Morgunblaðið - 14.12.2017, Side 56
56
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 2017
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Dáðleysimeirihlut-ans í borg-
inni í húsnæðis-
málum hefur
blasað við um
nokkurt skeið.
Ofuráhersla á
þéttingu byggðar hefur leitt
til þess að framboð á húsnæði
er langt frá því að fullnægja
eftirspurn, en fjölgun lóða
nánast verið forboðin og það
hefur orðið til þess að
sprengja upp verðið, sem hef-
ur hækkað langt umfram laun
og verðlag.
Samtök atvinnulífsins hafa
nú tekið húsnæðismarkaðinn
fyrir. Í greiningu efnahags-
sviðs samtakanna á honum
kemur fram að í árslok 2016
hafi skort að minnsta kosti tvö
þúsund íbúðir á höfuðborgar-
svæðinu.
Ásdís Kristjánsdóttir, for-
stöðumaður efnahagssviðs SA,
segir í samtali við Morgun-
blaðið í gær að miðað við taln-
ingu SA og áætlaða íbúðaþörf
á næstunni megi ekki betur
sjá en að skorturinn á fram-
boði muni fara vaxandi á
næstu þremur árum.
„Það þarf því að grípa til
einhverra ráða strax til að
auka framboð íbúða til að unnt
sé að mæta væntri íbúðaþörf,“
segir Ásdís. „Að öðrum kosti
mun skortur á framboði ein-
faldlega áfram ýta undir frek-
ari hækkun íbúðaverðs.“
Ásdís nefnir í viðtalinu að
aðrir hafi metið framboðs-
skortinn meiri en efnahags-
svið SA og bendir á að Íbúða-
lánasjóður telji að nú vanti
4.700 íbúðir til að
mæta þörfinni.
Ljóst sé að þús-
undir íbúða vanti.
Oft hefur verið
bent á að meiri
tíma taki að þétta
byggð en reisa
íbúðir á nýjum lóðum og Ásdís
staðfestir það. „Ef miðað er
við tvær síðustu talningar
Samtaka iðnaðarins þá er að
hægja á áætluðu framboði um
800 íbúðir fram til ársins
2020,“ segir hún í viðtalinu og
bætir við að þótt æskilegt sé
að þétta byggð þurfi einnig að
fjölga lóðum innan borgar-
markanna.
Í greiningunni kemur einnig
fram að minna hafi verið
byggt á umliðnum árum en ár-
unum 1984 til 2008. Að auki
megi gera ráð fyrir að gangi
ný mannfjöldaspá Hagstofu
Íslands eftir muni meðalþörf
íbúða aukast verulega á næst-
unni. Þörfin verði væntanlega
2.100 nýjar íbúðir á ári 2017 til
2020 á höfuðborgarsvæðinu,
en hafi verið 1.800 íbúðir í
fyrra og enn minni árin á und-
an.
Þessi greining SA er mjög
tímabær. Það verður að snúa
þróun húsnæðismála í Reykja-
vík við þannig að borgin anni
þörfinni fyrir nýjar íbúðir. Það
þarf að láta af hinni kreddu-
kenndu rörsýn á þéttingu
byggðar á kostnað annarra úr-
ræða, sem eru skilvirkari og
líklegri til að draga úr þrýst-
ingnum. Það er ekki nóg að
íbúðum fjölgi á loforðamark-
aði, þeim þarf líka að fjölga í
alvörunni.
Haldi fram sem
horfir mun íbúða-
skortur í höfuðborg-
inni fara vaxandi á
næstu árum}
Dáðleysi í íbúðamálum
Rex Tillerson,utanrík-
isráðherra Banda-
ríkjanna, tilkynnti
í gær að Banda-
ríkjastjórn væri
reiðubúin til þess
að hefja viðræður við norð-
urkóresk stjórnvöld til þess að
létta á spennunni á Kóreuskag-
anum, án þess að það skilyrði
væri fyrir viðræðunum, að
markmið þeirra væri að gera
skagann að kjarnorkuvopna-
lausu svæði á ný.
Þetta þykir til marks um
nýja stefnu í Washington, þar
sem utanríkisráðuneytið hafði
áður krafist þess að Norður-
Kóreumenn hæfu afvopn-
unarferli sitt, jafnvel áður en
nokkrar viðræður myndu hefj-
ast um ástandið á Kóreuskag-
anum. Óvíst er, hvað veldur
stefnubreytingunni nú eða
hvaða alvara sé að baki, en Til-
lerson og Trump Bandaríkja-
forseti hafa ekki
alltaf virst á sömu
línunni gagnvart
Norður-Kóreu.
Tilboð Tillersons
kann einnig að
vera runnið af öðr-
um rótum. Kjarnorkudeilan við
Norður-Kóreu hefur nú staðið í
rúman áratug. Landið hefur
verið beitt viðskiptaþvingunum
á þvinganir ofan, án þess að
stjórnvöld í Pyongyang hafi
látið sér segjast.
