Morgunblaðið - 18.01.2018, Síða 42

Morgunblaðið - 18.01.2018, Síða 42
42 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 2018 - lægra verð Vítamíndagar afsláttur af öllum vítamínum 20–30% www.apotekarinn.is Að undanförnu hef- ur fjöldi kvenna tjáð sig um ofbeldi og kyn- ferðislega áreitni inn- an margra starfs- greina. Af þessu hefur spunnist mikil um- ræða í fjölmiðlum og ekki síður meðal fólks almennt. „Boðskap- urinn er einfaldur og skýr, hingað og ekki lengra. Yfirgangur verður ekki lengur liðinn,“ sagði forseti Íslands við setningu Alþing- is fimmtudaginn 14. desember sl. Rætt hefur verið um að við þess- um vanda verði brugðist með setn- ingu siðareglna, viðbragðs- og að- gerðaáætlana og að grunngildi séu undirrituð, áréttuð og yfirfarin reglulega. Þetta kemur m.a. fram í umfjöllun visis.is nú nýverið um of- beldi og áreitni gagnvart konum í tækni-, upplýsinga- og hugbún- aðariðnaði. Sama á við um ráðu- neytin eins og fram kom á ríkisstjórnarfundi 19. desember sl. og í ályktun Félags atvinnurek- enda frá 12. desember sl. svo fátt eitt sé nefnt. Þessi viðbrögð eru auðvitað góð og gild, en reglur og áætlanir duga skammt ef ekkert er farið eftir þeim. Það hefur stund- um hvarflað að mér að einmitt setning reglna og áætlana sé í sumum tilvikum aðferð yfirmanna til að koma sér út úr eigin vand- ræðum með því að sýnast taka á vanda sem þeir vilja í rauninni fela. Þá virðist mér að almennir starfsmenn eigi enga vörn með málskoti til æðra stjórnvalds, t.d. ráðuneytis, sem vísar málum gjarnan frá eftir málamyndarann- sókn eða tefur mál von úr viti í þeirri von að fólk gefist upp. „Sýndi óhlýðni við löglegt boð yfirmanns“ Fyrrverandi mennta- og menning- armálaráðherra var í viðtali í Morg- unútvarpi Rásar 2 miðvikudaginn 22. nóvember sl. þar sem kynferðisleg áreitni og ofbeldi var til umræðu. Hann taldi að eina gagnið fælist í því að þeir sem væru í kringum geranda beittu sér með þeim hætti að hann léti af sínu slæma hátta- lagi. Með öðrum orðum að um- hverfið ætti að reyna að hafa áhrif á gerendur og koma þannig í veg fyrir neikvæða breytni þeirra. Til að varpa ljósi á þetta atriði ætla ég að deila hér frásögn af reynslu minni sem starfsmaður Þjóðskjalasafns Íslands á árunum 2012-2014, en á þeim tíma hafði einn af stjórnendum safnsins, starfsmanna- og fjármálastjóri (kona), í frammi við mig einelt- istilburði. Ég reyndi að vekja at- hygli á málinu og ræddi í því skyni bæði við sviðsstjóra minn og síðan þjóðskjalavörð. Þeir gerðu ekkert í málinu. Þá brá ég á það ráð að vekja athygli á þessu á almennum starfsmannafundi. Afleiðing þessa varð að ég var boðuð á fund þjóð- skjalavarðar og mér tilkynnt áform hans um að veita mér áminningu með því að vekja máls á einelt- istilburðunum á starfsmannafund- inum. Ég hefði með þessu fram- ferði mínu „sýnt óhlýðni við löglegt boð yfirmanns“ sbr. 1. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfmanna ríkisins. Ég leitaði til stéttarfélags míns og það útvegaði mér lögmann sem fékk hrundið áformum þjóðskjalavarðar m.a. vegna þess að þau samrýmdust á engan hátt gildandi reglugerð um viðbrögð við einelti. Þessi máls- meðferð þjóðskjalavarðar er auð- vitað fráleit og dæmi um ofbeldi á vinnustað af hans hálfu. