Morgunblaðið - 18.01.2018, Side 38

Morgunblaðið - 18.01.2018, Side 38
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 2018 ÁSKRIFTARHAPPADRÆTTI MORGUNBLAÐSINS Drögum alla fimmtudaga í 10 vikur og nöfn vinningshafa verða birt í Morgunblaðinu á föstudögum.Stokkhólmur S tokkhólmur er í senn höf- uðborg Svíþjóðar og stærsta borg Norðurlanda, með um 945.000 þúsund íbúa. Elstu heimildir um nafnið ná aftur til ársins 1252, og er það eign- að Birger Jarl sem almennt er álit- inn einn af upphafsmönnum borg- arinnar. „Hólmur var líka réttnefni á sínum tíma þó að fleirtala ætti sjálfsagt betur við nú á dögum; borgin dreifist á alls 14 misstórar eyjar sem leikur einn er að fara um enda brýr að finna hvarvetna og alls eru þær 57 talsins. Þar af leið- andi er ótrúlega þægilegt að skoða sig um, vítt og breitt um Stokk- hólm. Fjöldi eyjanna í sænska skerjagarðinum gerir það að verk- um að borgin er oft nefnd „Fen- eyjar norðursins, og Svíar – þekktir fyrir lítillæti sitt og hógværð, nema hvað – kalla Stokkhólm gjarna „hina fljótandi fegurð“. Á móti því verður ekki mælt. Gamla Stan – elsti kjarni borgarinnar Eitt helsta aðdráttarafl Stokk- hólms er tvímælalaust hinn sögulegi gamli borgarhluti, Gamla Stan, þar sem gullfalleg mörg hundruð ára gömul hús, þröngar steinlagðar göt- ur og iðandi mannlíf mynda saman ómótstæðilega heild sem engan svíkur. Hér er að finna ótalmarga veitingastaði, kaffihús, hönn- unarbúðir og fleira. Skemmtilegast er að leggja hér götukortinu og snjallsímanum og ganga bara beint af augum. Ef heppnin er með er hægt að villast um stund, innan um söguleg húsin og heillandi andrúms- loftið. Fáar borgir í víðri veröld státa af jafn viðamiklum borg- arhluta frá miðöldum sem varðveist hefur jafn vel svo það er meira en þess virði að njóta staðar og stund- ar. Allt sem er sænskt, sænskt … Fagurkerar munu kunna ein- staklega vel við sig í Stokkhólmi því þar taka menn sjónræna þáttinn al- varlega. Hvort sem um er að ræða fallega hönnunarverslun eða huggu- legt kaffihús þá er eins gott að hafa augun hjá sér – jafnvel símann á lofti – því þar bíða ótal hugmyndir fyrir heimilið við hvert fótmál. Meira að segja innpökkunin á því sem þú kannt að versla er þess verðug að rata á Instagram fyrir smekkvísi og hugmyndaauðgi. Hér skilur maður svo mætavel hvers vegna heimurinn horfir til Norður- landa eftir hugmyndum; hinn hlý- legi og náttúrulegi minimalismi sem norræni stíllinn stendur fyrir er einfaldlega ómótstæðilegur. Búðu þig undir innblástur! Ómissandi að sjá í Stokkhólmi Þó að það sé einstaklega gaman að ganga um borgina án áætlunar og án áfangastaðar, þá eru engu að síður fjölmargir staðir í Stokkhólmi sem vart verður hjá því komist að heimsækja, því þeir eru einstakir í sinni röð. Vasa-skipið er til sýnis í samnefndu safni og þar geta gestir skoðað hið víðfræga herskip sem er hið eina í heiminum sem varðveist hefur frá 17. öld; Monteliusvagen er gönguleið sem gefur kost á falleg- asta útsýni að byggingum Stokk- hólms sem völ er á, ekki síst eftir að húma tekur og húsin eru upp- lýst; Fotografiska við Stadsgards- hamnen er einstakt safn með sam- tímaljósmyndum og geymir margar ógleymanlegar myndir; Skansinn er ómissandi fyrir fjölskylduna til að skoða hvernig daglegt líf, vinna og handverk var fyrr á öldum; loks verður að nefna Södermalm er að margra mati er eitt huggulegasta hverfið í Stokkhólmi, með kaffihús og veitingastaði á hverju horni – eins konar Brooklyn þeirra Stokk- hólmara! Græn svæði fyrir góða daga Í Stokkhólmi er að finna víðáttu- mikil græn svæði sem borgaryfir- völd hafa borið gæfu til að varð- veita, íbúum jafnt sem gestum til ómældrar ánægju. Fyrst er að nefna Djurgården, gleðireit fyrir alla fjölskylduna sem áður var veiðilendur konungsfjölskyldunnar. Skemmtigarðurinn Gröna Lund er þar með fjölbreyttum tækjum fyrir alla og Junibacken-safnið er helgað sænskum barnabókmenntum, með sköpunarverk Astrid Lindgren í öndvegi, enda stendur bronsstytta af henni fyrir utan bygginguna. Hægur vandi er að fara til Djur- gården því þangað gengur sér- stakur sporvagn sem hægt er að ná víða um Stokkhólm. Stokkhólmur, forn og fagur Það er heillandi upplifun að heimsækja Stokkhólm borgina sem kölluð er Feneyjar norðursins. Þó fáar borgir státi af jafn viðamiklum og vel varðveittum borgarhluta frá miðöldum þá er hún í senn miðstöð hátísku og hönnunar. Skemmtigarðurinn Gröna Lund er með fjölbreyttum leiktækjum fyrir alla Allir hafa gaman af að skoða heimkynni Línu Langsokks. Auðvelt er að ferðast um þessa sögufrægu höfuðborg, ýmist með sporvögnum eða öðrum almenningssamgöngum. Herskipið Vasa er hið eina í heiminum sem hefur varðveist frá 17. öld.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.