Nýlega kom í ljós, að Norð-
ur-Kóreumenn hafa fundið upp
á hugvitsamlegum leiðum til
þess að komast framhjá refsi-
aðgerðum og hafa jafnvel
bandarískar fjármálastofnanir
óafvitandi átt í viðskiptum við
þá. Meðal annars í því ljósi
verður tilboðið um viðræður án
skilyrða varla túlkað öðruvísi
en svo, að þær leiðir sem hing-
að til hafa verið reyndar dugi
ekki.
Tillerson opnar á
viðræður við Norð-
ur-Kóreu án skilyrða
um kjarnorkuvopnin}
Veikleikamerki eða nauðsyn?
Í
dag er 148. löggjafarþingið sett á Al-
þingi Íslendinga. Nýr meirihluti hefur
störf nú rétt fyrir jól og þingsins bíður
það mikilvæga verkefni að klára fjár-
lög næsta árs um hátíðirnar. Grund-
vallaratriði er að í þeirri vinnu verði það sam-
eiginlegt markmið okkar allra til að byggja upp
til framtíðar. Þannig þarf að forgangsraða í
þágu grunnstoða samfélagsins og á sama tíma
draga verulega úr skuldum ríkissjóðs. Hægt er
að gera hvort tveggja með ábyrgri stjórn ríkis-
fjármála samhliða því sem stjórnvöld tryggja
að atvinnulífið í landinu fái að blómstra í þeim
tilgangi að tryggja áframhaldandi vöxt hag-
kerfisins. Við höfum í gegnum tíðina séð of
mörg dæmi þess að ekki sé hugsað til framtíðar
og engin inneign sé fyrir útgjöldum stjórn-
málamanna. Of auðvelt hefur reynst að senda
reikninginn á skattgreiðendur framtíðarinnar. Það sem er
spennandi við framtíðina er að við höfum öll tækifæri í
höndunum til að vera áfram framúrskarandi þjóð á fjöl-
mörgum sviðum og gera enn betur. Til að svo megi verða
má ekki gleyma að skoða hvernig krónum ríkisins er varið
og hvort þær séu vel nýttar. Það er ekki sjálfgefið að gæði
opinbers rekstrar aukist með auknu fjármagni. Sú þjón-
usta sem ríkið ákveður að veita verður ávallt að vera með
besta móti.
Á meðan umtalsverð orka hefur farið í það að ræða
tekjuhlið ríkisfjármála, skattheimtu og fleira þá gleymist
oft að ræða og skoða enn frekar útgjaldahliðina. Það skipt-
ir máli að rýna með sama hætti í þær tölur og tryggja að
hvergi sé verið að sóa fjármunum. Það á við
um öll útgjöld ríkisins. Við þurfum að tryggja
að það fjármagn sem varið er til heilbrigðis-,
mennta- og velferðarmála sé vel nýtt og gagn-
ist sem flestum.
Ef sóun á sér stað í kerfinu munu aukin fjár-
framlög lítið gagnast viðkomandi málaflokkum
og alls ekki þeim sem á þá treysta, almenningi
í landinu. Það sama á við um samgöngumál,
stjórnsýslu og þannig mætti áfram telja. Það
hlýtur að vera markmið allra stjórnmála-
manna, hvar sem þeir raðast á hinu pólitíska
litrófi, að vilja nýta það fjármagn sem til staðar
er með sem bestum hætti. Síðustu ár hafa ver-
ið góð þegar tekið er mið af öllum helstu hag-
tölum. Að öllu óbreyttu verða næstu ár það
líka, svo lengi sem við fylgjum ábyrgri fjár-
málastefnu. Við þurfum því að hafa kjark til að
sýna ábyrgð í ríkisfjármálum.
Við þurfum að horfa til sölu ríkiseigna sem nauðsyn-
legrar leiðar til að grynnka á skuldum og lækka vaxta-
greiðslur ríkissjóðs. Ríkissjóður er betur í stakk búinn til
þess að ráðast í nauðsynlegar fjárfestingar vegna þess að
gengið hefur vel að lækka skuldir ríkissjóðs, en betur má
ef duga skal. Fjármunum hins opinbera er betur varið í
menntun, velferð, heilbrigðismál og innviði en vexti. Það
má öllum vera ljóst og því gildir það sama hvað þetta varð-
ar, við erum öll ábyrg fyrir því að grynnka á skuldum rík-
isins.
Pistill
Ábyrgð fyrir framtíðina
Höfundur er þingmaður og ritari Sjálfstæðisflokksins.
Áslaug Arna
Sigurbjörnsd.
