Morgunblaðið - 19.10.2017, Síða 4
4 FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 2017
Smart föt, fyrir smart konur
Holtasmári 1
201 Kópavogur
sími 571 5464
Str. 38-52
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Vinstri hreyfingin – grænt framboð
(VG) ver 30 milljónum króna til kosn-
ingabaráttunnar að þessu sinni. Sam-
fylkingin hefur 13 milljónir króna úr
að spila í kosningabaráttunni. Þetta
kom fram í samtölum við Björgu Evu
Erlendsdóttur, framkvæmdastjóra
VG, og Hrannar Arnarsson, kosn-
ingastjóra Samfylkingarinnar. Fjár-
hæðin sem VG ver í baráttuna nú er
nokkru lægri en fyrir þingkosning-
arnar í fyrra, en þá var hún 34,5 millj-
ónir. Hjá Samfylkingunni er upp-
hæðin langtum lægri en í fyrra þegar
kosningabaráttan kostaði flokkinn
um 40 milljónir króna.
Björg Eva segir að útgjöld vegna
landsfundar flokksins sem haldinn
var dagana 6.-8. okt. séu inni í töl-
unni. Þá er innifalinn rúmlega 400
þúsund króna styrkur til hvers kjör-
dæmanna sex, samtals um 2,5 millj-
ónir króna. Flokksmenn í hverju
kjördæmi afla síðan fjár sem skrif-
stofan í Reykjavík hefur ekki yfirsýn
yfir að svo stöddu.
Um tveir þriðju útgjaldanna hjá
VG fara í auglýsingar og birtingar
hjá fjölmiðlum. Minnst er auglýst í
sjónvarpi enda er það dýrast. „Sam-
félagsmiðlar eru mikið notaðir, face-
book mest, en líka twitter, instagram
og snapchat,“ segir Björg Eva. „Öll
kjördæmin hafa ráðið sér kosninga-
stjóra í nokkrar vikur, sem vinna
með föstu starfsfólki í kosninga-
stjórnarteymi, en önnur þjónusta
sem við kaupum er af birtingahúsi og
við kaupum vinnu við hönnun, sam-
félagsmiðla, heimasíðugerð og fjár-
öflun.“
Um 2,5 milljónir króna af kosn-
ingafé Samfylkingarinnar fara til fé-
laganna í kjördæmunum sex, en þau
munu að auki reyna að afla fjár á
sjálfstæðan hátt. „Stærstur hluti út-
gjaldanna, um átta milljónir króna,
fer í gerð kynningarefnis og birtingu
auglýsinga, en aðeins einn starfs-
maður hefur verið ráðinn til Samfylk-
ingarinnar í fullt starf vegna kosn-
ingabaráttunnar á landsvísu,“ segir
Hrannar.
„Ég veit það hljómar mjög lágt,“
bætir Hrannar við, „enda er það
mjög lágt, en þannig er það. 13 millj-
ónir í heild, plús möguleg viðbót í ein-
stökum kjördæmum, sem ég fæ ekki
upplýsingar um fyrr en ársreikning-
ar verða gerðir fyrir Samfylkinguna í
heild“.
Kosningabaráttan kostar
VG 30 milljónir króna
Samfylkingin ver 13 milljónum til kosningabaráttunnar
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Kosningaútgjöld Hluti kostnaðar VG er vegna nýlegs landsfundar.
Hrannar Björn
Arnarsson
Björg Eva
Erlendsdóttir
Jón Gunnarsson samgöngu-
ráðherra ætlaði að halda opinn há-
degisfund með Vestmannaeyingum
í hádeginu í gær. Hætt var við fund-
inn þegar flugi var aflýst í gær-
morgun og Herjólfur sigldi til Þor-
lákshafnar. Flugfélagið Ernir náði
svo að komast til Eyja í hádeginu en
þá var búið að blása fundinn af.
Elliði Vignisson bæjarstjóri sagði
það algengt að truflanir á sam-
göngum settu strik í reikninginn.
„Ég held að það hafi verið von á
gestum ofan af landi á þrjá fundi
hjá Vestmannaeyjabæ í morgun.
Fresta þurfti öllum fundunum
vegna veðurs,“
sagði Elliði í
gær. Hann sagði
að röskun á sam-
göngum fylgdi
því að búa á eyju
og fólk vissi af
því.
„En við erum
orðin langeyg
eftir varanlegri
lausn í Landeyjahöfn. Þegar við
ferðumst verðum við alltaf að vera
með plan A, B og C og stundum
gengur ekkert þeirra eftir,“ sagði
Elliði. gudni@mbl.is
Samgönguráðherra fékk ekki far til Eyja
Jón Gunnarsson
Stjórn Blaðamannafélags Íslands fordæmir lög-
bann sýslumannsins í Reykjavík á frekari birt-
ingu frétta sem byggðar eru á gögnum úr Glitni
banka sem Stundin og Reykjavík Media hafa
undir höndum. Í ályktun stjórnar Blaðamanna-
félagsins er þess krafist að lögbannið verði þegar
látið niður falla.
