Morgunblaðið - 14.12.2017, Page 20

Morgunblaðið - 14.12.2017, Page 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 2017 Rekstrarland | Vatnagörðum 10 | 104 Reykjavík | Söluver 515 1100 | rekstrarland.is Rekstrarland er hluti af Olís TILBOÐ 965.000 KR. án vsk. SÉRHÆFÐUR FRYSTISKÁPUR TIL IÐNAÐARNOTA BioUltra UL570 er sérhæfður frystiskápur, þróaður af Gram í Danmörku til nota á rannsóknarstofum í lífefnafræðilegum- og/eða iðnaðartilgangi í samræmi við ströngustu öryggiskröfur. Frystigeta: -60 til -85ºC, tvískipt frystirými. Kynningarverð til áramóta aðeins 965.000 án vsk. P IP A R \T B W A • SÍ A BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Væntingar um að borgarlínan muni þrefalda hlutdeild almenningssam- gangna á höfuðborgarsvæðinu eru óraunhæfar. Það sama gildir um áætl- uð áhrif hennar á notkun einkabíla. Þetta segir Þórarinn Hjaltason um- ferðarverkfræðingur. Hann rifjar upp skýrslu danska ráðgjafafyrirtækisins Cowi um borgarlínuna í janúar á þessu ári. Meðal höfunda skýrslunnar er Lilja G. Karlsdóttir samgönguverkfræð- ingur. Hún er nú ráðgjafi sveitar- félaganna vegna borgarlínu. Í skýrslunni var vísað til könnunar á ferðamáta íbúa höfuðborgarsvæð- isins. Bendir hún til að hlutur gang- andi og hjólandi sé 20%, hlutur strætó 4% og hlutur einkabíla 76%. Þórarinn rifjar upp að í skýrslunni sé áætlað að árið 2040 verði hlutur gangandi og hjólandi 30%, hlutur strætó 12% og hlutur einkabíla 58%. Hefði lítil áhrif á stofnbrautum „Ég efast um að hlutfall gangandi og hjólandi fari úr 20% í 30%. Jafnvel þótt hlutfallið fari í 30% eru það auð- vitað að meðaltali styttri ferðir. Því er óvíst að aukningin dragi úr umferðar- magni á Vesturlandsvegi, Hafnar- fjarðarvegi og Reykjanesbraut, svo dæmi séu tekin. Þar er fólk að meðal- tali að fara tiltölulega langar leiðir. Þeir sem skipta frá einkabíl yfir í að ganga eða hjóla gera það frekar á styttri ferðum. Það dregur meira úr umferð á safnbrautum en umferðar- mestu þjóðvegum. Þótt þetta gengi eftir, og hlutfall gangandi og hjólandi færi úr 20 í 30%, myndi ég ætla með fyrirvara að umferð á þjóðvegum gæti minnkað um 2% fyrir vikið.“ Þórarinn, sem var yfirverkfræð- ingar umferðardeildar borgarverk- fræðings 1986-1992 og bæjarverk- fræðingur Kópavogs 1992 til 2006, telur að þótt hlutfall strætó af öllum ferðum myndi t.d. ná 8% myndi bíla- umferð aðeins minnka um 3 til 4%. „Ég hef miklar efasemdir um þessi markmið. Ég myndi kalla það krafta- verk ef hlutfall strætó á höfuðborgar- svæðinu færi í 8%. Reynslan sýnir að aukin þjónusta strætó hefur lítið fjölgað farþegum. Svo er það tilkoma sjálfkeyrandi bíla. Sjálfkeyrandi leigubílar eru komnir í notkun í Singapúr. Ég spái að sjálfkeyrandi strætisvagnar verði álíka snemma á ferð og sjálfkeyrandi leigubílar. Þetta gæti orðið eftir 5-7 ár. Hraðinn í inn- leiðingunni mun að hluta ráðast af löggjöfinni. Það verður erfitt fyrir strætó að keppa við sjálfkeyrandi leigubíla sem fólk notar saman og sem aka með það beint að vinnu- staðnum.