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar frá árinu 2010 kemur fram að al- mennt sé litið svo á að áminning skaði æru þess sem hana fær og forstöðumenn séu því yfirleitt tregir til að beita henni, nema til- efnið sé ærið. Þessi gætni er skilj- anleg í ljósi þess að meðalhófs- regla stjórnsýslulaga leggur þá skyldu á herðar forstöðumanna að því aðeins sé tekin íþyngjandi ákvörðun í máli starfsmanns að lögmætu markmiði, sem að er stefnt, verði ekki náð með öðru og vægara móti. „Skal þess þá gætt að ekki sé farið strangar í sakirnar en nauðsyn ber til“ segir enn- fremur í lögunum (1. mgr., 12. gr. laga nr. 37/1993). Þegar þessir atburðir gerðust var til staðar Viðbragðsáætlun Þjóðskjalasafns Íslands við einelti eða áreiti á vinnustað. Í þeirri áætlun er tiltekið að bregðast skuli við meintu einelti „á faglegan hátt og leggja áherslu á að leysa málið hið fyrsta og koma í veg fyrir frek- ara einelti“, að fara skuli „með þol- anda yfir málið og sannreynt hvort um einelti er að ræða, samkvæmt skilgreiningu á einelti“ og að meta skuli „þörf þolanda fyrir stuðning og honum veittur stuðningur sé þess þörf“. Þrátt fyrir að slík áætl- un væri til staðar og með þessum fyrirmælum fór þjóðskjalavörður ekki eftir neinum þeirra, heldur hóf umsvifalaust áminningarferli gagnvart mér. Þetta er lýsandi dæmi um að reglur og áætlanir koma ekki í veg fyrir valdbeitingu þegar yfirmaður á í hlut. Þá eru reglurnar og viðbragðsáætlanirnar lagðar til hliðar. Ég vitna hér til áréttingar í andmælabréf lög- manns míns vegna fyrirhugaðrar áminningar þar sem hann sagði að sá hefði höggvið er hlífa skyldi. Neyddist til að segja upp störfum Máli mínu lauk þannig að ég sá mig tilneydda til að segja upp störfum í Þjóðskjalasafni, þó að mér væri það óljúft. Ég leitaði í framhaldinu til æðra stjórnvalds, nefnilega mennta- og menningar- málaráðuneytis. Ég skrifaði bréf til tveggja ráðherra þar sem ég greindi frá málavöxtum og bað um að framganga þjóðskjalavarðar yrði skoðuð. Hvorugur sá ástæðu til þess að beita sér eins og fráfar- andi menntamálaráðherra lýsti í morgunútvarpinu 22. nóvember sl. og rakið er hér að ofan. Hann beitti sér ekki til þess að hafa áhrif á gerandann, þótt hann væri í aðstöðu til þess, heldur verð- launaði hann með því að fram- lengja skipun hans í stöðu þjóð- skjalavarðar á liðnu ári til næstu fimm ára. Honum hefði verið það í lófa lagið þegar skoðað er álit Um- boðsmanns Alþingis nr. 5718/2009 þess efnis að ráðuneyti geti tekið mál til umfjöllunar að eigin frum- kvæði og hafi ekki aðeins heimild til þess heldur að einnig gæti hvílt jákvæð athafnaskylda á því. Er það enn alvarlegra í ljósi þess að þetta er ekki eina umkvörtunin sem borist hefur í ráðuneytið vegna ofbeldis þjóðskjalavarðar gagnvart starfsfólki safnsins. Mál mitt er því miður ekki eins- dæmi þegar þjóðskjalavörður á í hlut. Fyrrverandi samstarfskona mín í Þjóðskjalasafni leitaði til stéttarfélags síns eftir að ég lét af störfum vegna kynferðislegrar áreitni sem hún taldi sig mega þola af hans hálfu. Stéttarfélagið leitaði til æðra stjórnvalds, mennta- og menningarmálaráðu- neytis, sem fól sálfræðistofu að skoða málið. Þessi kona hætti einnig störfum í Þjóðskjalasafni. Skömmu eftir árangurslausa til- raun til að áminna mig var starfs- maður safnsins (karlmaður) áminntur og honum síðan sagt upp störfum fyrir vægast sagt umdeil- anlegar sakir. Lögmaður hans taldi að áminningin hefði ekki átt við rök að styðjast og því engar eðli- legar málsástæður til uppsagnar. Hann benti ennfremur á að þessi starfsmaður hefði mátt