Morgunblaðið - 19.10.2017, Side 1
F I M M T U D A G U R 1 9. O K T Ó B E R 2 0 1 7
Stofnað 1913 246. tölublað 105. árgangur
STYRKJA
FLÓTTAFÓLK
TIL NÁMS
30 ÁR FRÁ
SVARTA
MÁNUDEGI
ÓPERAN TOSCA
ER RAMM-
PÓLITÍSK
VIÐSKIPTAMOGGINN ÍSLENSKA ÓPERAN 90STYRKTARSJÓÐUR 24
MJÚKA DEILDIN ÍSLENSK HÖNNUN SJÚKRAÞJÁLFARI AÐSTOÐAR
SÆNGUR-
FATNAÐUR
SÆNGUROG
KODDAR
HEILSURÚM
ALLARSTÆRÐIR
FUSSENEGGER
Kristín Gísladóttir
sjúkraþjálfari aðstoðar
við val á rúmdýnum.
Í DAG 16-18 Síðumúla 30 - Reykjavík | Sími 533 3500Hofsbót 4 - Akureyri | Sími 462 3504
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Laun og starfstengdar greiðslur fjöl-
skyldna og einstaklinga hækkuðu
mikið í fyrra og voru 84 milljörðum
kr. hærri en árið á undan. Ef þessi
hækkun er borin saman við launa-
greiðslur árið 2009 er um 11% vöxt
raunlauna að ræða í landinu.
Þetta kemur fram í ítarlegri út-
tekt Páls Kolbeins, rekstrarhag-
fræðings hjá ríkisskattstjóra, á
álagningu einstaklinga 2017, sem
birt er í Tíund, blaði embættisins.
72,3% þeirra sem voru með tekjur
greiddu tekjuskatt, sem er hærra
hlutfall en hefur sést í langan tíma.
Hins vegar jukust skuldir vegna
íbúðarhúsnæðis nú í fyrsta skipti frá
hruni um 28,9 milljarða á árinu.
„Það er ekki neinum blöðum um
það að fletta að árið 2016 ríkti aftur
góðæri í landinu sem minnti að
mörgu leyti á ástandið sem hér skap-
aðist fyrir tæpum áratug, rétt áður
en allt féll. Útlendingar streyma nú
til landsins, tekjur hafa aukist og
eignir hafa hækkað í verði,“ segir í
grein Páls.
Erlendir ríkisborgarar hafa aldrei
verið fleiri og eiga sífellt stærri hlut í
skattheimtunni, en fram kemur að
rétt um einn af hverjum átta fram-
teljendum var erlendur ríkisborgari
árið 2016. Stór hluti þeirra er á ald-
ursbilinu 21 til 30 ára eða 22,7% allra
framteljenda í þeim aldurshópi.
Páll segir að líkast til sé þessi
mikla fjölgun tímabundin ,,en ef er-
lendum ríkisborgurum á skatt-
grunnskrá heldur áfram að fjölga
um 27,3% á hverju ári eins og árið
2016 verða þeir orðnir fleiri en Ís-
lendingar á grunnskrá eftir rúm átta
ár“.
Innstæður einstaklinga í bönkum
hafa vaxið frá árinu 2013 og stóðu
þær í um 556 milljörðum í lok síðasta
árs og höfðu þá vaxið um 36,5 millj-
arða frá árinu áður.
„Þá áttu börn rúman 17,1 milljarð
á bankareikningum og fengu þau
rúmar 600 milljónir í vexti af þessum
innstæðum,“ segir í greininni.
Stórauknar tekjur og eignir
Börn eiga 17,1 milljarð á bankareikningum Skuldir jukust í fyrsta skipti eftir
hrun Einn af hverjum sex framteljendum á þrítugsaldri erlendur ríkisborgari
MFramtöl sýna … »20 og 22
Morgunblaðið/Ómar
Hús Fasteignir voru metnar á tæpa
3.596 milljarða en skuldir af íbúðar-
húsnæði jukust um 28,9 milljarða.
Katrín Jakobs-
dóttir, formaður
VG, segir „alla
sjá“ að hátekju-
skattur sé „ekki
risavaxinn tekju-
stofn“ fyrir ríkið.
VG leggur til há-
tekjuskatt á árs-
tekjur yfir 25
milljónir.
Þá kveðst
Katrín styðjast við nýja skýrslu ASÍ
um skattbyrði annars vegar og
greiningu Indriða H. Þorlákssonar,
fv. ríkisskattstjóra, hins vegar hvað
varðar aukna skattbyrði allra hópa
nema tekjuhæstu tíundarinnar.
Róbert Farestveit, hagfræðingur
hjá ASÍ, segir það ekki koma fram í
skýrslu ASÍ að skattbyrði allra
hópa nema tekjuhæstu tíundar-
innar hafi aukist síðustu ár. »6
Hátekjuskattur skili
ekki miklum tekjum
Katrín
Jakobsdóttir
Mikið rok var á Suðvesturlandi í gær og fengu haustlaufin mörg hver að
fjúka af trjánum í sinn hinsta dans. Áfram blæs í dag. Það má búast við
stífri austanátt, 10-15 m/s víða um land en stormi með suðurströndinni þar
sem búast má við svipuðum vindhraða og í gær. Spáð er talsverðri úrkomu
á Suðausturlandi og Austfjörðum en hefðbundinni rigningu annars staðar,
hiti verður 6 til 10 gráður á landinu.
Laufblöðin fengu mörg hver að fjúka
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þjóðskrá Ís-
lands fær 34.000
til 36.000 lög-
heimilistilkynn-
ingar inn á sitt
borð ár hvert, en
rangar skrán-
ingar eru áætl-
aðar um 1-2%
allra flutninga.
Miklar umræð-
ur hafa nú skap-
ast í hópi á Facebook þar sem fólk
deilir sögum af reynslu sinni og
annarra af röngum lögheimilis-
skráningum. Segjast sumir hafa
fengið heimsókn úr undirheimum
vegna rangra skráninga. »48
Undirheimar bönk-
uðu ranglega upp á
Hús Eru allir rétt
skráðir til heimilis?
Basic Events,
fyrirtækið sem á
skemmtihlaupin
Color Run og
Gung-Ho á Ís-
landi, ætlar að
halda á annan tug
hlaupa í Skandin-
avíu á næsta ári,
en fyrirtækið hef-
ur eignast réttinn fyrir öll Norður-
lönd. Áætlanir gera ráð fyrir að um
70 þúsund manns taki þátt. „Við bú-
um að reynslunni sem við höfum öðl-
ast hér heima með Color Run síðast-
liðin þrjú ár og Gung-Ho nú í
sumar,“ segir Davíð Lúther
Sigurðarson. »ViðskiptaMogginn
Íslensk Gung-Ho og
Color Run útrás
Color Run Banda-
rískt að uppruna.