Morgunblaðið - 14.12.2017, Síða 77
77
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 2017
Oakley-skíðagleraugu,
margar gerðir,
verð frá kr. 7.800
Oakley-hjálmar,
margar gerðir og litir,
verð frá kr. 19.700
fulltrúi frá útgáfufyrirtæki Simons
Cowells, Syco, sem hefur marga af
þekktustu tónlistarmönnum heims
á sínum snærum. „Ég var á fundi
fyrr á þessu ári hjá Syco-plötufyr-
irtækinu þar sem þeir voru að
sækjast eftir því að semja við Glo-
wie, sem ég er umboðsmaður fyrir.
Þegar ég var að útskýra hvaðan
hún kom inn á sjónarsviðið á Ís-
landi sagði ég þeim frá keppninni
og útskýrði hugmyndina á bak við
hana. Þeir urðu allir mjög áhuga-
samir og þó að við hefðum farið
annað með Glowie hélt samtalið
áfram um keppnina og hugmyndir
um hvernig væri hægt að útfæra
þetta erlendis. Einnig eru að koma
menn bæði frá Noregi og Dan-
mörku í sömu erindagjörðum en
þessi keppni er séríslenskt fyr-
irbæri,“ segir Sindri og má því
segja að keppnin á næsta ári geti
orðið verulegur stökkpallur fyrir
ungt hæfileikafólk hér á landi.
Keppnin haldin á Akureyri
Keppnin verður haldin á Ak-
ureyri á næsta ári og má segja að
sannkallaðri framhaldsskólahátíð
verði slegið upp í bænum. „Við
stefnum á að halda keppnina í
mars eða apríl á næsta ári en dag-
setningin verður kynnt á næstu
dögum. Við ætlum að vera með
góða og heilnæma hliðardagskrá og
gera meira úr þessu en áður. Það
verður því stíf dagskrá fyrir krakk-
ana um leið og þau koma norður á
föstudeginum og svo verður dag-
skrá yfir daginn á laugardeginum,
keppnin um kvöldið og svo dans-
leikur fram á nótt. Það ættu því all-
ir að finna eitthvað við sitt hæfi
fyrir norðan þessa helgi,“ segir
Sindri spurður út í hvað verði í
boði fyrir gesti keppninnar.
Ástæða þess að Akureyri verður
fyrir valinu er sú að þar hafa fjöl-
mennustu keppnirnar verið haldn-
ar í gegnum tíðina en fyrirhugað er
að á næstu árum muni keppnin
ferðast víðar um landið. „Okkar til-
laga er svo að fara á flakk með
hana á næstu árum og halda hana
helst í einhverju bæjarfélagi þar
sem hún hefur aldrei verið haldin
áður. Við höfum nefnt meðal ann-
ars Vestmannaeyjar, Egilsstaði og
Ísafjörð sem dæmi fyrir árið 2019
en við munum kanna aðstæður um
leið og keppninni 2018 er lokið,“
segir Sindri sem vonast til að vekja
áhuga fleira fólks bæði á að koma á
keppnina og horfa á hana en Sindri
er í viðræðum um þessar mundir
við sjónvarpsstöðvar um útsend-
ingu frá henni. Þeir Sindri og Dav-
íð eru bjartsýnir á að keppnin á
næsta ári og dagskrá henni tengd
muni takast vel. „Ég efast ekki um
að Akureyrarbær muni iða af lífi
og nemendur vera sjálfum sér og
skólum sínum til sóma,“ segir Dav-
íð að lokum.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Sigurvegari Glowie sigraði í keppninni 2014 og hefur síðan slegið í gegn.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Akureyri Keppnin verður haldin á Akureyri á næsta ári og má búast við að stemningin verði mikil.