Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2018, Qupperneq 14
14 Helgarblað 26. janúar 2018fréttir
B
jörgunarsveitarfólk hefur
áhyggjur af gjaldi bílaleiga
á Íslandi fyrir að sækja bíla
sem ferðamenn þurfa að
yfirgefa vegna ófærðar og óveð-
urs. Mikil umræða hefur verið um
málið í Facebook-hóp Slysavarna-
félagsins Landsbjargar. Björg-
unarsveitarfólk ræðir einnig um
kostnað björgunarsveita við að
losa fasta bíla. „Gengur ekki að
við séum notuð sem frí þjónusta
fyrir fólk sem situr fast en er ekki
í hættu,“ segir einn björgunar-
sveitarmaður. Annar stakk upp á
að ríkið skattlegði bílaleigur fyrir
dráttarkostnaði.
DV hafði samband við nokkrar
bílaleigur til að kanna kostnað við
að sækja bíla. Það er mismunandi
eftir aðstæðum hvað bílaleigur
innheimta mikið hverju sinni. Hjá
einni bílaleigunni sem DV hafði
samband við er lágmarksgjald fyr-
ir að sækja fastan bíl 45 þúsund
krónur og bætist kílómetragjald
þar ofan á.
Há „gjaldskrá“
Meðlimur hópsins á Facebook
segist hafa heyrt af svo kallaðri
„gjaldskrá“ bílaleiga þar sem
kostnaður við að skilja eftir bíla-
leigubíl sökum ófærðar og óveð-
urs hlaupi á nokkrum tugum þús-
unda.
„Hafa einhverjir tekið eftir
hvort þetta hefur áhrif á okkar
vinnu í ófærðar- og óveðursútköll-
um. Er fólk tregara að yfirgefa bíl
sinn eða er meiri þrýstingur á að
við losum bílana?“
Einn segist hafa heyrt af slíku
atviki í útkalli í Mosfellsheiði.
Annar gagnrýnir ferðamenn sem
hunsa veðurspár:
„Á meðan veðurspár eru huns-
aðar og fólk fer um víðan völl án
þess að hafa nokkra glóru með
í farteskinu þá endar það með
kostnaði fyrir bílaleigur að sækja
bílana sína þegar þeir eru skildir
eftir. Ég held þetta flokkist undir
kapítalisma … Sjálfboðaliðarnir
hlaupa síðan frá sínum verkefnum
til að sinna verkefnum opinberra
aðila, eyðandi fé sem er búið að
afla með ótal vinnustundum. Al-
veg galið, segi ég.“
Einn björgunarsveitarmaður
segir frá útkalli á Mosfellsheiði.
„Þar var einn ferðamaður í hópn-
um sem hafði samband við sína
bílaleigu og fékk uppgefið að það
kostaði ca. 600 USD að láta bíla-
leiguna sækja bílinn. Það þótti
honum frekar mikið og endaði
á því að panta Yaris hjá annarri
bílaleigu í sólarhring á 43 USD til
að fara morguninn eftir og sækja
fasta bílinn upp á Mosfellsheiði.
Við lánuðum honum skóflu sem
hann skilaði daginn eftir.“
Fá ríkið til að skattleggja
Einn maður segir að það gangi
ekki lengur að kalla frítt út björg-
unarsveitir fyrir hættulaust
ástand. „Það verður bara að fara
að taka ákvörðun um heildræna
stefnu í þessum málaflokki. Geng-
ur ekki að við séum notuð sem frí
þjónusta fyrir fólk sem situr fast en
er ekki í hættu.“
Annar björgunarsveitarmað-
ur segir: „Það er spurning að láta
ríkið í að skattleggja bílaleigur fyr-
ir þessum kostnaði svo hann renni
þá til viðbragðsaðilanna.“
Margar björgunarsveitir losa
ekki og draga fasta bíla
Í hópnum var einnig mikil um-
ræða um ábyrgð þeirra sem draga
bíla og ástæðu þess að margar
björgunarsveitir draga ekki fasta
bíla þar sem hætta er ekki aðsteðj-
andi. Segir einn meðlimur:
„Sá sem dregur er ábyrgur fyrir
farartækinu sem togað er í. Ef fólk
vill losa bílinn og bíllinn er á veg-
inum þá er það bara skófla 101.
Ef bíllinn er utan við veg = Vaka,
Krókur og dráttarbílaþjónustur af
sama meiði. Við erum þarna til að
bjarga fólki en ekki til að losa alla
fasta bíla.“
Nokkrir björgunarsveitarmenn
ræddu um hvort björgunarsveitir
hefðu heimild til að rukka ferða-
menn fyrir að losa bíla.
„Það er óheimilt [fyrir björg-
unarsveitir að] undirbjóða í
samkeppnisrekstri. Við eigum auk
þess að forðast að taka verkefni af
verktökum sem hafa lifibrauð af
verkefnum af þessu tagi. Sé engum
verktaka til að dreifa er ekkert því
til fyrirstöðu að sinna verkefninu.“
Væri ekki ódýrt í útlöndum
Einn meðlimur hópsins spyr
hvort það hafi verið reynt að fá
undanþágu eða betri tryggingar
á björgunarsveitarbíla þannig að
tryggingar dekki kostnað verði
skemmdir við að draga bíla. Því er
svarað á þann veg að það sé ekki
framkvæmanlegt.
