Morgunblaðið - 18.01.2018, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 18.01.2018, Blaðsíða 36
36 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 2018 Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Evrópuþingið hefur samþykkt til- lögu um að banna umdeildar raf- magnsveiðar, eða rafstuðsveiðar, sem framkvæmdastjórn Evrópu- sambandsins hefur heimilað. Fram- kvæmdastjórnin hafði ætlað að auka umfang veiðanna í Norðursjó. Tillagan var samþykkt með 402 atkvæðum gegn 232 og 40 þingmenn sátu hjá. „Þetta er dásamlegur sigur á hræðilega skaðlegri veiðiaðferð,“ hafði fréttaveitan AFP eftir Yannick Jadot, þingmanni í Græna flokknum í Frakklandi, sem tók þátt í barátt- unni gegn veiðunum innan Evrópu- þingsins. Umhverfisráðherra Frakklands, Nicolas Hulot, sagði að franska stjórnin væri hlynnt algeru banni við rafmagnsveiðum. Ríkisstjórn Hollands kvaðst hins vegar vera andvíg slíku banni og sagði að rafmagnsveiðar væru betri fyrir umhverfið en veiðar með trolli. Undanþágur veittar frá veiðibanni Veiðiaðferðin felst í því að raf- skaut á tognetum senda rafboð ná- lægt sjávarbotninum og þau verða til þess að fiskurinn fær vöðva- krampa, reynir að flýja frá botninum og fer í netið. Slíkar rafmagnsveiðar eru bannaðar víða um heim, meðal annars í Bandaríkjunum og Kína. Evrópusambandið bannaði veið- arnar árið 1998 en undanþágur frá banninu hafa verið veittar frá árinu 2006. Samkvæmt reglum Evrópu- sambandsins má fiskiski0pafloti aðildarríkjanna veiða allt að 5% af árlegum kvóta sínum í Norðursjó með rafskautsbúnaði í tilraunaskyni. Margir hollenskir togarar hafa nýtt sér undanþáguna til að stunda raf- magnsveiðar á flatfiskum á borð við sólflúru. Að minnsta kosti 84 hol- lenskir togarar hafa veitt með þess- ari aðferð, að sögn fréttaveitunnar AFP. Um 28% hollenskra togara eru með búnað til rafmagnsveiða og samþykkt Evrópuþingsins er áfall fyrir hollensk útgerðarfyrirtæki sem hafa lagt mikið fé í þessa tækni, að sögn fréttavefjar Science. Samningaviðræður framundan Rafmagnsveiðar hafa verið stund- aðar í minna mæli í öðrum löndum. Til að mynda hafa tólf skip í Bret- landi fengið leyfi til rafmagnsveiða, að sögn breska dagblaðsins The Gu- ardian. Framkvæmdastjórn ESB hefur stefnt að því að auka umfang rafmagnsveiðanna í sunnanverðum Norðursjó og afnema regluna um að ekki megi veiða meira en 5% af heildaraflanum með þessari aðferð, að sögn AFP. Samþykkt þingsins er ekki endan- leg og framkvæmdastjórnin og sjávarútvegsráðherrar aðildarríkj- anna þurfa nú að semja um mála- miðlun áður en tillagan verður tekin aftur fyrir á þinginu. Frönsku umhverfisverndar- samtökin BLOOM höfðuðu mál gegn hollenska ríkinu í október sl. vegna rafmagnsveiðanna og beittu sér fyrir því að Evrópuþingið sam- þykkti bann við veiðiaðferðinni. Yfir 200 matreiðslumeistarar víða í Evr- ópu skrifuðu undir yfirlýsingu þar sem þeir hétu því að hætta að nota sjávarfang sem veitt væri með raf- stuðstækninni. Þeir sögðu að tog- arar, sem veiddu með þessari aðferð, kæmu með slæman afla að landi, auk þess sem þeir sköðuðu lífríkið í sjón- um. Andstæðingar rafmagnsveiðanna segja að þær séu grimmilegar, valdi fiskum sársauka, og drepi aðrar líf- verur sem ekki eru veiddar. „Ef menn nota rafstuð við fiskveiðar skaðar það allt lífríki sjávar,“ hefur BBC eftir Claire Nouvain, formanni BLOOM. Barátta samtakanna gegn rafmagnsveiðunum nýtur m.a. stuðnings samtaka smábátaeigenda í Frakklandi og Bretlandi. „Tilfinningarnar sigruðu“ Hollenska ríkisstjórnin segir hins