Morgunblaðið - 18.01.2018, Page 6

Morgunblaðið - 18.01.2018, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 2018 Laugavegi 77, 101 Reykjavík - Sími: 551-3033 ÚTSALA 30-50% afsláttur Flottir í fötum SPITAL sendi í mars 2012 frá sér „greinargerð um samgöngur vegna deiliskipulags fyrir nýjan Landspít- ala við Hringbraut“. Til upprifjunar vann SPITAL- hópurinn hönnunarsamkeppni um nýjan Landspítala. Áætlað var í greinargerðinni að fjöldi starfsmanna á svæðinu mundi fara úr 4.900 í 5.500. Að auki mundu bætast við starfsmenn í fyrirhugaðri randbyggð og skrif- stofuhúsi. Þeir verði hugsanlega 400 til 600 talsins. Athygli vekur að gert var ráð fyrir að starfs- mönnum Landspítalans myndi fækka úr 1.850 í 1.700 eftir að fyrsta áfanga lyki. Ræðir þar m.a. um nýjan meðferðarkjarna. „Núverandi bílastæði á deili- skipulagssvæðinu eru skv. talningu um 1.140. Þetta eru þau stæði sem tilheyra Landspítalanum og Lækna- garði en í raun nýta starfsmenn, nemendur og sjúklingar mun fleiri stæði … Að loknum 1. áfanga munu verða allt að 1.600 bílastæði, fyrir starfsemi LSH og HÍ, og má ætla að frá því sem er í dag muni bílastæð- um fækka um allt að 400 m.v. þann fjölda sem talið er að starfsmenn og viðskiptavinir eru að nota í dag. Í síðari áfanga mun bílastæðum að- eins fjölga um 400 en gera má ráð fyrir að starfsemin muni hafa vaxið töluvert og komum viðskiptavina LSH, starfsmanna og nemenda hafi fjölgað að lágmarki um 600 á dag. Miðað við þetta er ljóst að ferða- venjur starfsmanna og nemenda þurfa að breytast frá því sem þær eru nú. Vegna þessa er almennings- samgöngum og hjólreiðum gert hátt undir höfði í deiliskipulaginu og er allt kapp lagt á það að auka hlut þessara ferðamáta í sam- göngum starfsmanna og nemenda á svæðinu,“ sagði þar m.a. Við bráðamóttöku verður gert ráð fyrir skammtímastæðum með gjaldskyldu og aðgangsstýringu. „Með stýringu verði höfð áhrif á það hvaða bílastæði verði fyrir starfsmenn og hvaða stæði verði fyrir sjúklinga og gesti.“ Loks var áætlað að nýting á öll- um stæðum spítalans væri 90-95% milli 8 og 16. „Þessi mikla nýting, ásamt gjaldtöku að hluta á svæð- inu, leiðir til þess að starfsmenn nota einnig stæði sem eru utan deiliskipulagssvæðisins.“ Fram kom í minnisblaði Landspít- alans haustið 2014 að 75% starfs- manna komu oftast á bíl í mars 2014, borið saman við 74% í nóv- ember 2011. Bæði ár sögðust 6% starfsmanna koma á strætó. Ferðavenjur þurfi að breytast GREINING SPITAL ÁRIÐ 2012 BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Við hönnun umferðarmannvirkja og almenningssamgangna við nýjan Landspítala verður horft til breyttra ferðavenja starfsfólks. Gengið er út frá því að mun hærra hlutfall starfs- fólks muni nota almenningssam- göngur en verið hefur. Þetta staðfestir Þorsteinn R. Hermannsson, samgöngustjóri Reykjavíkur- borgar. Tilefnið er sú greining Kristins Jóns Eysteins- sonar, skipulags- fræðings hjá Reykjavíkurborg, að 40% þeirra sem starfa á spítalasvæðinu muni geta ferðast þangað með einkabíl á daginn, að undanskildum nætur- vöktum. „Aðrir þurfa að koma til vinnu á þetta svæði með almennings- samgöngum, gangandi eða hjól- andi,“ segir