Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2018, Blaðsíða 78
78 fólk Helgarblað 26. janúar 2018
hin hliðin
„Ég er evrópumeistari í liggjandi lúft-
gítar og borða mat sem dettur í gólfið“
Ragga nagli er klínískur heilsusálfræðingur og einka
þjálfari. Hún er nú stödd hér á landi og er önnum kafin
við að undirbúa kynningar og fyrirlestra sem eru fram
undan. Hún gaf sér tíma til að sýna lesendum DV á sér
hina hliðina og svara nokkrum undarlegum spurningum.
Hverjum líkist þú mest? Í útliti líkist ég
mest föður mínum. Ég er eins og stimpill af
honum, bæði í framan og í líkamsbyggingu.
Málfarslega líkist ég hins vegar móður
minni. Skapgerðin er mín eigin held ég, er
samt alltaf að reyna að líkjast meira mann-
inum mínum og hans stóísku ró.
Hvað halda margir um þig sem er alls
ekki satt? Að ég sé sjúklega sterk og heljar-
menni að burðum af því ég kalla mig Nagla.
En Nagla-titillinn er tilkominn því mér
leiðast afsakanir hjá sjálfri mér og vil alltaf
sækja á brattann og ögra sjálfri mér.
Hvað finnst þér að eigi að kenna í skólum
sem er ekki kennt þar núna? Samskiptatækni.
Hvernig við notum tungumálið til áhrifaríkari
samskipta. Það myndi koma í veg fyrir margan
ágreininginn, bæði faglega sem og í fjölskyldum.
Til viðbótar við það væri tilfinningalæsi gott
aukafag, þar sem við samþykkjum og leyfum
bæði okkur og öðrum að upplifa allt tilfinning-
arófið. Bæði neikvæðar og jákvæðar tilfinningar.
Ef þú þyrftir að eyða 100 þúsund krónum
á klukkutíma, í hvað verslun færirðu?
Nettó, útópíu heilsumelsins. Og ég myndi
eyða allri hýrunni í alls konar fyrir átvögl á
Heilsudögunum sem nú standa yfir og spara
mér þannig 25% af hverju gúmmelaði og
geta þá keypt enn meira fyrir aurinn.
Hvað viltu að standi skrifað á legsteinin-
um þínum? Það er betra að sjá eftir því sem
maður gerði, en því sem mann langaði að
gera en gerði ekki.
Ef þú mættir velja eitt lag sem yrði alltaf
spilað um leið og þú gengir inn í herbergi
allt þitt líf, hvaða lag myndirðu velja?
Don’t let the sun go down on me, dúettinn
með George Michael og Elton John. Það lag
á sérstakan stað í hjartanu.
Ef þú þyrftir að dansa til að bjarga
lífinu, undir hvaða lagi myndirðu vilja
dansa? Fjöllin hafa vakað með Egó. Ég er
Evrópumeistari í liggjandi lúftgítar.
Hvaða bíómynd hefurðu séð oftast? Eins
og öll velmegunarbörn áttunda áratugarins
þá get ég farið með Dirty Dancing afturábak
og áfram
Borðarðu mat sem er kominn fram yfir
síðasta söludag? Já, algjörlega. Ég þoli
ekki matarsóun. Borða líka mat sem dettur í
gólfið. Og mat sem er jafnvel farinn að lykta.
Ég held að þess vegna sé ég með svo sterkt
ónæmiskerfi og verð aldrei lasin.
Hvaða ósið hefur þér reynst erfiðast að
hætta? Er nýhætt að drekka sykurlaust gos
og er mjög stolt af að hafa masterað það.
Hins vegar hef ég margoft reynt að minnka
tyggjójórtrið mitt en án árangurs. Allir þurfa
að hafa einhvern löst er það ekki?
Um hvað geta allir í heiminum verið
sammála? Mikilvægi heimsfriðar.
Hvaða hljóð fer mest í taugarnar á þér?
Þegar einhver flautar lagstúf. Sérstaklega á
almannafæri.
Hvaða viðburði sérðu mest eftir að
hafa misst af? Brúðkaupi í Bahrain sem
okkur hjónum var boðið í. Okkur fannst það
svo dýrt ferðalag en við hefðum bara átt
að taka neyslulán, yfirdrátt, kúlulán eða
gúmmítékka. Lífið er nefnilega núna!
