Morgunblaðið - 14.12.2017, Qupperneq 99
DÆGRADVÖL 99
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 2017
CARAT Haukur gullsmiður | Hátúni 6a | Sími 577 7740 | carat.is
Skoðið glæsilegt úrval á carat.is
Sendum frítt um allt land
Ekkert jólastress
Hjá okkur er opið allan sólarhringinn
á www.carat.is
HÁLSMEN – ARMBÖND – HRINGIR – EYRNALOKKAR
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Láttu ekki hugfallast þótt sumar hug-
myndir þínar hljóti ekki strax framgang. Hví
prófarðu ekki að vera ferðamaður í eigin
borg?
20. apríl - 20. maí
Naut Það er nóg að gerast í kollinum á þér
og þú ert ánægð/ur með undirtektirnar sem
þú færð. Leyndir og ljósir aðdáendur sýna
þér áhuga um þessar mundir.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú hefðir gott af því að breyta um
umhverfi, en að umgangast nýtt fólk væri
enn betra. Leitaðu tækifæra til að tjá vænt-
umþykju þína til annarra á næstunni.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það er algjörlega undir sjálfum þér
komið hvort hamingjan er þér hliðholl eða
ekki. Ekkert er of mikil fyrirhöfn um þessar
mundir.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það er hætt við að spenna sem hefur
verið að safnast upp í þér að undanförnu
brjótist fram í dag. Haltu þínu striki, þrátt fyr-
ir alla áhættu (höfnun og allt það).
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það eru mörg tilboðin sem streyma að
okkur úr öllum áttum og það þarf sterk bein
til þess að láta flest þeirra lönd og leið.
Reyndu bara ekki að slá ryki í augu fólks.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þér hættir til að vera eitthvað annars
hugar þessa dagana en verður að taka þér
tak og einbeita þér að því sem fyrir liggur.
Leitaðu nýrra leiða og nýr stíll fæðist.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það getur kostað nokkur óþæg-
indi að leita nýrra leiða til lausnar vanda-
málum. Talaðu við fólk um þær bætur sem þú
vilt gera.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú ert reiðubúin(n) til að leggja
hart að þér vegna þess að þú getur bætt
heimilishaginn á komandi ári. Nú þarftu á
þessum kostum að halda og allt gengur vel.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Notaðu innsæið til þess að ákveða
hvort þú eigir að láta eitthvað verða að veru-
leika eða ekki. Fjallið virðist bara sátt við að
þurfa að koma til Múhameðs, ef svo má
segja.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú þarft að finna hinn gullna með-
alveg og þá mun allt ganga upp. Vertu ekkert
að velta þér upp úr þessu heldur njóttu þess
bara í einlægni.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það er aldrei hægt að gera svo öllum
líki né segja það sem allir samþykkja. Sér-
staklega þegar óréttlát afbrýðisemi heltekur
þig eða ómótstæðileg löngun.
Sigurlín Hermannsdóttir skrifará Leir að svifrykið fari illa í
suma þessa dagana:
Hún Vanda var oftsinnis veik
við veikindin rjúkandi smeyk
var andstutt og móð
á öndinni stóð
því alltaf var vaðandi reyk.
Gústi Mar var fljótur til svars og
mætti vel verða borgarstjóra til
umhugsunar:
Andrúmsloft sem angrar þig
er ekki í góðu standi.
Betra er og borgar sig
að búa úti á landi.
„Mér er allri lokið,“ segir kerl-
ingin á Skólavörðuholtinu:
Nú liggja í bælinu líkar mér best
mér leiðist skammdegisdrunginn,
gengið er hér af göflunum flest
og Góði hirðirinn sprunginn.
Þetta féll kettinum Jósefínu
Meulengracht Dietrich vel og hún
malaði::
Ef úti ríkir myrkra magt
mestu varðar, eikin spanga,
í góðu rúmi að geta lagt
gula rófu undir vanga.
Hólmfríður Bjartmarsdóttir yrk-
ir á Boðnarmiði:
Kvartsáru fólki, alltaf ég á það bendi
að ekki er til neins að hugsa um von-
brigði og stress.
Þjóðskáldið sagði: „allt sem innt er af
hendi
í öfugu hlutfalli er metið við gildi
þess“.