“ Eins og rakið er í rammagrein hér til hliðar er stefnt að stórfelldri upp- byggingu meðfram borgarlínunni til að treysta grundvöll hennar. Gæti kallað á 23 þús. íbúðir Rætt er um allt að 50 þúsunda manna byggð á þessum svæðum. Miðað við að 2,2 muni að meðaltali búa í hverri íbúð gæti þetta kallað á allt að 23 þús. nýjar íbúðir. Meðal- fjöldi íbúa á íslenskum heimilum minnkar ár frá ári. Kostnaður við að byggja 23 þús. íbúðir er ekki undir 1.000 milljörðum. Sveitarfélögin boða innviðagjald ofan á íbúðaverð til að borga fyrir hluta kostnaðar við borg- arlínuna. Vitna þessar tölur um hversu tröllaukið verkefni er á ferð. Rætt er um að borgarlínan geti kost- að 63 til 70 milljarða og 1. áfanginn 22 milljarða. Fram hefur komið að fram- kvæmdir geti hafist 2020. Spurður hvaða áhrif það kann að hafa á notk- un almenningssamgangna að breyta byggðamynstri á þennan hátt segir Þórarinn að ekki megi ofmeta áhrifin. Hjóla frekar en fara í strætó „Ég get tekið undir að með þéttari byggð mun hlutur gangandi og hjól- andi aukast. Spurningin er hversu mikið. Ég tel að þeir sem dragi úr notkun einkabíls vegna þéttingar byggðar fari að hluta til á hjóli frem- ur en að taka strætó.“ Máli sínu til stuðnings tekur Þór- arinn dæmi af bresku borginni Stevenage í útjaðri Lundúna. Þar hafi aukin notkun strætisvagna eftir uppbyggingu hraðleiðakerfis vissu- lega aukið notkunina. Stór hluti þeirrar aukningar hafi hins vegar verið vegna farþega sem lítið notuðu strætó áður, eða voru farþegar í einkabíl. Umferð einkabíla minnkaði aðeins um 4%. Trausti Valsson, prófessor emer- itus í skipulagsfræði við Háskóla Ís- lands, skrifaði skipulagssögu Reykja- víkur í bókinni Reykjavík - Vaxtar- broddur sem út kom 1986. Trausti telur borgarlínuna í ætt við fyrri útópískar hugmyndir í skipu- lagsmálum sem ekki urðu að veru- leika. Nefnir hann til dæmis hug- myndir um að rífa Grjótaþorpið til að ríma fyrir háhýsum og hraðbraut undir þá byggð. Hraðbrautin átti að tengjast Geirsgötu sem lægi á stöpl- um í útjaðri hafnarinnar. Hluti braut- arinnar er þakið á Kolaportinu. Aust- an við svæðið er að rísa Hafnartorg. Víti til að varast „Tillögur danskra sérfræðinga um nýtt hraðbrautakerfi í Reykjavík voru samþykktar með 15 samhljóma atkvæðum í borgarstjórn Reykjavík- ur. Nefna mætti fleiri dæmi sem gefa tilefni til að vera á varðbergi fyrir stórkarlalegum hugmyndum. Það sem er nú í uppsiglingu með borgar- línu er gríðarlega víðtækt. Það nær ekki aðeins til Reykjavíkur heldur til alls höfuðborgarsvæðisins. Á fyrir- huguðum þéttingarásum eiga að búa jafn margir og nú gera samanlagt í Kópavogi og Garðabæ. Hvað munu til dæmis íbúar á Flötunum í Garðabæ segja þegar búið er að reisa háar fjöl- býlishúsalengjur meðfram Hafnar- fjarðarvegi? Útsýni út á sjó hverfur með slíkum byggingarmassa,“ segir Trausti. Hann bendir á að fyrirhuguð íbúðabyggð við borgarlínuna verði meðfram helstu umferðaræðum