Hver er versta vinnan sem þú hefur
unnið? Í samlokusjoppu í Edinborg árið
2001 að búa til samlokur fyrir háskólanema
í hádegishléi. Það var ótrúlega leiðinleg og
lítið gefandi vinna fyrir hugrænan þroska og
sálartetrið.
Hvert er þitt stærsta líkamlega afrek í
lífinu? Úff, er að ná líkamlegum afrekum
reglulega í ræktinni en þau mælast yfirleitt
í nifteindum en gera mig þá þessum
millimetra betri í dag en í gær. Það getur
verið einni endurtekningu fleira, eða aðeins
þyngri lóð á stönginni, aðeins hærra stökk
eða erfið æfing sem ég hef ekki gert í langan
tíma og er skyndilega skítlétt.
Ef þú yrðir handtekin án skýringa, hvað
myndu vinir þínir og fjölskylda halda
að þú hafir gert af þér? Borðað af mat
annarra veitingahúsagesta.
Hvað ættu allir að prófa að minnsta
kosti einu sinni í lífinu? Að búa í útlöndum.
Það víkkar sjóndeildarhringinn að kynnast
menningarheimum, annarri pólitík, læra
nýtt tungumál. Maður öðlast víðsýni og
fordómaleysi við að tileinka sér ný gildi og
þekkja aðra siði og venjur.
Hvað verður orðið hallærislegt eftir
fimm ár? Að veipa.
Ef þú kæmir einn daginn heim úr
vinnunni og þar væri enginn nema
Sveppi í sturtu, myndirðu hringja í
lögregluna? Nehei, ég myndi rétta honum
hreint handklæði og bjóða honum svo að
setjast inn í stofu, fullklæddum auðvitað
og spjalla yfir LOHILO ís. Þá myndi ég þjálfa
kviðvöðvana með hláturskasti og þyrfti
ekki að fara í ræktina.
Hvaða einstakling finnst þér þú þekkja,
þótt þú hafir aldrei hitt hann? Adele. Fór
á tónleika með henni þar sem hún talaði
milli laga og ég væri til í að setjast inn í
eldhús með henni og borða kex og drekka te
og hlusta á hana tala um heima og geima.
Hún er alþýðleg, fyndin og skemmtileg.
Hvað er framundan um helgina? Verð
með kynningar á Heilsudögum Nettó að
kynna nýja LOHILO prótínísinn, nýtt vegan
prótín frá NOW og með fræðslu og ráðgjöf
um bætiefni og vítamín. Á sunnudag verð
ég síðan með erindi á ráðstefnunni Bara það
besta 2018 ásamt frábærum fyrirlesurum
eins og Ólafi Stefánssyni og Vilborgu Örnu.
Ragga nagli er virk á heimasíðu sinni og
samfélagsmiðlum undir eigin nafni:
www.ragganagli.com Instagram: ragganagli
Facebook/Ragga Nagli Snapchat: Ragga Nagli
Viðar fastaði í sex daga
l
andsmenn hafa
margir hverjir notað
áramótaheitin og jan-
úarmánuð til þess
að prófa eitthvað nýtt og
taka sig á í mataræðinu eft-
ir jólin. Viðar Freyr Guð-
mundsson rafeindavirki
valdi heldur óvenjulega
leið og ákvað að fasta. Við-
ar borðaði ekkert nema
salt og drakk einungis
vatn, kaffi og sykurlausa
gosdrykki. „Það að fasta er
bara fyrir lengra komna,
það á enginn að leggja
í þetta nema með smá
undirbúningi,“ segir Viðar
í samtali við DV.
„Áhugi minn á næringu
kom til eftir að ég fór til læknis í
nóvember 2016, ég var orðinn allt
of feitur með allt of háan blóð-
þrýsting og mér var hreinlega sagt
að ég myndi fara í hjartastopp fyr-
ir fimmtugt. Þá fór ég að lesa um
það hvernig það virkar að brenna
fitu í líkamanum og þá datt ég inn
á keto-mataræði.“ Keto gengur út
á að taka allt kolvetni úr matar-
æðinu, rúmlega 500 manns á Ís-
landi eru í þar til gerðum hóp á
Facebook þar sem skipst er á upp-
skriftum og ráðum. „Ég borðaði
nánast ekkert kolvetni í heilt ár,
en með nokkrum hléum, og tókst
að léttast um rúmlega 30 kíló. Ég
borðaði gjarnan spægipylsu með
osti á morgnana og mjög kol-
vetnalítinn kvöldmat.“
Í fyrrahaust byrjaði Viðar að
gera tilraunir með að fasta hluta
úr degi og borðaði jafnvel aðeins
kvöldmat. Í byrjun janúar ákvað
Viðar svo að reyna að fasta fyrir
alvöru. „Ég var kominn með
hálfan fótinn ofan í þá laug og
ákvað því að prófa. Mér skilst að
menn hætti að verða svangir eftir
nokkra daga, en ég komst ekki
á það stig og því bakkaði ég út
úr þessu.“ Viðar stefndi á að ná
tíu dögum en gafst upp eftir sex
daga. „Svengdin er ekki það sem
var erfitt við þetta. Ég var farinn
að vera blóðlítill og farinn að
finna til svima. Konan mín sagði
að ég væri orðinn húmorslaus.
