Morgunblaðið - 14.12.2017, Blaðsíða 96
96 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 2017
Útsölustaðir:
• Guðsteinn Eyjólfsson – Laugavegi
• Heimkaup.is
• Hagkaup
• Fjarðarkaup – Hafnarfirði
• Herrahúsið – Laugavegi
• Karlmenn – Laugavegi
• Vinnufatabúðin – Laugavegi
• JMJ – Akureyri
• Bjarg – Akranesi
• Efnalaug Suðurlands – Selfossi
• Kaupfélag Skagfirðinga
• Kaupfélag V-Húnvetninga
• Skóbúð Húsavíkur
• Haraldur Júlíusson – Sauðárkróki
• Blómsturvellir – Hellissandi
• Efnalaug Vopnafjarðar
• Sigló Sport – Siglufirði
• Bjarni Eiríksson – Bolungarvík
• Grétar Þórarinsson - Vestmannaeyjum
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík | Sími 561 9200 | run@run.is | www.run.is
Láttu þér
líða vel um jólin
Andrés Helgason, eigandiTónastöðvarinnar, á 60ára afmæli í dag. Tóna-
stöðin er þrítug um þessar
mundir en hún var stofnuð á
Akranesi og hefur vaxið frá
því að vera ein minnsta tónlist-
arbúð landsins til þess að vera
sú stærsta.
„Þetta byrjaði sem hobbý
hjá konunni minni, Hrönn
Harðardóttur, en hún fór að
selja nótur í fæðingarorlofi, en
ég var þá að kenna í Tónlistar-
skólanum á Akranesi. Við opn-
uðum síðan verslunina í
Reykjavík 1990 og svo vatt
þetta upp á sig og þá gekk ekki
lengur hjá mér að vera bæði að
kenna og reka búðina. Tóna-
stöðin var fyrst við Óðinstorg,
en er núna í tæplega 600 fer-
metrum í Skipholti 50D.
Fyrstu árin fórum við alltaf á
milli með Akraborginni, en við
fluttum svo til Reykjavíkur ár-
ið 1997 og búum núna þrælánægð í Garðabæ af öllum stöðum.“
Andrés kenndi í mörg ár á trompet og var lengi stjórnandi lúðrasveit-
arinnar á Skaganum. Hann var einnig í þrjú ár tónlistarskólastjóri í
Færeyjum. „Svo var ég líka í popphljómsveitum eins og m.a. Nafninu í
Borgarnesi og Tívolí í Reykjavík og svona fjölbreytt reynsla nýtist auð-
vitað vel í rekstrinum. Við höfum alla tíð þjónustað mikið tónlistar-
skólanema og tónlistarfólkið sjálft, en við lítum á okkur sem þjónustu-
miðstöð. Á þessum þrjátíu árum sem Tónastöðin hefur verið til hafa
verið miklar breytingar í versluninni og þetta er orðið allt miklu meira
rafvætt en var áður fyrr.“
Þegar tónlistinni sleppir þá er fluguveiði mikið áhugamál hjá Andr-
ési. „Uppáhaldsáin er klárlega Kjarrá,“ segir hann aðspurður.
„Sæmundará í Skagafirði er líka algjör gimsteinn sem ég ætti eiginlega
ekki að láta vita af. Svo byrjaði kallinn að læra að fljúga og þarf að
klára námið. Ég ákvað að byrja á því áður en ég yrði blindur.“
Andrés hélt upp á afmælið sitt fyrir viku, hélt stóra veislu þar sem
tóku lagið Fóstbræður, K.K., Bubbi Morthens, Eyþór Ingi, Ásgeir
Trausti, Hjálmarnir og fleiri. „Þetta voru gjafirnar frá þeim og það var
ekki leiðinlegt, en í dag verður það tekið rólega með fjölskyldunni.“
Börn Andrésar og Hrannar eru Vala, sem er búsett í Seattle, Edda og
Helgi og barnabörnin eru orðin fjögur.
Morgunblaðið/ Kristinn Magnússon
Sextugur Andrés Helgason, eigandi
Tónastöðvarinnar, sem er þrítug.
Fjöldi tónlistarmanna
tók lagið í afmælinu
Andrés Helgason er sextugur í dag
R
agna fæddist í Kaup-
mannahöfn 14.12. 1927
og ólst þar upp. Hún
var í barnaskóla í
Kaupmannahöfn og
menntaskóla og lauk stúdentsprófi
þar árið 1946.
Fjölskyldan hafði ætlað heim til Ís-
lands mun fyrr en varð innlyksa í
Danmörku vegna styrjaldarinnar og
hernáms Þjóðverja. Auk þess voru
tvær háaldraðar frænkur Rögnu á
heimilinu, systur Matthíasar, afa
Rögnu. Þær voru á tíræðisaldri og
treystu sér ekki í langt ferðalag.
Ragna flutti hingað heim að loknu
stúdentsprófi, árið 1946, hóf tungu-
málanám við Háskóla Íslands og lauk
BA-prófum í ensku og dönsku.
Ragna hóf störf við Ferðaskrif-
stofu ríkisins árið 1947 og starfaði þar
til 1977. Hún starfaði síðan hjá
Ferðamálaráði frá 1977 og þar til hún
lét af störfum árið 1990.
Hjá Ferðaskrifstofu ríkisins og síð-
an hjá Ferðamálaráði sinnti Ragna
margvíslegum verkefnum: „Ég held
ég geti sagt með sanni að ég hafi
komið að flestöllum störfum sem unn-
in voru á þessum stofnunum, ekki síst
þeim sem tengdust margvíslegri
kynningu á landi og þjóð, gagnvart
Ragna E. Samúelsson, fyrrv. starfsm. Ferðamálaráðs – 90 ára
Fjölskyldan í Kanada Ragna með Erlu, systur sinni, Jörgen, manni hennar, og börnum þeirra í Oakland árið 2011.
Tíðari ferðalög gera
heiminn friðvænlegri
Frænkur Ragna með Jóhönnu Hjartardóttur, systurdóttur Ásgeirs forseta.
Hafnarfjörður
Viktoría Sól Björg-
vinsdóttir fæddist
19. nóvember 2016
kl. 6.22. Hún vó
4.312 g og var 53,5
cm löng. Foreldrar
hennar eru Ásta
Sóley Gísladóttir
og Björgvin G.
Björgvinsson.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is