Morgunblaðið - 14.12.2017, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 2017
holar@holabok.is — www.holabok.is
Hún lék hlutverk sitt
sem harður sjómaður
þar til hún gat ekki
meira og ákvað að
bertjast fyrir tilveru
sinni sem kona.
Mergjaðar frásagnir
af Héraðsmönnum.
Gamansögur af
íslenskum
sjómönnum.
Átök á hafi úti,
óvenjulegar jólagjafir,
örnefni á hafsbotni,
sviptingar í pólitík og
margt fleira.
Íslandstengdar
frásagnir úr seinni
heimsstyrjöldinni.
Fróðlegar og fyndnar!
Þrátt fyrir kulda hefur viðrað til útiveru í borg-
inni síðustu daga. Loftið er himinblátt en nærri
jörðu sjá stundum sjá gula móðu mengunar, svo
sem þegar birtu bregður síðdegis. Það mátti sjá
á Ægisíðunni í Reykjavík þar sem listaverk Ás-
mundar Sveinssonar, Björgun úr sjávarháska,
setur svip sinn á umhverfið. Kalt verður fram að
helgi, en þá fer að hlýna þótt inn á milli komi
sýnishorn af öðrum veðrabrigðum.
Gengið við listaverk Ásmundar Sveinssonar á Ægisíðunni
Morgunblaðið/Eggert
Loftið himinblátt á svölu síðdegi á Ægisíðu
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Ríkið þarf að móta sér heildstæða
stefnu í þessum gjaldtökumálum og
það þarf að gera í samstarfi við
ferðaþjónustuna. Við köllum eftir
þessu samtali sem ríkisstjórnin legg-
ur til í stjórnarsáttmálanum hið
fyrsta,“ segir Helga Árnadóttir,
framkvæmdastjóri Samtaka ferða-
þjónustunnar.
Í nýrri ályktun samtakanna er
kallað eftir að sett verði á laggirnar
nefnd um tekjuöflun ríkis og sveitar-
félaga af ferðaþjónustu í samstarfi
við atvinnugreinina. Nefndin hafi
það að markmiði að tryggja heild-
stæða nálgun hvað varðar gjaldtöku
almennt af greininni.
Samtökin áætla að á síðasta ári
hafi beinar nettótekjur ríkis og sveit-
arfélaga numið um 54 milljörðum
króna af ferðaþjónustunni. Því skjóti
það skökku við að kröftum ríkisins sé
helst beint að því að ná í aukna fjár-
muni með frekari skattheimtu á
greinina. Gistináttagjald á hótel og
gistiheimili hafi hækkað á árinu um
200% og útlit sé fyrir að álögur á
bílaleigur hækki um áramótin. Þá sé
stefnt að því í nýjum stjórnarsátt-
mála að taka til að mynda upp komu-
og brottfarargjöld sem og hvers kon-
ar þjónustugjöld.
Upphæðir út úr kortinu
Sérstaklega eru gagnrýnd nýleg
áform Isavia um innheimtu bíla-
stæðagjalda fyrir hópferðabíla við
Leifsstöð sem hefjast eiga í mars á
næsta ári. Þar tilkynni Isavia, sem er
opinbert hlutafélag í eigu ríkisins,
með þriggja mánaða fyrirvara að
hefja eigi gjaldtöku.
„Þessar upphæðir eru alveg út úr
kortinu. Þetta er komið út fyrir öll
velsæmismörk,“ segir Helga sem
telur að upphæðirnar sem nefndar
eru til sögunnar og aðferðafræðin sé
ekki í neinu samræmi við það sem
gerist og gengur á flugvöllum í Evr-
ópu eða á öðrum svæðum.
