Morgunblaðið - 14.12.2017, Blaðsíða 48
48 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 2017
SVIÐSLJÓS
Atli Rúnar Halldórsson
ritstjorn@mbl.is
Logandi eldar hér og þar, reykur og
sviti. Grímuklæddar valkyrjur með
griptengur að sýsla við heimagerðan
ofn þar sem „bakað“ var eða öllu
heldur brennt við þúsund gráður á
celsíus. Staður og stund: Malarplan
við heimili Ingibjargar Klemenz-
dóttur í Ölfusi í september.
Þarna komu saman níu starfandi
leirlistakonur af höfuðborgarsvæð-
inu, úr Dölum, frá Ólafsfirði og af
Suðurlandi, á nokkurra daga nám-
skeið sem Ingibjörg undirbjó og
skipulagði ásamt stöllum sínum úr
Hveragerði, Hrönn Waltersdóttur
og Steinunni Aldísi Helgadóttur.
Listakonurnar voru daga langa
innan eða utan dyra á Hellugljúfri 2,
fræddust um litameðferð, mótun,
efnafræði og glerungagerð, báru
saman bækur sínar, sköpuðu list-
muni og brenndu í ofni sem sér-
staklega var reistur af þessu tilefni.
Grófu holur í jörðu til leirbrennslu
með lífrænum efnum, málmum og
söltum.
Þekktur sænskur keramiker og
kennari í glerungagerð og leir-
brennslu, Anders Fredholm, var
leiðbeinandi á námskeiðinu. Hann
býr í Ölserrud og býr til nytjahluti
úr steinleir sem hann meðal annars
vinnur með saltbrennslu í viðarofni
og selur í Svíþjóð eða Japan. Þessi
brennsluaðgerð á rætur að rekja til
Japans og kallast rakú.
Iðja kvenna að miklu leyti
Á sumrin ferðast Anders um Sví-
þjóð, efnir til námskeiða og kennir
réttu handtökin við að búa til rakú-
viðarbrennsluofna og líkir því á eng-
an hátt saman að brenna leir yfir
eldi frá viði eða gasi. Hann hefur bú-
ið til um 30 rakúofna í Svíþjóð en
engan utan Svíþjóðar fyrr en nú, í
Ölfusi.
Hleðslusteinarnir á Íslandi eru
minni en Anders er vanur að fá
heima fyrir. Fyrsti rakúofninn á Ís-
landi var því í styttra lagi en gegndi
samt hlutverki sínu fullkomlega.
Svíinn brosti út að eyrum þegar
byrjað var að brenna leirmunina,
hvað þá valkyrjurnar níu. Þær líkt-
ust helst börnum á aðfangadags-
kvöldi – áður en pakkar eru opnaðir.
Þá ályktun er auðvelt að draga að
leirlist sé að miklu leyti iðja kvenna
á Íslandi og Anders segir svipaða
sögu að segja frá Svíþjóð. Hann
merkir samt aukinn áhuga karla í
seinni tíð.
Samsýning 2018
Námskeiðið var heilmikið fyr-
irtæki og til að halda sem mestu af
þekkingunni eftir í landinu, þegar
Anders Freholm hyrfi á braut,
ákváðu stöllurnar þrjár, Steinunn
Aldís, Hrönn og Ingibjörg, að ráða
kvikmyndagerðarmenn til að taka
upp námskeiðið. Afraksturinn verð-
ur kennslu- og kynningarmyndbönd
um að búa til brennsluofn og um
mismunandi aðferðir við undirbún-
ing og framkvæmd leirbrennslu.
Hveragerðisbær, Samtök sunn-
lenskra sveitarfélaga og Svensk--
Islänska samarbetsfonden styrkja
verkefnið. Þá hefur tekist samstarf
við Listasafn Árnesinga um samsýn-
ingu valkyrjanna níu á árinu 2018.
Það er því góður hiti enn í lista-
glóðunum frá því í Ölfusi forðum.
