Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2018, Blaðsíða 45
Útlit og heilsaHelgarblað 26. janúar 2018 KYNNINGARBLAÐ
HÚÐIN er húðmeðferðarstofa sem var opnuð fyrir tveimur mánuð-um að Hátúni 6b í Reykjavík. Þar
er boðið upp á ýmsar meðferðir sem
auka heilbrigði húðar. Einnig er hægt
að fá persónulega ráðgjöf um val á
meðferð og hvað hægt sé að gera til að
viðhalda heilbrigðri húð. Verði er stillt í
hóf og reglulega er boðið upp á tilboð á
meðferðum.
Lára G. Sigurðardóttir læknir og
Sigríður Arna Sigurðardóttir, hjúkrun-
ar- og förðunarfræðingur, eru eigendur
stofunnar.
„Við meðhöndlum saklausar húð-
breytingar eins og háræðaslit, fínar
og djúpar andlitslínur, og óhreina húð,
svo eitthvað sé nefnt,” segir Lára. „Við
bjóðum einnig upp á laserháreyðingu,
Restylane-fylliefni og ýmislegt til að
fríska upp á húðina og hressa upp á
útlitið.“
Hugsaðu vel um húðina
Húðin gegnir mörgum mikilvægum
hlutverkum í lífi okkar og því mikilvægt
að hugsa vel um hana. Hún ver okk-
ur gegn sýklum, óhreinindum, að-
skotahlutum og útfjólubláum geislum
sólarinnar. Taugaendar í húðinni láta
okkur vita ef eitthvað er of heitt eða
kalt, oddhvasst eða bitlaust og við létta
snertingu sendir hún heilanum skilaboð
sem slaka á líkamanum. Einnig er húðin
mikilvæg til að stjórna vökvainni-
haldi líkamans og hitastigi hans
svo eitthvað sé nefnt.
Ýmislegt hefur áhrif á
heilbrigði húðarinnar og vega
þyngst ljósabekkjanotkun, sól-
böð og reykingar, sem allt hefur
þau áhrif að húðin eldist hraðar.
Húðin byrjar að missa styrkleika
og teygjanleika um þrítugt og því
fyrr sem maður byrjar að hugsa vel
um húðina, því betur eldist hún.
Hjá HÚÐINNI er boðið upp á fjöl-
breyttar húðmeðferðir fyrir allan aldur
og er meðferð valin sem hentar best
hverjum og einum.
Meðferðir sem vinna á ysta lagi
húðarinnar og henta flestum eru dem-
antshúðslípun sem er vinsæl meðferð
sem hreinsar húð, gefur ljóma og frísk-
legt yfirbragð. Einnig er að fara af stað
ávaxtasýrumeðferð sem endurnýjar
efsta lag húðar og vinnur á ýmsum
húðvandamálum.
Meðferðir sem vinna í dýpri lögum
húðarinnar eru lasermeðferð sem
dregur meðal annars úr slappleika, fín-
um og djúpum línum og örum eftir ból-
ur, og dermapen þar sem notaðar eru
örsmáar nálar til að byggja upp húðina.
Þessar meðferðir eiga það sameig-
inlegt auka styrkleika og teygjanleika
húðarinnar og gera hana áferðarfal-
legri. Lasermeðferð er nú afar vinsæl til
að
eyða
hárum varanlega og með
laser er einnig hægt að fjar-
lægja háræðaslit, sólarskemmd-
ir, húðflúr og minnka rósroða.
Annað sem er vinsælt í dag eru Re-
stylane-fylliefni sem innihalda náttúru-
legar sykrur sem sprautað er í undirhúð
til að gefa aukinn raka og grynnka
línur. Síðan er hægt að gefa fyllingu
í varir á náttúrulegan máta eftir
óskum hvers og eins.
Hjá Húðinni bjóða Sigríður og
Lára upp á persónulega þjónustu
og faglega ráðgjöf í notalegu um-
hverfi.
Húðin er að Hátúni 6b, Reykjavík.
Síminn er 783-2233. Húðin er með
heimasíðu: hudin.is og jafnframt á
Facebook og Instagram: hudin.is.
Hlúðu vel að húðinni
með góðri meðferð
HEILBRIGÐ HÚÐ ENDURSPEGLAR
HEILBRIGÐAN LÍKAMA
Eigendurnir Sigríður Arna Sigurðardóttir,
hjúkrunarfræðingur og förðunarfræðingur, og Lára G.
Sigurðardóttir, læknir, eru eigendur stofunnar.
Þjálfunin er gefandi, bæði fyrir
mig og viðskiptavini mína
KRISTÍN SEGIR AÐ GÓÐUR ÞJÁLFARI SÉ GÓÐUR MANNÞEKKJARI
Kristín Ólafsdóttir er einkaþjálfari hjá World Class í Ögurhvarfi, auk þess að vera þar með tíma
í spinning. Hún starfaði fyrir hrun
í fjármálageiranum, en ákvað að
breyta um starfsvettvang og vinna
starf sem væri meira gefandi, bæði
fyrir hana og viðskiptavini hennar.
