Morgunblaðið - 12.05.2016, Qupperneq 74
74 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 2016
Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is
Verkfæralagerinn
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
295
Vinnuvettlingar
PU-Flex
1.395
Öflugar
Volcan
malarskóflur
á frábæru
verði
frá 365
Ruslapokar 120L
Ruslapokar 140L
Sterkir 10/50stk
Greinaklippur
frá 595
695
Strákústar á
tannbursta-
verði
Garðklóra/
Garðskófla
595
1.995
Öflug
stungu-
skófla
Garðverkfæri ímiklu úrvali
frá 1.995
Garðslöngur
ímiklu úrvali
Fötur í
miklu úrvali
4.995
Hakar, hrífur, járnkarlar, kínverjar,
sköfur, skröpur, fíflajárn, fötur,
balar, vatnstengi, úðarar,
stauraborar.........
Léttar og góðar hjólbörur
með 100 kg burðargetu
Úðabrúsar
ímörgum
stærðumfrá 995
999Barna-
garðverk-
færi
frá 395
Ruslatínur
frá 295
Ílandi sem státar af heims-meti í bókaútgáfu miðað viðfólksfjölda (hugsanlega aðFæreyjum undanskildum)
má merkilegt heita hvað rit um tón-
list hafa orðið útundan. Sérstaklega
um klassíska listmúsík og tónlist-
arsögu. Það segir sitt um furðubága
stöðu mála að á meðan aðskiljan-
legar slíkar bækur koma árlega út í
Noregi, Danmörku, Svíþjóð og
Finnlandi, líða áratugir þess á milli
á Íslandi. Hér
ganga jafnan
önnur viðfangs-
efni fyrir.
Fyrsta mark-
verða vestræna
tónlistarsagan
sem birtist á ís-
lenzku, Saga
vestrænnar tón-
listar eftir Chri-
stopher Head-
ington í þýðingu Jóns Ásgeirssonar,
kom t.a.m. út svo seint sem 1987,
og liðu síðan nærri 30 ár áður en
fyrsta frumsamda hliðstæðan eftir
íslenzkan höfund leit loks dagsins
ljós – nefnilega nýútkomin Saga
tónlistarinnar eftir Árna Heimi
Ingólfsson.
Er nema furða ef spurt er hverju
sætir? Hjá þjóð sem nýtur þegar
verðskuldaðrar virðingar af átta
alda einstæðri bókmenntaarfleifð?
Eða hvers á tónlistin að gjalda um-
fram aðrar listgreinar?
Svarið er vísast einkum fólgið í
fámenni, einangrun og efnahags-
legri fátækt fyrri alda, sem raunar
gerði bókmenntaarf okkar að hlut-
fallslega meira kraftaverki en víð-
ast hvar á byggðu bóli. En einnig í
því hversu seint listmúsík barst til
landsins. Fyrstu tónlistarskólar
komust hér fyrst á legg allt að 150
árum síðar en erlendis, og um ís-
lenzka músíksköpun má segja að
hún hafi nánast stokkið milliliða-
laust úr þýzkmótaðri rómantískri
ljóðasöngshefð yfir í 20. aldar mód-
ernisma árin kringum 1960.
M.ö.o. varð aldrei til nein frum-
samin íslenzk tónlist í anda endur-
reisnar, klassíkur, barokks, hljóm-
sveitarrómantíkur né (að heitið
geti) nýklassíkur. Hvað þá, illu
heilli, nein alþýðuhefð um áhuga-
spilamennsku á við þá sem blómg-
aðist víða í Miðevrópu á 19. og
langt fram á 20. öld.
Í ljósi þeirrar firringar frá at-
hygli almennings sem listmúsík
hefur í vaxandi mæli þurft að sæta
á síðari áratugum í kjölfar síauk-
innar markaðs- og neyzluhyggju er
því – vægast sagt – ekki seinna
vænna en að aðgengileg frumsamin
tónlistarsaga Vesturlanda líti dags-
ins ljós.