Það var frekar þetta andlega en
líkamlega.“
Viðar segir að fastan hafi verið
auðveldari en hann hafði búist
við. „Þegar maður er vanur að
vera svangur þá er auðveldara að
komast yfir þetta. Svo fær maður
sér góðan vatnssopa og hættir að
hugsa um þetta. Svo mæli ég með
salti, það er alveg nauðsynlegt.“
Var þetta bara vatn og salt í sex
daga?
„Líka kaffi og te, svo drakk ég
líka sykurlaust gos. Það voru mis-
tök, þegar ég prófa þetta næst þá
ætla ég að sleppa því,“ segir Við-
ar og hlær.
Hvernig var svo að borða í
fyrsta sinn í sex daga?
„Ég fór beint aftur í keto-
mataræði, fékk mér smá kjúkling
með rjóma. Það var fínt.“ n
27 ára fastaði
í meira en ár
Skotinn Angus Barbieri er núverandi
heimsmethafi Guinness þegar kemur að
föstu. Hann var 27 ára í júlí 1966 þegar
hann fékk sér að borða, þá í fyrsta sinn
í heila 382 daga. Barberi var 214 kíló
þegar hann ákvað að gera þetta gegn
læknisráði, en hann leyfði læknum að
fylgjast með sér á tímabilinu og fjallað
var um málið í skosku vísindatímariti
árið 1973. Þegar föstunni lauk var hann
búinn léttast um 133 kíló.
„Svengdin er ekki það
sem var erfitt við þetta“lítt þekkt ættartengsl
naglinn og
ritstjórinn
Ragnhildur
Þórðardóttir
Ragga nagli hefur
vakið mikla athygli
fyrir kjarnyrta pistla
sína um heilsu og
mataræði.
í
lok vikunnar var tilkynnt að
Ingibjörg Þórðardóttir hefði
verið ráðin yfirmaður staf-
ræns teymis á heimsvísu hjá
CNN. Mun hún stýra alþjóðleg-
um fréttum og íþróttaumfjöllun frá
London, Hong Kong, Abu Dhabi,
Lagos og New York. Ingibjörg starf-
aði í um 15 ár hjá BBC áður en hún
flutti sig um sett yfir til bandaríska
risans árið 2015.
Svo skemmtilega
vill til að hér neð-
ar á síðunni sýnir
systir Ingibjargar,
Ragnhildur
Þórðardóttir, á
sér hina hliðina.
Ragnhildur, sem
er betur þekkt
sem Ragga nagli,
hefur vakið
mikla athygli
fyrir hressi-
lega og kjarn-
yrta pistla um
heilsu og matar-
æði. Ragga býr í
Kaupmannahöfn
ásamt eiginmanni sínum en hún
er klínískur heilsusálfræðingur að
mennt en starfar fyrst og fremst
sem einkaþjálfari í dag.
Áhuginn vaknaði eftir viðvörun frá læknum Viðari var sagt að ef hann myndi ekki taka sig í gegn myndi hann fara í hjartastopp fyrir fimmtugt. Þá byrj-aði hann að lesa sér til um næringu. Mynd Mynd úR EinkaSafni.
Ætlaði að fasta í tíu daga Viðar
Freyr Guðmundsson rafeindavirki
ætlaði að fasta í tíu daga en gafst
upp eftir sex daga vegna svima. Næst
ætlar hann að sleppa því að drekka
sykurlaust gos. Mynd Mynd úR EinkaSafni.
ingibjörg
Þórðardótt-
ir Landaði á
dögunum stórri
stöðu hjá CNN-
fjölmiðlaris-
anum. Líklega
hefur enginn
íslenskur fjöl-
miðlamaður
náð jafnlangt
á erlendum
vettvangi.