Kristinn Jón í samtali við Morgunblaðið á föstudaginn var. Svæðið suður af Landspítalanum mun breytast mikið næstu árin. Hefja á framkvæmdir við nýjan með- ferðarkjarna í sumar og er áformað að flytja megnið af starfsemi Land- spítalans í Fossvogi í nýjan Land- spítala við Hringbraut árið 2023. Það sem eftir stendur verður flutt úr Fossvogi á nýjan spítala 2024-25. Á sjötta þúsund starfsmenn Með því stækkar einn stærsti, ef ekki stærsti vinnustaður landsins, á Landspítalanum við Hringbraut. Samkvæmt ársreikningi spítalans 2016 störfuðu þá að meðaltali 5.136 manns á spítalanum. Það var 4,3% aukning frá 2015. Fyrirspurn til spít- alans um fjölda starfsmanna 2017 hafði ekki verið svarað í gær. Skal tekið fram að spítalinn er með fjölda starfsstöðva um borgina. Stóru spít- alarnir tveir vega þó langþyngst. Fram kom í greinargerð SPITAL vegna nýs Landspítala að gert sé ráð fyrir að fleiri starfsmenn spítalans muni nýta sér almenningssamgöng- ur í framtíðinni. Tekið sé tillit til þessa við hönnun bílastæða fyrir nýjan Landspítala. Vikið er nánar að þessu í rammagrein hér til hliðar. Í samræmi við stefnuna Þorsteinn segir aðspurður þessa stefnumörkun ríma við stefnu borg- arinnar í umferðarmálum á svæðinu. „Þetta eru þær forsendur sem unnið er eftir. Við erum að hanna [umferðarmannvirkin] miðað við þessi uppbyggingaráform Landspít- alans. Landspítalinn er sjálfur með samgöngustefnu fyrir sína starfs- menn. Þetta ræðst töluvert af fjölda bílastæða og öðrum þáttum á Land- spítalalóðinni. Hver og ein bílferð byrjar og endar á bílastæði. Þannig að ef framboð er takmarkað þá tak- markast bílaumferð í leiðinni.“ Land takmörkuð auðlind Þorsteinn segir aðspurður þetta það sem koma skal með þéttari byggð, er Reykjavík breytist úr bæ í borg. „Land er takmörkuð auðlind og peningar eru takmörkuð auðlind líka. Það er ekki skynsamlegt að byggja endalaust af bílastæðum, enda felst í því mikill kostnaður. Ekki er óeðlilegt að miða við að bíla- stæði í húsi kosti 5 m.kr. eða meira.“ Þorsteinn segir aðspurður að í þessu efni sé horft til þess markmiðs í aðalskipulagi borgarinnar að lækka hlutfall bílferða af öllum ferðum úr 75% nú í 58% árið 2030. Sama mark- mið sé sett fram í svæðisskipulagi fyrir höfuðborgarsvæðið árið 2040. Björg Helgadóttir, verkefnastjóri hjá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar, vék að aukn- ingu umferðar í greinargerð með umferðartalningu 2016. „Það má leiða líkum að því að ástæðan fyrir aukningu í bílaumferð og umferð annarra ferðamáta sé fjölgun ferða- manna og íbúa á landinu,“ skrifaði Björg sem taldi uppgang í efnahags- lífinu sennilega helstu ástæðuna fyrir vaxandi umferð í borginni. Spurður hvort fjölgun ferðamanna og bílaleigubíla á síðustu árum hafi breytt forsendum skipulags umferðarmannvirkja við Hringbraut bendir Þorsteinn á nokkrar tölur. Samkvæmt talningu í sniði þrjú, vestan Kringlumýrarbrautar, hafi alls 170 þúsund bílar farið þar um á sólarhring árið 2007. Talan hafi hækkað í 172 þúsund 2012 og í rúm- lega 173 þúsund árið 2016. „Talning við snið þrjú sýnir litla hreyfingu til aukningar þrátt fyrir gríðarlega fjölgun ferðamanna. Það er ekki að sjá að það hafi orðið mikil breyting síðustu fimm til sjö árin. Það var einhver sveifla niður á við árið 2013 en annars hafa þetta verið 172 til 173 þús. bílar á sólarhring.