Morgunblaðið - 12.05.2016, Síða 54
MÁ BJÓÐA ÞÉR
Í SJÓNMÆLINGU?
NÝ SENDING AF
UMGJÖRÐUM
Traust og góð þjónusta í 20 ár
Hamraborg 10, Kópavogi – Sími 554 3200
Opið virka daga 9.30-18, laugardaga 11–14
ÚTSKRIFTog gjafir
Jón Agnar Ólason
jonagnar@mbl.is
„Það sem fólk kaupir hjá okkur til
útskriftargjafa hefur mikið til verið
á sömu nótunum síðustu árin, en
samt finnst mér að í auknum mæli sé
verið að kaupa praktískar gjafir sem
hugsaðar eru til langs tíma, ekki síst
ef fólk er að fara búa eða hyggur á
búskap,“ segir Kjartan Páll Eyjólfs-
son, framkvæmdastjóri Epal, þegar
talið berst að því sem vinsælast er í
versluninni til útskriftargjafa. „Það
er algengt að kaupa eitthvað fallegt
til heimilisins og það er þá oft fyrir
dömur sem eru að útskrifast. Það er
eins í þessu sem öðru að það er yf-
irleitt erfiðara að finna gjafir fyrir
herrana en samt sem áður eigum við
til ýmislegt sem hefur ratað í út-
skriftargjafir fyrir herrana.“
Orðabækur á undanhaldi
Kjartan bendir á í
þessu sambandi
að í eina tíð hafi
hlemmstór
orðabók nánast
verið skyldugjöf
þegar kom að út-
skriftum; varla hafi
verið hægt að tala um
að viðkomandi nemi hafi verið
útskrifaður nema hann fengi
minnst eina væna orðabók að gjöf
við það tilefni. Nú sé öldin önnur.
„Orðabækur eru komnar á netið
og eru þar aðgengilegar öllum sem
nota á annað borð tölvur. Þar af leið-
andi leiðir fólk gjarnan hugann að
öðrum praktískum hlutum til heim-
ilisins, einhverju sem fólk getur átt
alla ævi ef því er að skipta. Mér
finnst ákveðin langtímahugsun vera
í þessu núorðið og það kemur viðtak-
endunum, útskriftarnemunum, bara
til góðs.“
Meðal þess sem Kjartan hefur
merkt að er vinsælt til útskriftar-
gjafa eru tveir hlutir sem eru, vel að
merkja, íslensk hönnun.
„Mér dettur einna fyrst í hug Sho-
rebird-fuglarnir hans Sigurjóns
Pálssonar, sem framleiddir eru af
Normann Copenhagen. Þeir eru
eigulegir hlutir, sígild hönnun sem
hentar fullkomlega fyrir bæði kyn
ásamt því að vera á fínu verðbili til
gjafa við þetta tækifæri. Svo erum
við með ákaflega falleg rúmföt eftir
Ingibjörgu Hönnu, sem eðli máls
samkvæmt eru gjafir sem bók-
staflega allir geta notað, og henta
báðum kynjum. Þau hafa líka verið
mjög vinsæl til brúðkaupsgjafa.“
Klassík á klassík ofan
Kjartan bætir því svo við að af
nægu sé að taka þegar kemur að því
að velja fallega gripi handa dömum
sem eru að útskrifast enda að mörgu
leyti auðveldara að finna gjafir
handa þeim. „Skartgripaskrín eigum
við til í nokkrum útgáfum og þau
hafa verið gríðarlega vinsæl enda
notagildið ótvírætt og verðið hag-
stætt en þau eru flest á bilinu 5-15
þúsund krónur. Svo eru vírkörf-
urnar frá Ferm Living mikið stáss
og hafa verið mjög vinsælar enda
fást þær í ýmsum stærðum. Þær
hafa verið vinsælli til gjafa fyrir
dömurnar en engu að síður gætu
herrarnir vel fundið not fyrir þær til
að mynda sem framúrskarandi flott
karfa fyrir óhreina þvottinn,“ bætir
Kjartan við og kímir.“
Í framhaldi bendir Kjartan á að
áðurnefndir vaðfuglar eftir Sigurjón
Pálsson, Shorebird, og önnur álíka
trédýr til skrauts, séu einmitt svo
vinsæl því hægt sé að gefa þau í
þeirri fullvissu að þau passa nokkuð
örugglega inn á hvaða heimili sem
er, án tillits til þess í hvaða stíl er
innréttað á viðkomandi heimili.
„Dýrin pluma sig á hvaða hillu sem
er og eru þannig fullkomlega frí-
standandi prýði í hvaða híbýlum sem
vera skal. Sama má segja um Design
Letter-línuna okkar, sem sam-
anstendur af margs konar fallegum
munum sem skreyttir eru með bók-
staf úr leturgerð sem sjálfur Arne
Jacobsen hannaði á sínum tíma. Lín-
an inniheldur drykkjarkrúsir, minn-
isbækur og margt fleira sem hefur
verið gríðarlega vinsælt og þá er iðu-
lega valinn gripur sem skartar upp-
hafsstaf þess sem er að útskrifast.
Þetta er eins og annað sem ég
nefndi, sígild hönnun sem hentar vel
til gjafa og er til þess fallin að koma
að gagni og gleði um ókomna tíð.“
Tímalaus hönnun er sígild gjöf
Það færist í vöxt
að fólk velji fallega
hönnunargripi til
heimilisins Prakt-
ískt og hefur nota-
gildi til framtíðar
Skammtíma-
hugsun á undanhaldi
í útskriftargjöfum
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Notagildi Fólk kaupir í auknum mæli útskriftargjafir með praktíkina í huga. „Mér finnst ákveðin langtímahugsun
vera í þessu núorðið og það kemur viðtakendunum, útskriftarnemunum, bara til góðs,“ segir Kjartan í Epal.
Sígilt Design Letters línan skreytt tímalausri leturhönnun eftir Arne Jacob-
sen inniheldur margs konar gagnlega hluti og hentar vel í tækifærisgjafir.
Vaðfuglinn
Shorebird eftir
Sigurjón Páls-
son er sí-
vinsæll til
gjafa.
Stællegt Körfurnar frá Ferm Living
eru stáss sem passar á hvert heimili.