þola einelti, m.a. af hálfu þjóðskjalavarðar. Starfsmaðurinn skaut máli sínu til æðra stjórnvalds, mennta- og menningarmálaráðuneytis, og þar er málið enn – meira en þúsund dögum síðar. Ráðuneytið hafði stefnt að niðurstöðu í málinu í ágúst sl., en ekki bólar á henni enn. Ekkert er hugsað um þau al- varlegu áhrif, bæði andleg og lík- amleg, sem aðför af þessum toga getur haft á þá sem í lenda. Kona sem gegndi stöðu sviðs- stjóra í Þjóðskjalasafni vann mál gegn safninu fyrir Kærunefnd jafnréttismála (mál nr. 3/2016). Málið varðaði ákvörðun þjóð- skjalavarðar um launakjör hennar, þar sem henni voru reiknaðar færri yfirvinnustundir en öðrum sviðsstjóra, karlkyns, í safninu. Hún hefur látið af störfum. Til viðbótar því sem að ofan greinir hafa fleiri starfsmenn Þjóðskjalasafns leitað til sinna stéttarfélaga vegna ástandsins í safninu. Fleiri en einn og fleiri en tveir starfsmenn hafa leitað sér hjálpar hjá sálfræðingum og lækn- um vegna álags og áfallastreitu, sem rekja mátti til stjórnarhátta þjóðskjalavarðar og nokkurra ann- arra yfirmanna safnsins. Starfs- mannavelta hefur verið mikil og gengi Þjóðskjalasafns í könnunum SFR um stofnun ársins hríðféll eftir að núverandi þjóðskjalavörður tók við störfum árið 2012. Ekkert hefur breyst Fjallað var um ástandið í Þjóð- skjalasafni á vef Ríkisútvarpsins ruv.is í júní sl. Þá fullyrti þjóð- skjalavörður að alltaf hefði verið brugðist við ábendingum um ein- elti á faglegan hátt. Varðandi vinnustaðamenninguna í safninu sagði hann jafnframt að verið væri að rifja upp gömul mál og starfs- mönnunum hefði ekki verið bolað í burtu! Hvenær teljast mál af þess- um toga gömul? Við vinnslu frétt- arinnar var haft samband við nokkra núverandi starfsmenn Þjóðskjalasafnsins sem vildu ekki koma fram undir nafni. Telja þeir að vinnustaðamenningin hafi lítið lagast á síðustu árum. Þrátt fyrir reglur, áætlanir og málskot til æðra stjórnvalds, mennta- og menningarmálaráðu- neytis, hefur ekkert gerst – enginn starfsmaður Þjóðskjalasafns hefur fengið neinar undirtektir varðandi umkvartanir sínar. Þeirra eina úr- ræði er að láta af störfum þegar þeir telja sig ekki geta hafst leng- ur við á þessum vinnustað. Ætla má að þjóðskjalavörður starfi í skjóli ráðuneytis þar sem hann hefur nú nýverið verið verðlaunað- ur með framlengingu ráðningar til næstu fimm ára eins og áður er nefnt. Enginn sér ástæðu til að leggja eyru við málstað starfs- manna. Þrátt fyrir mikla umræðu í þjóðfélaginu gerist í raun ekki neitt. Í ráðuneytinu virðist þess beðið að framganga þjóð- skjalavarðar í starfsmannamálum gleymist. Ætlar hinn nýskipaði mennta- og menningarmálaráð- herra að taka upp þráðinn? Hún leysir a.m.k. ekki vandann í Þjóð- skjalasafni með því að senda fyr- irspurn til þeirrar stofnunar um hvort gert hafi verið áhættumat og gefin út skrifleg viðbragðsáætlun í samræmi við reglugerð um aðgerð- ir gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og of- beldi á vinnustöðum eins og hún hefur boðað. Er ekki kominn tími til að taka undir með forsetanum og segja: „Hingað og ekki lengra“? Hingað og ekki lengra Eftir Elínu S. Kristinsdóttur » Starfað í skjóli ráðu- neytis? Kynferðisleg áreitni og annað ofbeldi í Þjóðskjalasafni. Elín S. Kristinsdóttir Höfundur er stjórnsýslufræðingur. Atvinnublað alla laugardaga mbl.is ER ATVINNUAUGLÝSINGIN ÞÍN Á BESTA STAÐ?
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.