Það eru ekki nema sjálfsögð und-
irstöðuréttindi hverrar upplýstrar
þjóðar að komast í tæri við hið
fremsta sem vestræn menning hef-
ur upp á að bjóða. Á því byggist hið
rómaða ,frjálsa val‘ sem jafnframt
er forsenda markviss lýðræðis – s.s.
að vita hvað er á boðstólum og að
geta miðað þarfir sínar við það
bezta sem völ er á, þrátt fyrir við-
leitni pópúlískra markaðsafla til
hins gagnstæða – að maður segi
ekki til frumstæðrar forheimsk-
unar.
Meðan skyldunámskerfið og fjöl-
miðlar standa sig ekki betur í þeim
efnum en raun síðara ára ber vitni,
verður því seint oflofað framtak á
við hið nýja ritverk Árna Heimis er
beinir á tæru og auðskildu máli for-
vitni almennings að perlum vest-
rænnar tónsköpunar.
Eitt er að geta haft uppi á frá-
bærri tónlist á netmiðlum, enda
framboðið sem betur fer þegar gíf-
urlegt. En bakgrunninn – sam-
hengið – verður að sækja annars
staðar.
Eins og t.d. hér! Þó rakin sé 1200
ára ritunarsaga vesturlenzkrar tón-
listar í tímaröð allt frá fyrstu verk-
um munka á dögum Karlamagn-
úsar, er ekki þar með sagt að 615
síðna sófaborðshlunkinn þurfi endi-
lega að lesa spjalda á milli. Þvert á
móti er bókin hin skemmtilegasta
ígripslesning nánast hvar sem niður
er komið, og ætti engum að verða
skotaskuld úr því að leita uppi við-
komandi tónverk í hljómandi mynd
ýmist úr heimadiskóteki eða á net-
miðlum undir bak- eða forgrunns-
hlustun meðan lesið er og upplifa
þannig arnsúg fortíðar í skyntækri
þrívídd.
Ekki ber heldur að lasta staka
aukakrydd nýrrar og/eða persónu-
legrar viðmiðunar inn á milli, eins
og t.d. fróðleikskornið um brezka
endurreisnartónskáldið Dunstable
er hafi – síðast enskra tónskálda –
haft afgerandi alþjóðleg áhrif fram
að Bítlunum, 540 árum eftir sinn
dag!
Þegar kemur að aðfinnsluverðari
hliðum þessa tímamótaverks vand-
ast óneitanlega málið. Í fyrsta lagi:
Við hvaða rit á að miða? Allar hlið-
stæður eru jú erlendar og, eins og
margir hafa bent á – þ. á m. höf-
undur sjálfur – hafa flestar til-
hneigingu til að yppa hver sinni
tónleifð á kostnað annarra þjóða.
Hverjum þykir jafnan sinn fugl feg-
urstur.
Þökk sé kornungri arfleifð ís-
lenzkrar listmúsíkur gefst að vísu
harla lítið tilefni til neins slíks hér,
enda koma tónverk norðurhjarans
aðeins við sögu bókar þá sjaldan
straumar og stefnur utan úr heimi
gefa tilefni til að geta áhrifa þeirra
á hérlenda tónsköpun. Er fátt við
því að segja, einkum úr því við bíð-
um enn útgáfu frambærilegrar ís-
lenzkrar tónlistarsögu.
Hins má raunar sakna að bókin
fjalli ekki meir um norræna tónlist
en gert er. Viðfangsvalið virðist, og
kannski skiljanlega, ekki sízt mótað
af hefðbundnu engilsaxnesku við-
horfi, enda höfundur menntaður
vestan hafs, og lýsir sér m.a. í held-
ur smátækri einblíningu á Grieg,
Sibelius og Nielsen (síðustu í pláss-
hlutföllunum 5/1 – jafnvel þótt Niel-
sen hafi seinni áratugi sótt stöðugt
á í alþjóðlegu mati). En allt er slíkt
auðvitað háð heildarsjónarmiðum
og hætt við að verkið hefði stækkað
ótæpilega að öðrum kosti.