„Ég var að vinna sem fjármála- og
lífeyrisráðgjafi hjá gamla Kaupþingi.
Þegar ég kynntist manninum mínum,
sem var handboltamaður, leiddist ég
sjálf út í æfingar. Mér fannst þetta
skemmtilegt og leið ekki vel í þáver-
andi starfi. Ég var með frekar ákveðn-
ar skoðanir á því hvernig þjálfari
átti að vera og starfa og stuttu fyrir
hrunið þá hellti ég mér bara á fullt í
þetta,“ segir Kristín.
Hún segir alveg himin og haf á
milli fyrra starfs og einkaþjálfunar-
innar og þjálfunarstarfið oft töluvert
meira krefjandi en um leið mun meira
gefandi.
Góður þjálfari þarf að vera hvetj-
andi, en einnig að sýna stuðning
„Það er margt sem góður þjálfari
þarf til að bera. Undirstaðan er og
verður alltaf góð þekking á líkaman-
um, og góð þekking á þjálffræði. Það
þarf líka að viðhalda þeirri þekkingu
stanslaust. En góður þjálfari þarf
einnig að vera góður mannþekkjari.
Sama æfingaprógrammið hentar ekki
öllum, fólk er í mismunandi líkamlegu
ástandi og andlegu, og þarf á mis-
munandi stuðningi á að halda. Það er
mikilvægt að geta einmitt lesið á milli
línanna og aðlaga æfingar og matar-
æði að mismunandi persónuleikum
og ástandi viðskiptavinanna.“
Fólk hefur einnig mismunandi þarf-
ir og hefur mismunandi markmið með
æfingum. „Sjálf er ég að þjálfa fólk
sem stefnir á að hlaupa maraþon,
taka þátt í fittnesskeppnum og jafnvel
járnkalli. Ég er einnig með fólk sem
stefnir ekki á neinar keppnir, fólk sem
vill grennast og fólk sem vill þyngjast
og fólk sem vill bara halda sér í formi.“
Það þarf að aðlaga æfinga-
prógrömm og mataræði að hverjum
og einum með tilliti til þeirra mark-
miða. Jafnframt þá þarf aðhald
þjálfarans bæði á og utan æfinga að
passa við markmið viðskiptavinanna.
Hún segist alveg geta staðfest að
hún sé ákveðinn þjálfari, en leggur
samt áherslu á að fólk sé að breyta
um lífsstíl. Ekki að taka ræktina í ein-
um spretti, borða hollt í nokkrar vikur
en svo fari allt aftur í sama farið.
„Það er flest gott í hófi. Maður vill
æfa, líta vel út og vera heilbrigður, en
vill samt geta notið lífsins og liðið vel,
til þess er leikurinn gerður.“
Til að hafa samband við Kristínu
má hringja í World Class Ögurhvarfi í
síma 517-0612, einnig má finna allar
upplýsingar um hana á heimasíðunni:
worldclass.is
Umsagnir
„Við hjónin segjum nú bara eins og
börnin, Kristín er algjört æði. Hún
er fagmanneskja fram í fingurgóma
með frábæra næmni bæði á líkam-
legt og andlegt ástand og endalausa
fjölbreytni í æfingum sem gerir það
meðal annars að verkum að það
er ekkert mál að mæta óguðlega
snemma á morgnana til hennar
og takast á við sjálfan sig.“ - Hjónin
Kristín S. Sigtryggsdóttir og Hallur A.
Baldursson.
„Ég er búin að æfa hjá Kristínu í að
verða 2 ár núna, verð 43 ára á þessu
ári og hef aldrei verið í jafngóðu formi.
Hún hefur einstaka hæfni til þess að
hafa æfingarnar skemmtilegar og
fjölbreyttar og finna út hvað það er
sem maður þarf að vinna í. Einnig
greindist ég með brjósklos núna í vet-
ur og ég þakka henni alfarið fyrir það
að ég hafi látið athuga á mér bakið
því hún ýtti mér til þess. Algjörlega
ótrúlega góður og metnaðarfullur
þjálfari sem ég mæli hiklaust með.“
-Hulda Rós Hákonardóttir.
„Kraftmikil, nákvæm, markmiða-
sett og mikill áhugi til að ná árangri
eru nokkur orð sem lýsa Kristínu sem
einkaþjálfara. Hún byggir upp þjálf-
un sem hentar hverjum og einum og
þeirra markmiðum, eftir þeirra getu.
Æfingarnar hjá henni eru mjög fjöl-
breyttar og hefur hún einstakt lag á
að láta mann ekki staðna. Hún þrýstir
manni eins langt og maður getur
með sinni einstöku ákveðni. Númer
eitt er hún alveg frábær einstakling-
ur.“ -Hjónin Sigrún Bender og Baldur
Rafn Gylfason.
Mynd / Sigtryggur Ari