Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2018, Síða 78

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2018, Síða 78
78 fólk Helgarblað 26. janúar 2018 hin hliðin „Ég er evrópumeistari í liggjandi lúft- gítar og borða mat sem dettur í gólfið“ Ragga nagli er klínískur heilsusálfræðingur og einka­ þjálfari. Hún er nú stödd hér á landi og er önnum kafin við að undirbúa kynningar og fyrirlestra sem eru fram­ undan. Hún gaf sér tíma til að sýna lesendum DV á sér hina hliðina og svara nokkrum undarlegum spurningum. Hverjum líkist þú mest? Í útliti líkist ég mest föður mínum. Ég er eins og stimpill af honum, bæði í framan og í líkamsbyggingu. Málfarslega líkist ég hins vegar móður minni. Skapgerðin er mín eigin held ég, er samt alltaf að reyna að líkjast meira mann- inum mínum og hans stóísku ró. Hvað halda margir um þig sem er alls ekki satt? Að ég sé sjúklega sterk og heljar- menni að burðum af því ég kalla mig Nagla. En Nagla-titillinn er tilkominn því mér leiðast afsakanir hjá sjálfri mér og vil alltaf sækja á brattann og ögra sjálfri mér. Hvað finnst þér að eigi að kenna í skólum sem er ekki kennt þar núna? Samskiptatækni. Hvernig við notum tungumálið til áhrifaríkari samskipta. Það myndi koma í veg fyrir margan ágreininginn, bæði faglega sem og í fjölskyldum. Til viðbótar við það væri tilfinningalæsi gott aukafag, þar sem við samþykkjum og leyfum bæði okkur og öðrum að upplifa allt tilfinning- arófið. Bæði neikvæðar og jákvæðar tilfinningar. Ef þú þyrftir að eyða 100 þúsund krónum á klukkutíma, í hvað verslun færirðu? Nettó, útópíu heilsumelsins. Og ég myndi eyða allri hýrunni í alls konar fyrir átvögl á Heilsudögunum sem nú standa yfir og spara mér þannig 25% af hverju gúmmelaði og geta þá keypt enn meira fyrir aurinn. Hvað viltu að standi skrifað á legsteinin- um þínum? Það er betra að sjá eftir því sem maður gerði, en því sem mann langaði að gera en gerði ekki. Ef þú mættir velja eitt lag sem yrði alltaf spilað um leið og þú gengir inn í herbergi allt þitt líf, hvaða lag myndirðu velja? Don’t let the sun go down on me, dúettinn með George Michael og Elton John. Það lag á sérstakan stað í hjartanu. Ef þú þyrftir að dansa til að bjarga lífinu, undir hvaða lagi myndirðu vilja dansa? Fjöllin hafa vakað með Egó. Ég er Evrópumeistari í liggjandi lúftgítar. Hvaða bíómynd hefurðu séð oftast? Eins og öll velmegunarbörn áttunda áratugarins þá get ég farið með Dirty Dancing afturábak og áfram Borðarðu mat sem er kominn fram yfir síðasta söludag? Já, algjörlega. Ég þoli ekki matarsóun. Borða líka mat sem dettur í gólfið. Og mat sem er jafnvel farinn að lykta. Ég held að þess vegna sé ég með svo sterkt ónæmiskerfi og verð aldrei lasin. Hvaða ósið hefur þér reynst erfiðast að hætta? Er nýhætt að drekka sykurlaust gos og er mjög stolt af að hafa masterað það. Hins vegar hef ég margoft reynt að minnka tyggjójórtrið mitt en án árangurs. Allir þurfa að hafa einhvern löst er það ekki? Um hvað geta allir í heiminum verið sammála? Mikilvægi heimsfriðar. Hvaða hljóð fer mest í taugarnar á þér? Þegar einhver flautar lagstúf. Sérstaklega á almannafæri. Hvaða viðburði sérðu mest eftir að hafa misst af? Brúðkaupi í Bahrain sem okkur hjónum var boðið í. Okkur fannst það svo dýrt ferðalag en við hefðum bara átt að taka neyslulán, yfirdrátt, kúlulán eða