Smæð orðasafnsins Heiti og hug-
tök í bókarenda (5 síður) kemur á
óvart, þótt sé að vísu litlu minna en
í 850 síðna staðalkennsluriti Do-
nalds J. Grouts fyrir grunnstig
heimstónsögu í bandarískum há-
skólum, A History of Western Mu-
sic. Hefði samt oftar mátt geta al-
þjóðlegra heita við hlið þeirra
íslenzku, er enn eru mörg laus í
reipum. Einnig saknar maður tíma-
stiku á við 25 síðna Chronology
Grouts, er veitir lesendum ómiss-
andi tónsögulegt yfirlit í réttri
tímaröð.
Að lokum það sem allra fyrst sló
í augun: Stærðin! Enn sem oftar
birtist íslenzkum lesendum dæmi-
gert uppflettirit í risavöxnu fólíusn-
iði sem hæglega hefði mátt prenta í
mun handhægara formati. Hvers
vegna? Af því að hér séu bækur
umfram allt hugsaðar til gjafa og
því einkum metnar eftir sýnilegu
umfangi? Spyr sá er ekki veit. En
þó þyngdin sé (í grömmum talin)
furðulítil miðuð við rúmmál, þá
fyndist manni löngu kominn tími til
að útgefendur endurmeti afurðir
sínar fyrir líklegustu notkunar-
þarfir. Svo ekki sé minnzt á net-
útgáfu og hljóðbækur.
Hitt stendur þó óhikað eftir. Tón-
listarsaga Árna Heimis fyllir skarð
sem íslenzk bókaútgáfa þarf loks
ekki lengur að skammast sín fyrir.
Loksins!
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Höfundurinn Rýnir segir um Sögu tónlistarinnar að seint verði „oflofað framtak á við hið nýja ritverk Árna Heimis
er beinir á tæru og auðskildu máli forvitni almennings að perlum vestrænnar tónsköpunar.“
Tónlist
Tónlistarbókbbbbm
Árni Heimir Ingólfsson: Saga tónlistar-
innar. „Tónlist á Vesturlöndum frá mið-
öldum til nútímans.“ 615 bls., 1690 g.
Útgefandi: Forlagið, Reykjavík 2016.
Forlagsverð: 11.990 kr.
RÍKARÐUR Ö.
PÁLSSON
TÓNLIST
Safnasafnið, við Svalbarðsströnd í
Eyjafirði, verður opnað á ný eftir
vetrardvala nk. laugardag kl. 14.
Þetta er 21. starfsárið sem opnað er
með sýningum á verkum eftir 67
listamenn og nemendur þriggja
skóla. Þann sama dag kemur út Sýn-
isbók safneignar 1, styrkt af Seðla-
banka Íslands.
Stór sýning verður á verkum
Þórðar Valdimarssonar sem tók upp
listamannsnafnið Kikó Korriró.
Sýnd verða verk 36 óþekktra hann-
yrðakvenna en Safnasafnið hefur á
liðnum árum eignast mikið af hann-
yrðum og textílverkum og hefur á
þessari sýningu valið verk úr safn-
eigninni sem talið er að geti flokkast
til myndlistar, eða standi henni
nærri.
Þriðja sýningin úr safneigninni
samanstendur af verkum 24 lista-
manna. Sýningin er nokkurs konar
þverskurður af safneigninni. Þetta
eru tálguverk, útsaumur, pappírs-
myndir, máluð viðarverk, leir- og
gifsverk og verk úr óvenjulegum
efnum.
Gestasýnendur safnsins verða alls
fjórir talsins.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Opnað Sýnisbók safneignar 1 kemur út um leið og Safnasafnið opnar.
Safnasafnið sýnir verk
eftir 67 listamenn