„Ákvörðun embættis sýslumannsins í Reykja-
vík er stórlega gagnrýniverð. Miklu valdi fylgir
mikil ábyrgð. Það er ávallt stóralvarlegt mál að
leggja hömlur á tjáningarfrelsi í lýðfrjálsum
löndum, en það er sérdeilis alvarlegt þegar það
er gert í aðdraganda almennra þingkosninga. Í
því ljósi er ákvörðun sýslumannsins í Reykjavík
fullkomlega óskiljanleg. Það bætir svo gráu ofan
á svart að gögnin höfðu verið til umfjöllunar í
fjölmiðlum í nærfellt tvær vikur áður en lögbann-
ið var sett, þannig að það bar enga nauðsyn til
þess að grípa til svo afdrifaríkra aðgerða gagn-
vart tjáningarfrelsinu í landinu,“ segir í álykt-
uninni.
„Ekkert annað en opin og heiðarleg umræða
er til þess fallin að uppræta það vantraust sem
ríkir í íslensku samfélagi og til þess þarf að
styrkja tjáningarfrelsið í sessi, en ekki leggja
hömlur á það. Leyndarhyggja á aldrei rétt á
sér,“ segir þar ennfremur.
Grefur undan frelsi fjölmiðla
Harlem Désir, fulltrúi um frelsi fjölmiðla hjá
Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu, lýsti í gær
áhyggjum af umræddu lögbanni. „Það að koma í
veg fyrir allan fréttaflutning af þessu máli er of
langt gengið og grefur undan frelsi fjölmiðla,
sem og rétti almennings til upplýsinga,“ sagði
hann. hdm@mbl.is
Lögbannið „stóralvarlegt mál“
Stjórn Blaðamannafélags Íslands krefst þess að lögbann á fréttir Stundarinnar
verði látið niður falla Fulltrúi hjá ÖSE segir það grafa undan frelsi fjölmiðla
Um 20 þúsund
manns á aldrinum
20-29 ára búa í for-
eldrahúsum hér á
landi um þessar
mundir. Hefur
fjölgað hratt í
þessum hópi und-
anfarið. Til-
tölulega stórir ár-
gangar ungs fólks
hafa komið inn á fasteignamarkaðinn
á undanförnum árum. Á sama tíma
hafa nýbyggingar ekki verið færri
síðan á sjötta áratugnum.
Ofan á hæga uppbyggingu hefur
bæst aukin skammtímaleiga íbúða til
ferðamanna. Á Húsnæðisþingi í byrj-
un vikunnar kom fram að um 1,2%
íbúða á höfuðborgarsvæðinu hafa
verið í leigu á Airbnb í 180 daga eða
fleiri síðasta árið. Á landsbyggðinni
er vandinn gjarnan sá að markaðs-
verð húsnæðis er undir bygging-
arkostnaði.
Fjöldi íbúa á hverja íbúð hér á
landi hefur aukist undanfarin ár á
meðan þeim hefur farið fækkandi
annars staðar á Norðurlöndum. Í dag
eru um 2,5 íbúar í hverri íbúð á Ís-
landi en annars staðar á Norð-
urlöndum eru um 2 íbúar í hverri
íbúð.
Sigrún Ásta Magnúsdóttir, verk-
efnisstjóri hjá Íbúðalánasjóði, greindi
frá því að flest sveitarfélög á landinu
ynnu nú að gerð húsnæðisáætlana í
samstarfi við Íbúðalánasjóð. Mark-
miðið með húsnæðisáætlunum sé að
tryggja að fjölgun íbúða í einstökum
sveitarfélögum og á landinu öllu sé í
takt við mannfjöldaspár og breyttar
fjölskyldugerðir.
Sagði Sigrún að 48 sveitarfélög
hefðu hafið vinnu við húsnæðisáætlun
og eru 15 þeirra ýmist langt komin
eða hafa birt áætlun.
Sífellt fleiri
fastir í for-
eldrahúsum
2,5 íbúar í
hverri íbúð hér
Skortur Húsnæði.
Fjölbreytt dagskrá var á fyrri degi
heimsóknar forsetahjónanna
Guðna Th. Jóhannessonar og Elízu
Reid í Norðurþingi í gær.
Dagskráin hófst á Hveravöllum
þar sem þau kynntu sér vistvæna
ræktun grænmetis. Að því búnu
héldu forsetahjónin á leikskólann
Grænuvelli þar sem nemendur á
Árholti buðu þeim á barnafund.
Forsetinn opnaði nýja deild á leik-
skólanum Róm, og í kveðjuskyni
færðu nemendur Guðna og Elízu
falleg hálsmen og mynd í ramma
með einkunnarorðum leikskólans.
Þau heilsuðu upp á hina 96 ára
Huldu Þórhallsdóttir í Árholti,
næstelsta húsinu á Húsavík, og
sungu með nemendum á sal Borg-
arhólsskóla.
Guðni og Elíza komu við á dval-
arheimilinu Hvammi, í Safnahúsinu
og í Húsavíkurkirkju. Þá gæddu
þau sér á hákarli í Helguskúr hjá
Helga Héðinssyni, sem hann veiðir
og verkar ásamt félaga sínum.
Heimsókninni lýkur í dag. Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Sungu með
krökkunum
á Húsavík