Morgunblaðið - 14.12.2017, Síða 104

Morgunblaðið - 14.12.2017, Síða 104
104 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 2017 HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf N Ý F O R M h ú s g a g n a v e r s l u n Komið og skoðið úrvalið Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Klassísk gæða húsgögn á góðu verði Opið virka daga 11-18 laugardaga 11-17 Sunnudaga 14-17 Úrfellingarmerki ([…]) sýnir hvar texti hefur verið skorinn burt, til- vísunum er sleppt. Sjálfræði í sjálfsmennsku Þrátt fyrir að lögin um lausa- mennsku hafi verið tiltölulega skýr á tímum vistarbandsins áttu menn oft í vandræðum með hvað kalla ætti þá sem þráuðust við að ganga í vist. Í skjölum og bókum sýslu- manna má sjá orð eins og vistleys- ingi, lausamaður og lausakona, lausgangari, húsmaður, landhlaup- ari, passaleysingi, flakkari, um- renningur og fleiri slík um þá sem gerðust brotlegir við lög um lausa- mennsku. Þessi orð vitna um þann fjölbreytilega hóp sem lenti upp á kant við lögin og blæbrigðin í mál- um þeirra og að- stæðum. Eitt þessara hugtaka var ,sjálfs- mennska‘. Það var hvergi skil- greint nákvæm- lega en virðist hafa verið notað um þá sem sáu fyrir sér sjálfir með hefðbundnum hætti (áttu skepnur, stunduðu kaupavinnu hjá bændum) en lifðu utan við ramma vistar- skyldu og lausamennskubanns. Orðinu má þó einnig gefa aðra merkingu sem vísar til algengrar skýringar á lausamennskubrotum. Orðið sjálfsmennska er nefnilega lýsandi fyrir þá lausamenn sem tóku eigin hagsmuni, vilja eða hamingju fram yfir hlýðni við boð- orð laganna. Þeir völdu sjálfa sig og sína nánustu fram yfir heildina án þess að hafna með því helstu samfélagsvenjum og gildum. Gnótt dæma um slíkt má finna í dóma- bókum sýslumanna. […] Jón Pálsson sagði, aðspurður af sýslumanni í ágústlok 1822, lausa- mennsku sína vera til þess að vinna fyrir lífi sínu, barns síns og móður sinnar. Helga Magn- úsdóttir, móðir hans, var orðin ekkja og hafði nýverið hætt bú- hokri sínu í Harastaðakoti og gerst húskona á Syðriey í Húnavatns- sýslu. Þar bjó hún á hálfs hundr- aðs jarðarparti með tólf kindur, eina kú og tvo hesta og hugsaði um fjögurra ára gamla dóttur Jóns á meðan hann ferðaðist um sveitina og vann ýmis störf þeim þremur til uppihalds. Hann hafði t.d. farið til sjóróðra frá Skagaströnd og sent þeim fisk auk þess að heyja handa skepnum móður sinnar sem hrepp- stjóri Vindhælishrepps sagði vera of lasburða til að reka bú sitt sjálfa en of fátæka til að ráða vinnumann á fullu kaupi. Þá hafði hann stund- að húsasmíðar fyrir séra Árna Illugason á Hofi gegn því að séra Árni felldi niður skuld Helgu við sig og hýsti þær ellefu kindur sem Jón átti. Reyndar fullyrti Jón í bréfi sem hann lagði fyrir réttinn að hann sæi ekkert ólöglegt við störf sín. Hann væri vinnumaður móður sinnar en hún lánaði sig öðrum þegar hún þyrfti hans ekki við „hvað ég trúi flestum húsbændum leyfilegt án þess sá burtléði álitist lausamaður“. Ákæra sýslumanns væri að hans mati geðþótta- ákvörðun og hann krafðist þess að vera sýknaður og að vera veitt tækifæri til þess að sækja bætur frá klagendum sínum fyrir að spilla tíma sínum að óþörfu. Á sömu forsendum hafði hann neitað að fara í vist til séra Einars Guð- brandssonar á Hjaltabakka sem sýslumaður hafði útvegað honum fyrr um sumarið þegar honum hafði fyrst borist tilkynning um lausamennsku Jóns. Hann gæti ekki tekið þessu boði þar sem móð- ir hans mætti ekki við því að missa sig. Þessar skýringar gat Blöndal hins vegar ekki samþykkt. Í ljósi tilskipunar um lausamenn frá 1783 sé Jón „lausamaður en ekkert lög- legt vinnuhjú“. Ekki sé það heldur Jóni til afsökunar að hafa fyrir barni að sjá því lögin leyfi engar slíkar