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
BAKSVIÐ
Erna Ýr Öldudóttir
ernayr@mbl.is
Reyndar er það svo að hug-takið flugdólgur hefurmjög óræða merkingu ogrétt væri frekar að ræða
um atvik þegar ónæði eða ólæti
verða af völdum farþega, eins eða
fleiri, sem geta orðið af ýmsum
ástæðum. Oft leikur þreyta, und-
irliggjandi flughræðsla eða andlegt
ástand, tímabundið eða af ein-
hverjum tilfallandi aðstæðum, hlut-
verk. Því miður kann einnig að vera
um viðvarandi andleg veikindi að
ræða, en engin leið er að svara neinu
um það án þess að kanna heilbrigð-
issögu viðkomandi sem lætur illum
látum í flugvél,“ segir Ólafur Helgi
Kjartansson, lögreglustjóri á Suð-
urnesjum.
Árið 2016 komu til meðferðar
lögreglunnar á Suðurnesjum 11 mál
tengd svonefndum flugdólgum, þar
af voru fjórir handteknir um borð í
flugvélum. Tvö málanna voru af-
greidd með sekt, eitt er í afgreiðslu
og rannsókn var hætt í átta málum.
Árið 2017 fram að þessu, komu 23
mál til lögreglunnar á Suðurnesjum,
þar af voru fimm handteknir um
borð í flugvélum. Sjö mál voru af-
greidd með sekt, sex eru til af-
greiðslu en rannsókn var hætt í tíu.
„Óspektir á almannafæri eru
því miður algengar, en kunna að
koma illa við farþega í flugvélum,
eins og geta má nærri,“ segir Ólafur
Helgi.
„Ýmis álitamál vakna. „Flug-
dólgur“ er ekki skilgreint hugtak í
lögum, en í samantekt sem unnin var
hér voru tekin til skoðunar þau mál
þar sem höfð voru afskipti af fólki og
það handtekið í flugvélum eða innan
haftasvæðis flugverndar. Í þeim til-
vikum er um að ræða flugfarþega
sem eru annaðhvort að koma eða
fara eða eru á milli flugferða yfir
Atlantshafið, í „transit“ og eru
komnir inn á öryggissvæði vegna
flugsins og haga sér á þann veg að
um metna öryggisógn er að ræða. Í
sumum tilvikum er viðkomandi
meinað að halda för sinni áfram
vegna ástands síns.“
Langflestir haga sér vel
„Ég hef reyndar ekki mikið til
málanna að leggja og ekkert sér-
stakt frá okkur að frétta hvað þetta
varðar. Langflestir farþegar hegða
sér óaðfinnanlega, en stöku sinnum
verða árekstrar. Það er misalvarlegt
og oftast eitthvað sem leyst er far-
sællega án eftirmála. Einstaka al-
varlegri tilvik hafa komið upp í
gegnum tíðina og þá er gjarnan um
að ræða farþega sem eiga við veik-
indi að stríða eða eru undir áhrifum
vímuefna. Það er því varla hægt að
setja þetta í einn flokk „flugdólga“.
Hvert mál er afgreitt sérstaklega og
með tilliti til aðstæðna,“ segir Guð-
jón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi
Icelandair, og segir félagið ekki eiga
neinar tölur yfir atvik.
Svanhvít Friðriksdóttir, upplýs-
ingafulltrúi WOW air, segir að félag-
ið skrái öll slík atvik og að viðbrögð
félagsins séu trúnaðarmál af örygg-
isástæðum. Allir flugliðar fái þjálfun
í að bregðast við og viðbrögðin, fari
eftir alvarleika tilfella. Verkferlar
og skoðun á farþegum fyrir
brottför minnki líkur á að
slíkir farþegar komist um
borð. Svanhvít segir það
vera metið hverju sinni
hvort farþegar sem verða
fyrir tjóni eða óþægindum
vegna hegðunar annarra far-
þega fái bætur frá félaginu.
Eftirmál fyrir flugdólga gagn-
vart WOW air geti verið að
lenda á bannlista hjá fé-
laginu.
Flugdólgur er ekki
skilgreint hugtak
Örþrifaráð Stundum dugir ekkert minna en að setja bönd á farþega sem
hegða sér óstjórnlega í þröngu rými flugvéla af öryggisástæðum.
Fjöldi alvarlegra atvika þar
sem drukknir eða ofbeldisfullir
farþegar valda uppnámi í flugi
eykst og oft hafa áhafnir flug-
véla ekki aðra möguleika en að
koma böndum á þá. Árið 2016
voru tilkynnt 169 slík atvik á
móti 113 árið 2015. Frá því seg-
ir í nýrri skýrslu Alþjóða-
sambands flugfélaga, eða Int-
ernational Air Transport
Association (IATA).
Skv. tölfræðilegum upplýs-
ingum frá IATA, lækkaði heild-
arfjölda tilkynntra atvika um
truflandi hegðun farþega
um borð í flugvélum ár-
ið 2016 um tæp 10% í
9.837. Fjölgun sé þó á
tilfellum sem fela í sér
ofbeldisfulla eða
ógeðslega hegðun, hót-
anir og þegar átt er við
neyðar- eða örygg-
isbúnað, úr 11% árið
2015 í 12% árið
2016.
Slæmum at-
vikum fjölgar
NÝ SKÝRSLA IATA
Ólafur Helgi
Kjartansson