Ofnbökuð leirlist við þúsund gráður
Leirlistakonur víða að af landinu á námskeiði í Ölfusi Sænskur leiðbeinandi í leirbrennslu mætti
og kynnti sérstaka aðferð sem á rætur sínar að rekja til Japans Bjó til fyrsta rakúofninn á Íslandi
Ljósmyndir/Atli Rúnar Halldórsson
Námskeið Hópurinn við rakúofninn, f.v. Hrönn Waltersdóttir, Anders Fredholm, Hólmfríður Arngrímsdóttir, Þór-
dís Sigfúsdóttir, Bjarnheiður Jóhannsdóttir, Guðbjörg Björnsdóttir, Katrín Karlsdóttir, Ólöf Sæmundsdóttir, Stein-
unn Aldís Helgadóttir, Ingibjörg Klemenzdóttir. Hrönn, Steinunn og Ingibjörg skipulögðu námskeiðið í Ölfusi.
Leirlist Katrín Karlsdóttir tekur leirgrip úr ofninum að brennslu lokinni. Áhugi Leirlistakonurnar fylgjast grannt með handbrögðum Anders.
Hveragerði frá 2013 og 2016 gerði
sveitarstjórnin samning þar að lút-
andi við félagsskap sem kennir sig
við sjálfan bakgrunn bæjarmynd-
arinnar, Handverk og hugvit undir
Hamri. Hamar er klettahrygg-
urinn sem skagar fram úr Kömb-
um og skilur að Ölfusdalinn og
þéttbýlið í Hveragerði.
Húsið á sér annars merkilega
sögu. Það var reist á árunum 1930-
31 til að taka við börnum berkla-
sjúkra foreldra í sumardvöl. Af-
mælisfélagið stóð að framtakinu,
félag sem stuðlaði á ýmsan hátt að
Mikil orka, óþrjótandi sköpunar-
kraftur, samstaða og lífsgleði er í
húsinu Egilsstöðum við Skólamörk
i Hveragerði. Þar eru vinnustofur
myndlistarmanna og handverks-
fólks á tveimur hæðum. Myndlist
og handverk af öllu tagi verður til
á daginn í samfélagi fólks úr
Myndlistarfélagi Árnesinga, á
kvöldin æfa hljómsveitir ung-
menna og veggir nötra undan
hljóðbylgjum úr mögnurum
músíkantanna.
Húsið Egilsstaðir hefur verið
hjartastaður handverks og lista í
velferð barna og hafði tekjur af
því að senda félagsmönnum sínum
afmæliskort á árlegum tímamótum
gegn greiðslu. Síðar var þarna
barnaskóli og heimavist í eigu Ölf-
ushrepps og loks vinnustofur lista-
fólks.
Náttúruleg orka skapar bæj-
armyndina að stórum hluta. Það
kraumar í hverum og gufa stígur
upp af bullandi vatni hér og hvar.
Í Egilsstaðahúsinu er líka kraum-
andi listahver, mikill og góður við-
auki orkubúskapar Hveragerðis í
seinni tíð.
Ljósmyndir/Atli Rúnar Halldórsson
Handverk Fríða Margrét Þorsteinsdóttir t.v. og Violette Meyssonnier.
Kraumandi hver undir Hamri
Myndlistar- og handverksfólk starfar undir einu þaki
Myndlist Þau starfa á efri hæð Egilsstaða, frá vinstri: Sæunn Freydís Grímsdóttir, Ásta Þórey Ragnarsdóttir, Hjör-
dís Alexandersdóttir, Kristín Dagbjört Ólafsdóttir, Pjetur Hafsteinn Lárusson og Þorbjörg Sigurðardóttir.
Söfnum í neyðarmatar-
sjóð fyrir jólin til matarka
hjá Fjölskylduhjálp Íslands
fyrir þá fjölmörgu sem lægstu
framfærsluna hafa.
Þeim sem geta lagt okkur lið
er bent á bankareikning
0546-26-6609,
kt. 660903-2590.
Fjölskylduhjálp slands, Iðufelli 14 Breiðholti
og Baldursgötu 14 í Reykjanesbæ.
Neyðarsöfnun í
fyrir jólin
Guð blessi ykkur öll