vegar að togararnir, sem veiða með þessari aðferð, noti 46% minna af eldsneyti og veiði helmingi minni meðafla en aðrir togarar. „Afstaða hollensku stjórnarinnar er skýr: raf- magnsveiðar eru framtíðin,“ hefur BBC eftir Carola Schouten, land- búnaðar- og sjávarútvegsráðherra Hollands. Karmenu Vella, sem fer með sjávarútvegsmál í framkvæmda- stjórn ESB, tók í sama streng. Hann sagði að rafmagnsveiðar væru betri fyrir umhverfið en troll þar sem þær drægju úr losun gróðurhúsaloft- tegunda og skemmdu ekki sjávar- botninn. Pim Visser, framkvæmdastjóri hollensku sjómannasamtakanna Vis- Ned, sagði að samþykkt Evrópu- þingsins byggðist ekki á vísinda- rannsóknum. „Við urðum fyrir vonbrigðum vegna þess að gögn óháðra vísindamanna voru hunsuð og tilfinningarnar sigruðu.“ Skaðlegar veiðar eða vistvænni?  Evrópuþingið samþykkir tillögu um að banna rafmagnsveiðar  Sagðar skaða lífríki sjávar  Stuðningsmenn veiðanna segja þær leiða til mikils eldsneytissparnaðar og minnka meðafla Rafstuðsveiðar Frönsk samtök höfðuðu mál gegn slíkum veiðum í Hollandi í október sl. Veiðarnar bannaðar innan ESB árið 1998 Fiskveiðiskip aðildarríkjanna mega veiða allt að 5% af árlegum kvóta sínum í Norðursjó með þessari aðferð Lögin eru sögð hafa verið brotin Lög Evrópusambandsins 1 2 3 Veiði- aðferðin Togari Fiskur merst eða fær brunasár vegna rafstuðsins og í sumum tilvikum brotna bein* Botn lag Fiskur og aðrar lífverur fá rafstuð sem verður til þess að sjávardýrin hrökkva frá botninum upp í netið Undanþágur hafa verið veittar frá 2006 84 skip hafa veitt með aðferðinni í Hollandi, í stað 15 Rafspennan er milli 40 og 60 volt (Leyfð spenna = 15 V) Heimild: *IMARES, hollensk rannsóknastofnun í sjávarlíffræði. Rafmögnuð tognet eru dregin rétt yfir hafs- botninum AFP Skaðlegar? Andstæðingur raf- magnsveiða á Evrópuþinginu. Suður- og Norður-Kórea samþykktu í gær að keppendur landanna myndu ganga saman undir „einum fána Kóreu“ við setningu Vetrarólympíu- leikanna sem haldnir verða í Suður- Kóreu 9. til 25. febrúar. Ennfremur var ákveðið að löndin tvö sendu sameiginlegt lið í íshokkí kvenna. Samkomulagið náðist á fundi í landamærabænum Panmunjom, í fyrstu formlegu viðræðum hátt settra embættismanna landanna tveggja í rúm tvö ár. Senda hundruð manna Norður-Kóreumenn sögðust ætla að senda um 500 manns á Vetrar- ólympíuleikanna og Vetrarleika fatl- aðra. Þeir hyggjast einnig senda skíðamenn sína til æfinga með skíða- landsliði Suður-Kóreu á skíðastaðn- um Masikryong í Norður-Kóreu, að sögn fréttaveitunnar AFP. Á meðal þeirra sem Norður- Kóreumenn senda á leikana eru um 230 klappstýrur, 140 tónlistarmenn og 30 manna taekwondo-sýningar- flokkur, að sögn fréttavefjar breska ríkisútvarpsins. Alls verða um 150 Norður-Kóreumenn sendir á Vetrar- leika fatlaðra sem fara fram í Suður- Kóreu í mars. Deilt um sameiginlegt lið Sú ákvörðun að senda sameigin- legt kvennalið í íshokkí er umdeild í Suður-Kóreu. Þjálfari kvennaliðs Suður-Kóreu og íhaldssöm dagblöð höfðu sagt að lið Suður-Kóreu ætti meiri möguleika á að komast á verð- launapall í greininni en sameiginlegt lið landanna tveggja. Tugir þúsunda Suður-Kóreumanna undirrituðu áskorun til forseta landsins, Moon Jae-in, um að hafna áformunum. Ákvörðunin er háð samþykki Al- þjóðaólympíunefndarinnar, IOC, sem kemur saman í Lausanne í Sviss á laugardaginn kemur. Ganga saman undir einum fána  Kóreuríkin tvö semja um ÓL AFP Samið Sendinefndir Kóreuríkjanna takast í hendur á fundinum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.