„Gangi áætlanir Isavia ohf. eftir
mun gjaldið fyrir að stoppa í stæði
300 metra frá flugstöðunni til að taka
á móti ferðamönnum vera 7.900
krónur fyrir hópbifreiðar með 19 eða
færri sæti en 19.900 krónur fyrir bif-
reiðar með fleiri en 20 sæti. Í Lond-
on er sambærilegt gjald um 3.900
krónur á Heathrow og 2.400 krónur
á Gatwick. Við höfum spurt Isavia
hvort þeir þekki til samsvarandi
gjaldtöku en það gera þeir ekki frek-
ar en við.“
„Komið út fyrir velsæmismörk“
Samtök ferðaþjónustunnar gagnrýna áform Isavia um innheimtu bílastæðagjalda við Leifsstöð
Upphæðirnar séu allt að fimm sinnum hærri en í London Kalla eftir heildstæðri stefnu yfirvalda
Morgunblaðið/Ómar
Ferðamenn SAF kalla eftir heild-
stæðri stefnu í gjaldtökumálum.
Samningaviðræðum lauk ekki í tví-
hliða viðræðum um gagnkvæmar
fiskveiðiheimildir Íslendinga og
Færeyinga í Þórshöfn í vikunni.
Ráðherrarnir Kristján Þór Júl-
íusson og Högni Höydal leiddu við-
ræðurnar, en embættismenn tóku
einnig þátt í þeim.
Færeyingar hafa haft heimild til
að veiða allt að 30 þúsund tonn af
loðnu hér við land og 5.600 af bol-
fiski, þar af 2.400 tonn af þorski. Ís-
lendingar hafa hins vegar veitt kol-
munna og fleiri uppsjávartegundir
í færeyskri lögsögu.
Ekki var ákveðið með framhald
viðræðna, en núgildandi samningur
rennur út um áramót, samkvæmt
upplýsingum Jóhanns Guðmunds-
sonar skrifstofustjóra. aij@mbl.is
Ekki náðust samn-
ingar við Færeyinga
„Hafa ber í huga að ekki er línu-
legt samband á milli fjölgunar
ferðamanna og afkomu grein-
arinnar. Blikur eru á lofti. Sam-
keppnisstaða ferðaþjónust-
unnar við aðra áfangastaði
hefur versnað á árinu, m.a.
vegna mikilla launahækkana,
fjármagnskostnaðar og styrk-
ingar á gengi krónunnar,“ segir
í ályktun Samtaka ferðaþjón-
ustunnar.
Segja blikur
vera á lofti
VARA VIÐ GJALDTÖKU
Lögregla rannsakar nú árás á tíu
ára stúlku sem var á gangi í
Garðabæ síðdegis á mánudag.
Stúlkan slapp frá árásarmann-
inum en talið er að hann sé pilt-
ur á aldrinum 17-19 ára.
Sævar Guðmundsson, aðal-
varðstjóri lögreglunnar í Hafn-
arfirði, staðfesti við mbl.is að at-
vikið hefði komið á borð
lögreglu.
Móðir stúlkunnar lýsir því
þannig að þrjár stúlkur hafi ver-
ið á gangi þegar þær urðu varar
við unglingspilt sem hafði horft
á þær og veitt þeim eftirför.
„Skyndilega greip hann í dóttur
mína og tók hana hálstaki um
leið og hann tók um munn henn-
ar og dró hana með sér í burtu,“
skrifaði móðirin á Facebook.
„Þær sáu því miður ekki framan
í hann því hann var með hettu
sem huldi að mestu andlit hans.“
Ráðist á tíu ára
stúlku í Garðabæ
Anna María
Gunnarsdóttir
hefur verið kjör-
in varaformaður
Kennarasam-
bands Íslands.
Hún hlaut tæp
53% greiddra at-
kvæða en fjórir
voru í framboði.
Ríflega tíu
þúsund manns
voru á kjörskrá og greiddu 30,34%
atkvæði. Atkvæðagreiðslan var raf-
ræn og stóð í viku.
Anna María tekur við varafor-
mannsembættinu af Aðalheiði
Steingrímsdóttur á þingi Kenn-
arasambandsins í apríl.
Nýr varaformaður KÍ
Anna María
Gunnarsdóttir