gúmmítékka. Lífið er nefnilega núna! Hver er versta vinnan sem þú hefur unnið? Í samlokusjoppu í Edinborg árið 2001 að búa til samlokur fyrir háskólanema í hádegishléi. Það var ótrúlega leiðinleg og lítið gefandi vinna fyrir hugrænan þroska og sálartetrið. Hvert er þitt stærsta líkamlega afrek í lífinu? Úff, er að ná líkamlegum afrekum reglulega í ræktinni en þau mælast yfirleitt í nifteindum en gera mig þá þessum millimetra betri í dag en í gær. Það getur verið einni endurtekningu fleira, eða aðeins þyngri lóð á stönginni, aðeins hærra stökk eða erfið æfing sem ég hef ekki gert í langan tíma og er skyndilega skítlétt. Ef þú yrðir handtekin án skýringa, hvað myndu vinir þínir og fjölskylda halda að þú hafir gert af þér? Borðað af mat annarra veitingahúsagesta. Hvað ættu allir að prófa að minnsta kosti einu sinni í lífinu? Að búa í útlöndum. Það víkkar sjóndeildarhringinn að kynnast menningarheimum, annarri pólitík, læra nýtt tungumál. Maður öðlast víðsýni og fordómaleysi við að tileinka sér ný gildi og þekkja aðra siði og venjur. Hvað verður orðið hallærislegt eftir fimm ár? Að veipa. Ef þú kæmir einn daginn heim úr vinnunni og þar væri enginn nema Sveppi í sturtu, myndirðu hringja í lögregluna? Nehei, ég myndi rétta honum hreint handklæði og bjóða honum svo að setjast inn í stofu, fullklæddum auðvitað og spjalla yfir LOHILO ís. Þá myndi ég þjálfa kviðvöðvana með hláturskasti og þyrfti ekki að fara í ræktina. Hvaða einstakling finnst þér þú þekkja, þótt þú hafir aldrei hitt hann? Adele. Fór á tónleika með henni þar sem hún talaði milli laga og ég væri til í að setjast inn í eldhús með henni og borða kex og drekka te og hlusta á hana tala um heima og geima. Hún er alþýðleg, fyndin og skemmtileg. Hvað er framundan um helgina? Verð með kynningar á Heilsudögum Nettó að kynna nýja LOHILO prótínísinn, nýtt vegan prótín frá NOW og með fræðslu og ráðgjöf um bætiefni og vítamín. Á sunnudag verð ég síðan með erindi á ráðstefnunni Bara það besta 2018 ásamt frábærum fyrirlesurum eins og Ólafi Stefánssyni og Vilborgu Örnu. Ragga nagli er virk á heimasíðu sinni og samfélagsmiðlum undir eigin nafni: www.ragganagli.com Instagram: ragganagli Facebook/Ragga Nagli Snapchat: Ragga Nagli Viðar fastaði í sex daga l andsmenn hafa margir hverjir notað áramótaheitin og jan- úarmánuð til þess að prófa eitthvað nýtt og taka sig á í mataræðinu eft- ir jólin. Viðar Freyr Guð- mundsson rafeindavirki valdi heldur óvenjulega leið og ákvað að fasta. Við- ar borðaði ekkert nema salt og drakk einungis vatn, kaffi og sykurlausa gosdrykki. „Það að fasta er bara fyrir lengra komna, það á enginn að leggja í þetta nema með smá undirbúningi,“ segir Viðar í samtali við DV. „Áhugi minn á næringu kom til eftir að ég fór til læknis í nóvember 2016, ég var orðinn allt of feitur með allt of háan blóð- þrýsting og mér var hreinlega sagt að ég myndi fara í hjartastopp fyr- ir fimmtugt. Þá fór ég að lesa um það hvernig það virkar að brenna fitu í líkamanum og þá datt ég inn á keto-mataræði.“ Keto gengur út á að taka allt kolvetni úr matar- æðinu, rúmlega 500 manns á Ís- landi eru í þar til gerðum hóp á Facebook þar sem skipst er á upp- skriftum og ráðum. „Ég borðaði nánast ekkert kolvetni í heilt ár, en með nokkrum hléum, og tókst að léttast um rúmlega 30 kíló. Ég borðaði gjarnan spægipylsu með osti á morgnana og mjög kol- vetnalítinn kvöldmat.