Morgunblaðið - 14.12.2017, Page 32
32
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 2017
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Ragnar Axelsson hefur flogið þrjár ferðir yfir
Öræfajökul frá því að sigketillinn sást fyrst 17.
nóvember. Hann flaug fyrstu ferðina 19. nóv-
ember, aftur 28. nóvember og svo þriðju ferðina
11. desember. Vísindamenn í Eldfjallafræði- og
náttúruvárhópi HÍ áætluðu eftir myndunum að
sigketillinn hefði verið 22 metra djúpur og um
kílómetri í þvermál 19. nóvember. Eftir flugið
28. nóvember mældist ketillinn um 1.200 m í
þvermál, á milli ystu sjáanlegu sprungna, og
samkvæmt þrívíddarmyndunum var áætlað að
ketillinn væri orðinn tvöfalt dýpri eða yfir 40
metra djúpur. Verið er að ganga frá þrívíddar-
líkani og samsettri loftmynd eftir þriðja flugið.
Ratsjármæling úr lofti
Vísindamenn frá Jarðvísindastofnun flugu
yfir jökulinn í flugvél Flugmálastjórnar 18. nóv-
ember, 27. nóvember og 11. desember og
mældu yfirborð jökulsins með flughæðarradar.
Þeir taka það fram að þegar mælt er að vetr-
arlagi á hájöklum, eins og á Öræfajökli, þurfi að
leiðrétta fyrir svokallaðri kuldabylgju.
„Hjarnið frýs á veturna og þá kemur endur-
kast ekki frá yfirborðinu heldur frá fleti niðri í
hjarninu þar sem það er við frostmark. Ef mið-
að er við fyrstu mælingu, 18. nóv., er þessi leið-
rétting talin vera 30 cm 27. nóv. og 85 cm 11.
desember. Með leiðréttingunni næst gott sam-
ræmi milli hæðarmælinga utan við ketilinn.
Innbyrðis nákvæmni mælinganna er talin 1
metri,“ segir í upplýsingablaði frá Jarð-
fræðistofnun Háskóla Íslands.
Samkvæmt radarmælingunum var mesta
dýpi sigketilsins 17 metrar 18. nóvember, 21
metri 27. nóvember og 23 metrar 11. desember.
Þrívíddarmyndir eftir ljósmyndum
Ingibjörg Jónsdóttir, dósent í landfræði við
HÍ, er einn vísindamannanna sem mynda Eld-
fjallafræði- og náttúruvárhópinn. Hún hefur
unnið þrívíddarmyndir eftir ljósmyndum Ragn-
ars Axelssonar og áætlað út frá þeim breyt-
ingar sem orðið hafa á yfirborði jökulsins. Hún
segir að ljósmyndirnar og líkönin sem byggð
eru á þeim segi heilmikla sögu um breyting-
arnar í jöklinum. Ljósmyndirnar sýna endur-
varp frá yfirborði jökulsins, sem er veigamikið í
þessu tilfelli, og sýna þar að auki mikilvæg smá-
atriði og breytingar í yfirborði jökulsins. Lögun
ketilsins hafi greinilega breyst á þessu tímabili,
sprungumynstrið orðið flóknara og komnir
stallar á milli sprungna.
Ljósmyndir RAX eru ótrúlega nákvæmar,
þrátt fyrir erfið birtuskilyrði og tiltölulega eins-
leitt yfirborð.
Ingibjörg var spurð hvers vegna muni svo
miklu á niðurstöðum ratsjármælinganna og þrí-
víddarmyndanna. Hún sagði að hvor mæli-
aðferð hafi einhver skekkjumörk, en þau skýri
ekki muninn, og að kvörðun sé mikilvæg í báð-
um tilfellum.
„Við erum að prófa þessa aðferð, að gera þrí-
víddarmyndir eftir ljósmyndum, í fyrsta skipti.
Aðferðin hefur reynst afar vel hvað varðar út-
mörk og nákvæma kortlagningu á fyrirbærum,
en við viljum einnig hafa mikla nákvæmni í dýp-
ismælingunum. Við höfum því óskað eftir að fá
að fara með nákvæm GPS-staðsetningartæki
upp á jökulinn og taka þar nokkra mælipunkta,
sem séu greinilegir úr flugvél, til að kvarða
þetta,“ sagði Ingibjörg. Hún sagði að GPS-
mælingin muni sýna með óyggjandi hætti hvað
sigketillinn er orðinn djúpur og hjálpa mikið við
þróun aðferðarinnar, sem svo geti komið að
gagni við margvíslegar aðstæður.
Ragnar er reyndasti ljósmyndari Morgun-
blaðsins. Hann hefur flogið þrjár ferðir yfir
Öræfajökul eftir að vart varð við sigketilinn.
„Ég hef oft flogið yfir Öræfajökul og þekki
hann nokkuð vel,“ sagði Ragnar. „Þegar við
flugum þarna yfir 19. nóvember voru með mér
Sölvi bróðir minn, flugstjóri, og Tómas Guð-
bjartsson hjartaskurðlæknir. Við sáum greini-
Fyrsta ferð Sigketillinn sést greinilega. Hvannadalshnjúkur er fyrir miðri mynd.
Greinilegar breytingar í jöklinum
Vísindamenn óska eftir því að fá að fara með GPS-mælitæki upp á Öræfajökul til að mæla breyt-
ingarnar Sigketillinn í Öræfajökli dýpkaði og sprungur í kring urðu greinilegri á þremur vikum
Önnur ferð Sveiglaga sprungur norðaustan við sigketilinn voru mjög greinilegar.
Morgunblaðið/RAX
Þriðja ferð Félagarnir sem flugu yfir Öræfajökul voru sammála um að sigketillinn hefði dýpkað frá fyrri ferðum og sprungurnar stækkað. Horft er til austurs og sér niður í Hornafjörð.
SJÁ SÍÐU 34
28. nóvember kl. 12.3519. nóvember kl. 13. 11
11. desember kl. 11.49
Hræringar í Öræfajökli