“ Eykur afkastagetuna Haft var eftir Þorsteini í Morgun- blaðinu 11. janúar að hugmyndir væru um að leggja Miklubraut í stokk frá Kringlumýrarbraut að Snorrabraut. Þ.e. frá Kringlunni og að Snorrabraut við Landspítalann. Spurður hversu mikið stokkurinn muni auka afkastagetu umferðar- mannvirkja á svæðinu segir Þor- steinn að stokkurinn muni auka af- kastagetu á gatnamótum Kringlu- mýrarbrautar annars vegar og Lönguhlíðar hins vegar, eða á þeim gatnamótum sem stokkurinn mun fara undir. „Önnur gatnamót austar og vestar munu skammta umferð inn á kerfið, ef svo má að orði komast. Þau verða takmarkandi þáttur frek- ar en Kringlumýrarbraut og Löngu- hlíð,“ segir Þorsteinn. Notkun strætó muni stóraukast  Samgöngustjóri Reykjavíkur segir gert ráð fyrir breyttum ferðavenjum starfsfólks nýs Landspítala  Bílastæði kosti fjármuni  Greining SPITAL bendir til að starfsfólkið noti fjölda stæða í miðbænum Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Gatnamót Úr umferðinni við Landspítalann í gærmorgun. Umferðin er mest á morgnana og um eftirmiðdaginn. Auka á tíðni strætóferða á svæðinu. Þorsteinn R. Hermannsson Arnar Þór Ingólfsson athi@mbl.is Jóhannes Baldursson, fyrrverandi framkvæmdastjóri markaðsviðskipta hjá Glitni, ítrekaði sakleysi sitt fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Hann er ákærður ásamt fjórum öðr- um fyrir markaðsmisnotkun vegna viðskiptadeildar eigin viðskipta Glitnis með bréf í bankanum. „Ég gaf þeim engin fyrirmæli um fram- kvæmd viðskiptavaktar og skil því ekki að það segi í ákæru að þau hafi verið að undirlagi mínu,“ sagði Jó- hannes fyrir dómi. Honum, ásamt Lárusi Welding, þáverandi banka- stjóra Glitnis, er gefið að sök í ákæru málsns að hafa lagt á ráðin um um- fangsmikla markaðsmisnotkun á tímabilinu 1. júní 2007 til og með 26. september 2008. Markaðsmisnotk- unin hafi svo verið framkvæmd af þeim Jónasi Guðmundssyni, Valgarði Má Valgarðssyni og Pétri Jónassyni, sem störfuðu í deild eigin viðskipta Glitnis. Valgarð var, að eigin sögn, fenginn sérstaklega til bankans til að byggja upp viðskipti með erlend hlutabréf. Hann tók það fram í máli sínu að tím- inn í þessu máli hefði liðið alveg óskaplega og að hann væri ekki leng- ur sami 26-27 ára gamli drengurinn sem hann var þegar hann starfaði í deild eigin viðskipta hjá Glitni. Árið 2008 hefði hann kynnst konunni sinni og eignast fjögur börn síðan þá, sem sýndi kannski hversu langan tíma málið hefði tekið. Í ræðu Jónasar fyr- ir dómi kom fram að í starfi sínu hjá Glitni hefði hann verið starfsmaður á plani og ekki haft verulega fjárhags- lega hagsmuni af þeirri meintu mark- aðsmisnotkun sem ákært er fyrir og að það endurspeglaðist af mánaðar- launum hans, sem voru á þessum tíma um 750.000 kr. Réttað yfir Glitnismönnum Morgunblaðið/Kristinn Magnúss Aðalmeðferð Lárus Welding er einn af fimm sakborningum í málinu.  Sakborningar ítrekuðu sakleysi sitt  Rúm 9 ár liðin frá meintum brotum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.