“ Í fyrrahaust byrjaði Viðar að gera tilraunir með að fasta hluta úr degi og borðaði jafnvel aðeins kvöldmat. Í byrjun janúar ákvað Viðar svo að reyna að fasta fyrir alvöru. „Ég var kominn með hálfan fótinn ofan í þá laug og ákvað því að prófa. Mér skilst að menn hætti að verða svangir eftir nokkra daga, en ég komst ekki á það stig og því bakkaði ég út úr þessu.“ Viðar stefndi á að ná tíu dögum en gafst upp eftir sex daga. „Svengdin er ekki það sem var erfitt við þetta. Ég var farinn að vera blóðlítill og farinn að finna til svima. Konan mín sagði að ég væri orðinn húmorslaus. Það var frekar þetta andlega en líkamlega.“ Viðar segir að fastan hafi verið auðveldari en hann hafði búist við. „Þegar maður er vanur að vera svangur þá er auðveldara að komast yfir þetta. Svo fær maður sér góðan vatnssopa og hættir að hugsa um þetta. Svo mæli ég með salti, það er alveg nauðsynlegt.“ Var þetta bara vatn og salt í sex daga? „Líka kaffi og te, svo drakk ég líka sykurlaust gos. Það voru mis- tök, þegar ég prófa þetta næst þá ætla ég að sleppa því,“ segir Við- ar og hlær. Hvernig var svo að borða í fyrsta sinn í sex daga? „Ég fór beint aftur í keto- mataræði, fékk mér smá kjúkling með rjóma. Það var fínt.“ n 27 ára fastaði í meira en ár Skotinn Angus Barbieri er núverandi heimsmethafi Guinness þegar kemur að föstu. Hann var 27 ára í júlí 1966 þegar hann fékk sér að borða, þá í fyrsta sinn í heila 382 daga. Barberi var 214 kíló þegar hann ákvað að gera þetta gegn læknisráði, en hann leyfði læknum að fylgjast með sér á tímabilinu og fjallað var um málið í skosku vísindatímariti árið 1973. Þegar föstunni lauk var hann búinn léttast um 133 kíló. „Svengdin er ekki það sem var erfitt við þetta“lítt þekkt ættartengsl naglinn og ritstjórinn Ragnhildur Þórðardóttir Ragga nagli hefur vakið mikla athygli fyrir kjarnyrta pistla sína um heilsu og mataræði. í lok vikunnar var tilkynnt að Ingibjörg Þórðardóttir hefði verið ráðin yfirmaður staf- ræns teymis á heimsvísu hjá CNN. Mun hún stýra alþjóðleg- um fréttum og íþróttaumfjöllun frá London, Hong Kong, Abu Dhabi, Lagos og New York. Ingibjörg starf- aði í um 15 ár hjá BBC áður en hún flutti sig um sett yfir til bandaríska risans árið 2015. Svo skemmtilega vill til að hér neð- ar á síðunni sýnir systir Ingibjargar, Ragnhildur Þórðardóttir, á sér hina hliðina. Ragnhildur, sem er betur þekkt sem Ragga nagli, hefur vakið mikla athygli fyrir hressi- lega og kjarn- yrta pistla um heilsu og matar- æði. Ragga býr í Kaupmannahöfn ásamt eiginmanni sínum en hún er klínískur heilsusálfræðingur að mennt en starfar fyrst og fremst sem einkaþjálfari í dag. Áhuginn vaknaði eftir viðvörun frá læknum Viðari var sagt að ef hann myndi ekki taka sig í gegn myndi hann fara í hjartastopp fyrir fimmtugt. Þá byrj-aði hann að lesa sér til um næringu. Mynd Mynd úR EinkaSafni. Ætlaði að fasta í tíu daga Viðar Freyr Guðmundsson rafeindavirki ætlaði að fasta í tíu daga en gafst upp eftir sex daga vegna svima. Næst ætlar hann að sleppa því að drekka sykurlaust gos. Mynd Mynd úR EinkaSafni. ingibjörg Þórðardótt- ir Landaði á dögunum stórri stöðu hjá CNN- fjölmiðlaris- anum. Líklega hefur enginn íslenskur fjöl- miðlamaður náð jafnlangt á erlendum vettvangi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.