undanþágur auk þess sem hann eigi skepnur til þess að borga með barni sínu ef vinnumann- skaupið dugi ekki til. Hann var því dæmdur til tíu vandarhögga og að taka þá fyrstu vist sem byðist. Þetta var hvorki í fyrsta né síð- asta sinn sem Jón sleit gólfum sýslumanns. Tveimur árum áður hafði Blöndal dæmt Jón, móður hans og Sigríði Árnadóttur, barns- móður hans, til sekta fyrir ólöglega sambúð Jóns og Sigríðar á heimili Helgu í Harastaðakoti en þau Jón og Sigríður höfðu þvert á móti hreppstjórans skipun „ei … viljað skilja samvistir frá sama bæ og sömu sókn“. Samkvæmt tilskipun um hjónabönd, lauslæti o.fl. frá árinu 1746 var legorðssekum, sem ekki giftust í kjölfar sakarinnar, bannað að dvelja innan sömu sókn- ar og yfirvöldum gert að stía þeim í sundur. Árið 1823, rúmu ári eftir að Jóni voru dæmd vandarhöggin fyrir lausamennsku, var hann á ný boð- aður til sýslumanns en í þetta sinn sem vitni. Bróðir Jóns, Magnús Pálsson, vinnumaður á Syðriey, hafði kært Guðlaug Guðlaugsson, bónda á Brandaskarði, fyrir stuld á einum sauð í eigu Helgu, móður þeirra. Við réttinn hafði Guðlaugur sagt frá því að Jón Pálsson hafi borðað af þessum stolna sauð ásamt konu Guðlaugs, Helgu Ólafsdóttur, á heimili þeirra hjóna. Skömmu seinna hafði Helga svo hlaupist frá Guðlaugi og börnum þeirra og leitað hælis hjá séra Árna á Hofi sökum „illrar breytni“ Guðlaugs við sig. Á Hofi lögðu hún og Jón lag sitt saman og eignuðust þau barn haustið 1823 en það hafði m.a. verið til þess að „fyrirbyggja slíkt athæfi og óorðu“ sem sýslu- manni var svo mikið í mun að koma Jóni í einhverja vist haustið 1822. Jón neitaði hins vegar að mæta í eigin persónu til að bera vitni í máli Guðlaugs og taldi sig hafa ríka ástæðu til. Í bréfi sem hann sendi sýslumanni, ásamt skrif- legum vitnisburði um sauðaþjófnað Guðlaugs, lýsti hann því hvernig sýslumaðurinn hafi fyrr á árinu látið „yfirfalla mig með mannfjölda fyrir aungva af mér forþénta sak- argift“ á verslunarstaðnum á Skagaströnd og hafi Christian Gynther Schram kaupmaður meðal annars hótað sér með hlaðinni byssu. Hann sagðist ekki taka þá áhættu að mæta þeim mönnum aft- ur því ekki hefði enn verið látið af hótunum í hans garð. Ástæðan fyr- ir þessu uppistandi var sú að Jóni hafði með undanbrögðum tekist að koma sér undan vandarhöggunum tíu sem honum voru dæmd fyrir lausamennsku árið 1822, sýslu- manni til mikillar skapraunar. Þeg- ar fréttist af veru Jóns á heima- slóðum á Skagaströnd sendi Blöndal hreppstjóra Vindhælis- hrepps þangað ásamt nokkrum hraustum mönnum til þess að framfylgja dómnum og beita til þess valdi ef með þyrfti. En það lukkaðist ekki þar sem vinir Jóns komu honum til varnar svo úr urðu nokkur áflog við verslunarhúsin á Skagaströnd. Á meðan á þeim stóð kom Jón sér undan og flúði. Það var ekki fyrr en Jón var formlega ákærður fyrir þann smáþjófnað sem Guðlaugur á Brandaskarði hafði bendlað hann við sem Jón fékkst til að mæta fyrir rétt og var yfirheyrður „eftir að hafa loks þol- að fyrrnefnt lausamennskustraff“. Hann var svo dæmdur til tíu vand- arhögga að auki fyrir þjófnað. „Lausamaður en ekkert löglegt vinnuhjú“ Sjálfstætt fólk: Vistarband og íslenskt samfélag á 19. öld eftir sagnfræðinginn Vilhelm Vilhelmsson fjallar um vistarbandið sem fól í sér þá skyldu búlausra að ráða sig í ársvistir hjá bændum og lúta húsaga þeirra. Þjóðminjasafn Íslands Húsagi Verslunarhúsin á Skagaströnd árið 1857. Byggðasafn Húnvetninga Ófeigur. Sérhæfðir strafskraftar gátu oft samið um vistarráð sín og dæmi eru um mann sem réð sig í vist með því skilyrði að hann fengi að róa há- karlaskipi húsbónda síns eins og honum þótti best henta. Vilhelm Vilhelmsson.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.