„Við megum ekki vera feimin
við að rukka túrhestinn fyrir eðli-
lega vinnu. Ef ég lendi í árekstri
í Þýskalandi þá kostar það ekki
undir 250–500 evrum að láta draga
bílinn. Í Bretlandi getur það kost-
að um 250 GBP að draga bíl af
þjóðvegi,“ segir einn björgunar-
sveitarmaður.
Útlendingarnir þakklátir
„Við hættum fyrir nokkrum árum
að draga bíla og aðstoðum við ansi
marga vegfarendur á Hellisheiði
á hverjum vetri. Ef bíllinn stend-
ur á veginum er bara „lítið“ fastur
þá drögum við upp skóflurnar og
förum að ýta. Ef bifreiðin er meira
föst en svo að hægt sé að moka
og ýta án þess að vinnan standi
fram á vor þá bendum við þeim
á dráttarbílaþjónustu og bjóðum
við fólkinu sæti í bifreiðum okkar
og frítt far niður af heiðinni,“ seg-
ir björgunarsveitarmaður og held-
ur áfram:
„Viðbrögðin eru oftast þannig
að útlendingar verða voðalega
þakklátir að komast úr þessum
aðstæðum en Íslendingar spyrja
stundum hvort að eða af hverju
við drögum ekki bílinn. Þegar við
útskýrum fyrir þeim að við höf-
um hætt að draga vegna ábyrgð-
ar okkar við að bjarga öðrum með
tilheyrandi kostnaði ef eitthvað
kemur upp á og að okkar hlutverk
sé að bjarga fólki eða verðmætum
frá yfirvofandi tjóni eða hættu, þá
skilur fólk okkur bara mjög vel og
spyr hvort það sé einhver dráttar-
bílaþjónusta í Hveragerði sem við
getum bent þeim á. Vandamálin
verða ekki mikið stærri en svo.“
Að lokum segir hann að margar
dráttarbílaþjónustur séu á þeirra
svæði ólíkt hjá mörgum björg-
unarsveitum úti á landi.
Mismunandi verð hjá bílaleigum
Einn björgunarsveitarmaður
sagðist hafa heyrt ólíkar upphæðir
fyrir að draga bíla: „Tölurnar sem
við fengum voru 10.000, 50.000 og
150.000.“
DV hafði samband við nokkrar
bílaleigur til að kanna kostnað við
að yfirgefa bíl vegna ófærðar og
óveðurs. Það sem einkenndi svör á
öllum bílaleigunum sem DV talaði
við var að kostnaður færi mikið
eftir aðstæðum og staðsetningu
hverju sinni.
Skiptir máli hvort það þurfi
dráttarbíl eða ekki
DV ræddi við Reyni Daða Hall-
grímsson, stöðvarstjóra hjá Bíla-
leigunni á Akureyri.
„Þetta er metið út frá því sem er
í gangi, ófærð eða veðri eða ein-
hverju svoleiðis, þá reynum við
að halda kostnaðinum alveg í lág-
marki. Reglan hjá okkur, ef það
þarf að nota dráttarbíl því bíll er
fastur, út af veginum eða eitthvað
svoleiðis, er að rukka 200 krónur
á kílómetrann. En ef ég get sent
starfsfólk á fólksbíl daginn eftir
þá er það eitthvert samningsatriði
sem tekur mið af aðstæðum. Ef um
óviðráðanlegar aðstæður eins og
óveður er að ræða þá reynum við
að halda kostnaðinum alveg í lág-
marki,“ segir Reynir.
Aðspurður hver væri þá kostn-
aður fyrir kílómetrann segir
Reynir hann vera í kringum hund-
rað krónur á kílómetrann.
Lágmarksgjald 45 þúsund
„Kostnaðurinn er mjög mismun-
andi. Það fer eftir akstri. Mað-
ur reynir náttúrlega alltaf að finna
næstu aðila. Það eru hinir og þess-
ir aðilar sem eru að gera út á þetta.
Þeir fara þá og draga og rukka
samkvæmt kílómetragjaldi,“ sagði
starfsmaður hjá bílaleigunni Hertz.
„Kílómetragjaldið er 300
krónur. Hjá okkur er það þannig
að ef viðskiptavinir þurfa björgun
þá er lágmarksgjaldið 45 þúsund
og kílómetragjaldið bætist ofan
á það, ef þarf að kalla út „rescue-
bíla“ eins og við köllum þá. En ef
tveir starfsmenn geta farið á fólks-
bíl og sótt bílinn sjálfir þá erum við
ekki að rukka þetta þjónustugjald
og lækkum kílómetragjaldið.“ n
„Gengur
ekki að
við séum notuð
sem frí þjónusta
fyrir fólk sem
situr fast en er
ekki í hættu
Dýrt að festa bílinn
n Björgunarsveitarfólk áhyggjufullt yfir gjaldtöku bílaleiga á Íslandi
Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
gudrunosk@dv.is
Myndin tengist
fréttinni ekki beint.