höfuðborgarsvæðisins. Þar verði því mikið ónæði af umferð. Þeir sem búi við borgarlínuna muni hafa skarkala miðborgar en án þeirra kosta sem út- hverfi bjóða, eins og meira rýmis og grænna svæða. Hugsi borgarlínuna upp á nýtt  Umferðarverkfræðingur telur áhrif fyrirhugaðrar borgarlínu á ferðavenjur vera mjög ofmetin  Prófessor í skipulagsfræði telur borgarlínuna enn eitt dæmið um útópíu í skipulagsmálunum Þórarinn Hjaltason Trausti Valsson Heimild: Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu Við Ásgarð GARÐABÆR Miðbær Hafnarfjarðar SELTJARNARNES Eiðistorg B Hamraborg BSÍ Glæsibær Kringlan Breiðhöfði HAFNARFJÖRÐUR KÓPAVOGUR MOSFELLSBÆR Fyrirhuguð staðsetning kjarnastöðva REYKJAVÍK B B Samkvæmt tillögu að breyttu aðalskipulagi vegna borgarlínu B B B B B B B B B B B B B Við Háholt Mjódd Vogabyggð Smáralind Hlemmur Fyrirhuguð kjarnastöð Borgarlínu Lands-, svæðis- og bæjarkjarnar Samkvæmt kynningarefni á vef Samtaka sveitarfélaga á höfuð- borgarsvæðinu (SSH) er gert ráð fyrir miðkjörnum byggðar með- fram samgöngu- og þróunarásum (sjá kort fyrir ofan). Verktakar hafa fylgst grannt með þessum áformum. T.d. hafa fjárfestar keypt lóðir austur af Hamraborg. Athygli vekur að stærsta þróunarsvæðið nær yfir svæði flugvallarins í Vatnsmýri. Hug- myndir eru um að borgarlínan liggi yfir fyrirhugaða brú í Fossvogi sem tengja mun Kársnes og Vatnsmýri. Fram kom í Morgunblaðinu í sumar að ekki færri en 40-50 þús- und manns ættu að búa á þessum þróunarsvæðum árið 2040. Trausti Valsson skrifar í umsögn til SSH að á upptökusvæðum (samgönguásum) búi nú mun færri íbúar en þörf sé á til að standa undir rekstri borgarlínu. „Þess vegna gerir skipulagstil- lagan ráð fyrir að meðfram borgar- línunum verði, á báða vegu, reist þétt blokkabyggð, sem u.þ.b. tvö- faldi íbúafjöldann á upptökusvæð- unum til ársins 2040 … Kostur við að búa í þessum blokkum er að stutt er í strætó eða lest, en ókostirnir eru hins vegar margir: Þéttleiki svæðanna og lega húsanna upp að línunum þýðir að lítið yrði um garða og bílastæði. Svona línubyggð nær, að auki, aldrei að vera skemmtileg mið- borgarbyggð, heldur er byggðin langdregin og leiðinleg.“ Trausti segir aðspurður gefið í skyn að þéttingarásarnir verði miðborgarsvæði. Að nýir íbúar muni draga til sín þjónustu. Hann efast um það og nefnir sem dæmi að í Bryggjuhverfi við Grafarvog hafi átt að vera ýmis þjónusta. Raunin sé önnur. Við Suðurlands- braut í Reykjavík sé dæmi um langa byggð sem skorti sjarma miðborgarsvæða, tjarnir og garða. „Byggð meðfram svona sam- gönguásum verður ekkert augna- yndi. Rætt er um að innviðagjald við borgarlínuna standi undir hluta kostnaðar við hana og að vegna nálægðar við línuna muni fermetri seljast á hærra verði en annars staðar. Það er óraunsætt. Það verður ekki spennandi að búa í lengju meðfram Hafnarfjarðar- vegi,“ segir Trausti. Tugþúsundir búi í miðkjörnum ÞÉTTA Á BYGGÐ MEÐFRAM BORGARLÍNUNNI
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.