Morgunblaðið - 14.12.2017, Blaðsíða 84
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Í Mosfellsbæ má finna heillandi lítið
fyrirtæki sem býr til fallega konfekt-
mola og fleira gotterí. Elín Guðný
Hlöðversdóttir er konan á bak við
Kökur & konfekt (facebook.com/
kokur.konfekt) og er þessa dagana ið-
in við að gera jólakonfektmola sem
hún skreytir með sérstakri prent-
tækni.
Elín uppgötvaði sérmerktu súkku-
laðimolana árið 2012. „Ég gifti mig
það árið og leitaði uppi fyrirtæki á
Akureyri sem útbjó fyrir mig sér-
merkta mola í brúðkaupið. Mér þótti
þessir molar alveg hreint æðislegir og
þegar ég sá fyrirtækið auglýst til sölu
í janúar 2013 sló ég til og keypti
reksturinn. Síðan þá hef ég verið að
dunda mér við þetta,“ segir hún en
ásamt konfektgerðinni útbýr fyr-
irtækið snittur og annað góðgæti fyr-
ir veislur.
Auk þess að gera konfektmola
framleiðir Elín sérmerkta súkku-
laðisleikipinna og kökumyndir sem
fólk getur pantað og lagt yfir eigin
kökur. „Við prentum á sykurmassa
með matarlit og getum prentað hvaða
myndir sem er á sykurmassann. Í til-
viki konfektmolanna þá er prentað á
sykurfilmu og hún síðan sett í þar til
gert form, og hvítu súkkulaði hellt yf-
ir til að fylla formið til hálfs. Ég bæti
síðan fyllingu við og loks fer dökkt
súkkulaði ofan á í lokin.“
Bragðgóð gjöf á jólum
Elín segir lakkrís- og karamellu-
fyllingarnar vinsælastar en einnig má
fá mola með núggat- og pralínfyll-
ingu. Nostrað er við molana og þess
gætt að þeir séu bæði góðir á bragðið
og líti fallega út. Matarlitarprent-
arinn hefur nokkuð góða upplausn og
segir Elín t.d. hægt að prenta myndir
af fólki eða landslagi, ellegar skreyta
molana með vörumerki fyrirtækis
eða jólakveðju. „Í brúðkaupum eru
molarnir oft notaðir sem þakkargjöf
til gesta eða sem sætamerki og tölu-
vert er um það að fyrirtæki kaupi
merkta mola í kringum jólin til að
gefa starfsmönnum og dyggum við-
skiptavinum sínum,“ upplýsir Elín.
„Er þá t.d. hægt að setja vörumerki
fyrirtækisins á átta mola sem koma í
fallegu boxi, eða setja 2-3 mola í selló-
fanpoka og gefa með matarkörfu.“
Ekki þarf að hafa langan fyrirvara
á pöntunum og segist Elín yfirleitt
geta afgreitt sérmerkta súkku-
laðimola á tveimur dögum nema
pantaðir séu þeim mun fleiri molar.
Ekki þarf að geyma molana í kæli en
gott að gæta þess að þeir hitni ekki
því þá gæti súkkulaðið tekið að linast.
Hver moli kostar ekki nema 200 kr.
og segir Elín að lágmarkspöntun sé 8
molar.
Súkkulaðisleikipinnarnir geta
einnig verið skemmtileg viðbót við
jólapakkann eða matarkörfuna, eða
verið glaðningur fyrir börnin í jóla-
boðum. „Hvolpasveitarsleikjóarnir
eru mjög vinsælir í barnaafmælum
um þessar mundir og geta sleikjóar í
afmælisþemanu líka verið falleg
skreyting fyrir veisluborðið.“
Margt er hægt að segja með molanum
Jólakonfektmolarnir frá Kökum & konfekti eru skemmtileg gjöf. Það má sér-
panta súkkulaðimola með mynd og kveðju eftir óskum kaupandans
Ástríða Elín notaði molana í eigin brúðkaupsveislu. Búnaður Buna af bráðnu súkkulaði til að fylla mótin. Handverk Vandað er til verka við molagerðina.
Möguleikar Hvítu súkkulaði sprautað ofan á áprentaða sykurmassa.
Bitar Brúna súkkulaðinu er bætt við síðast, ofan á fyllinguna.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Eigulegt Molana má meðal annars fá átta saman í fallegri öskju.
84
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 2017
KLASSÍSK ÍSLENSK ÚR
FYRIR HANN OG HANA
Jólamatur