Morgunblaðið - 18.01.2018, Side 43

Morgunblaðið - 18.01.2018, Side 43
Umræðan MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 2018 Það er ekki aðeins auðurinn sem er mis- skipt í heiminum, einnig vald og frelsi. Þeir ríku verða ríkari og þeir fátæku fátæk- ari. Þetta virðist vera óhjákvæmileg afleið- ing hagkerfisins, kap- ítalismans, sem er alls ráðandi. Arðrán og kúgun eru fylgifiskar. Þetta lærði ég í Bandaríkjunum 17 ára gamall skiptinemi á vegum Þjóðkirkjunnar og það hefur síður en svo breyst síðan, bara versnað. Aðskilnaðarstefna í Suður-Afríku og Bandaríkjunum sjálfum og stríð í Víetnam, Laos og Kambó- díu og í ótal löndum í þremur heimsálfum sem bandaríska heimsvaldastefnan stóð fyrir, þetta voru umræðuefnin í æskulýðsstarfi Safnaðarkirkjunnar í Seattle árin 1964-1965. Víetnam vann sigur og nýlendur í Afríku fengu sjálfstæði á áttunda áratug síðustu aldar. Með snið- göngu umheimsins gegn ap- artheid-stjórninni en þó fyrst og fremst baráttu Suður-Afríku- manna sjálfra vannst sigur á að- skilnaðarstefnunni. Allir á móti öllum Nú heyja Bandaríkin og banda- menn þeirra stríð á öðrum slóðum, einkum í Asíulöndum, Austur- löndum nær, í Norður-Afríku og á Arabíuskaga. Helstu bandamenn auk NATO-ríkja eru Ísrael og Sádi-Arabía. Ísrael hefur meira en nokkur annar aðili kynt undir stríðsæði Bandaríkjanna, í Írak, Afganistan, Líbýu, Sýrlandi og Ye- men. Og leiðtogar Ísraels hafa lengi alið með sér draum um að Bandaríkin fari í allsherjarstríð gegn Íran og jafnvel hótað að nota sín eigin kjarnorkuvopn á Íran. Sádar hafa tekið við aðal- hlutverki í stríðinu í Yemen og beita af alkunnri grimmd banda- rískum hátæknivopnum gegn íbú- unum. Þessi staða finnst ísr- aelskum hernaðarsinnum vera óskastaða. Allir á móti öllum í Austurlöndum nær og á meðan eflist aðskiln- aðarríkið Ísrael, þar sem ein trúarbrögð eru rétthærri öðrum. Þá er Palestína ótalin, hernámið 1948 og síðan hertaka alls landsins í júní 1967. Allt hefur þetta verið með stuðningi Banda- ríkjanna, vopnum og fjármagni. Innfluttir gyðingar hafa smám saman og í stórum stökkum lagt alla Palestínu undir sig, virt alþjóðalög að vettugi, þar með ályktanir Sameinuðu þjóð- anna. Bandaríkin hafa þóst leika hlutverk hlutlauss sáttasemjara en sú blekking gufaði endanlega upp með nýjustu forsetanefnu í Wash- ington. Síðasti forseti Bandaríkjanna sem sýndi viðlit í þá átt að virða réttindi palestínsku þjóðarinnar var Bush eldri með James Baker utanríkisráðherra sér við hlið, vel á minnst hægri menn og repúblik- anar. Elstu menn í Palestínu muna Eisenhower hershöfðingja og for- seta og sakna hans og þeirrar af- stöðu sem hann stóð fyrir. Hún einkenndist af virðingu fyrir þjóð- arréttindum Palestínumanna. Nú er öldin önnur og auðvitað sprengir Tromparinn öll mörk í vitleysu og virðingarleysi. Jól í Landinu helga Fjölskylda mín var yfir jólin í Landinu helga og naut þess að vera á hinum söguhelgu stöðum. En hvar sem komið var sáust um- merki hernámsins og uppreisnar- innar gegn því. Í rauninni friðsöm mótmæli í öllum bæjum, kveikt í dekkjahrúgum, farið í mótmæla- göngur og einstaka kastaði grjóti í átt að herbílum og þungvopnuðum hermönnum. Þessu var mætt með táragasi og skothríð af hálfu Ísr- aelshers á landi Palestínumanna. Spurt er hvort einhver von sé um frið. Það er ansi djúpt á friði hjá landræningjunum á Vestur- bakkanum sem Björk Vilhelms- dóttir og félagar hennar í Al- þjóðlegri friðarþjónustu kvenna (IWPS) hafa kynnst í starfi sínu með bændum og fjölskyldum þeirra í Salfit héraði, sunnan Na- blus. Þær aðstoða við ólífutínslu þar sem bændum er ógnað af landræningjum og hernámsliði sem styður við ofbeldið. Reynt er að grýta tínslufólk og því er ógnað með skotfærum. Innflytjendur frá Bandaríkjunum, Frakklandi og ýmsum löndum njóta alls réttar og fríðinda fyrir að setjast að í landránsbyggðum. Það verður að segjast að þetta fólk virðist af allt öðru sauðahúsi en flest fólk sem áður byggði Ísrael og á sama hátt hefur ástandið í hernum og í stjórnmálum gjörbreyst á 20-30 árum. Öfgafólk sem ekki þótti í húsum hæft á þingi er nú ráðandi í Knesset og situr á ráðherrastól- um. Þrautseigja, hugrekki og friðarvilji Á þeim tíma sem ég hef verið að ferðast til Palestínu, eða frá 1990, hafa landtökubyggðirnar marg- faldast að stærð og ekki færri en hálf milljón aðfluttra gyðinga sest þar að. Þessi flutningur fólks inn á hernámssvæði er brot á al- þjóðalögum, en ísraelsk yfirvöld virðast eiga ótrúlega auðvelt með að virða alþjóðalög og samþykktir Sameinuðu þjóðanna að vettugi. Ef of langt líður á milli minna ferða dofnar vonarneistinn. En það er segin saga að dvöl í Palest- ínu og samneyti við fólkið þar snýr þessu við. Þrautseigja Pal- estínumanna, hugrekki þeirra og friðarvilji margeflir vonir um rétt- læti og frið. Vonin býr þar sem ógnir stríðs og kúgunar vofa yfir. Gleðilegt ár friðar, mannrétt- inda og farsældar. Þar sem vonin býr Eftir Svein Rúnar Hauksson » Þrautseigja Palest- ínumanna, hugrekki þeirra og friðarvilji margeflir vonir um rétt- læti og frið. Vonin býr þar sem ógnir stríðs og kúgunar vofa yfir. Sveinn Rúnar Hauksson Höfundur er læknir. Undirfö t Sundfö t Náttföt Náttkjó lar Sloppa r Bláu húsin v/Faxafen Sími 553 7355 • www.selena.is • Selena undirfataverslun • Næg bílastæði ÚT er hafin Allar útsöluvörur með 30-60% afslætti ÚTSALA af útsölu- vörum í eftirtöldum verslunum 30-50% AFSLÁTTUR 2. - 21. JANÚAR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.