Jónas Þór Jóhannsson er holl-
ráður:
Allt er gott á okkar góða landi
er því rétt að vera alltaf hress.
Vonbrigði og stress er vondur fjandi
og vissulega betra allt án þess.
Jón Arnljótsson yrkir um
Blönduhlíðarsólina:
Sólin baðar Blönduhlíðarfjöllin,
en bara efst og varla nokkra skepnu
nema kannski tófuna og tröllin,
sem teljast annars síst til þeirra
heppnu.
Þessi vísa gaf Ólafi Stefánssyni
tilefni til að rifja upp vísu sem
Magnús á Vöglum orti þegar séra
Lárus á Miklabæ féll frá:
Sankti Pétur var í vanda,
vildi þóknast gestinum
byrjaði strax að blanda handa
Blönduhlíðarprestinum.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Svifrykið, Góði
hirðirinn og stress
„ÞÚ ERT NÆRSÝNN – SEM GÆTI
ÚTSKÝRT HVERS VEGNA ÞÚ ERT
LABBANDI UTAN Í ALLT.“
„KLÁRAÐU! ÞAÐ ER EKKERT VIT Í AÐ FARA
AÐ ÓHREINKA LEIRTAUIГ
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að þrá að kúra með
þér þar til yfir lýkur
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÞAÐ ER RÉTT! ÞEIR ERU ALLIR
MEÐ SÍTRÓNUBRAGÐI
HRÓLFUR! ÞEIR ERU AÐ
HENDA Í OKKUR SLEIKJÓUM
Í STAÐ GULLS
ÞETTA ER
ÓVIÐUNANDI!
ODDI HEFUR UPPGÖTVAÐ
LEYNDARDÓM HAMINGJUNNAR
ÉG HELD ÉG HALDI
DEPURÐINNI ÁFRAM Víkverji og frú ákváðu að bregðaundir sig betri fætinum um síð-
ustu helgi og skelltu sér til Glasgow,
stærstu borgar Skotlands. Útkoman
var ein skemmtilegasta ferð Vík-
verja til útlanda, kannski þvert á
þær væntingar sem hann hafði gert
sér fyrirfram.
x x x
Víkverji hafði til að mynda aðeinseinu sinni áður komið til
Glasgow, til þess að horfa á íslenska
karlalandsliðið leika við það skoska
fyrir margt löngu. Úrslit þess leiks
verða ekki rifjuð upp hér, en ljóst er
að gæfuhjólið hefur heldur betur
snúist Íslendingum í vil síðan þá.
x x x
Víkverji hafði hins vegar fá tæki-færi til þess að kynnast borginni
Glasgow þá. Hann áttaði sig því ekki
á því fyllilega fyrr en nú um helgina,
að miðborg Glasgow er nánast eins
og ein risastór verslunarmiðstöð
utandyra. Víkverji hafði þó heyrt
flökkusögur um það, hvernig heilu
hjarðirnar af Íslendingum gerðu
áhlaup á borgina fyrir hver einustu
jól, svo að minnti helst á upphaf vík-
ingaaldarinnar. Vildi hann þó ekki
trúa því fyrr en hann tæki á, að
ástandið væri þannig.
x x x
Ástandið er þannig. Víkverjiheyrði oftar íslensku í miðborg
Glasgow en hann heyrði síðast þegar
hann fór í miðborg Reykjavíkur.
Voru hann og Frú Víkverji nánast
hætt að tjá sig á íslensku, svona ef
ske kynni að einhver gæti hlerað
samtal þeirra, því að alls staðar voru
Íslendingar í kring. Þeir voru í versl-
unarkjörnunum, þeir voru í litlu
hliðargötunum, þeir voru á matsölu-
og veitingastöðunum. Alls staðar
mátti heyra hið ástkæra ylhýra.
x x x
Og það er kannski bara mjög skilj-anlegt. Glasgow hefur orð á sér
fyrir að vera hrjúf borg, heimili
Taggarts lögregluforingja úr sjón-
varpinu og ýmissa rustamenna. Vík-
verji og frú upplifðu borgina hins
vegar sem ágæta hvíld frá amstri
hversdagsins í desember og gætu
jafnvel hugsað sér að fara aftur á
næsta ári. vikverji@mbl.is
Víkverji
Ég vil vegsama Drottin alla tíma,
ætíð sé lof hans mér í munni
(Sálm 34:2)