkjum landsins.
Höfundur er pastor emeritus.