Morgunblaðið - 18.01.2018, Síða 46

Morgunblaðið - 18.01.2018, Síða 46
Dr. Snjólaug Árnadóttir kynnir í dag niðurstöður doktorsrannsóknar sinnar, sem fjallar um tilkall ríkja til auðlinda í hafi. Fyrirlesturinn hefst klukkan tólf á hádegi í stofu V-102 í Háskólanum í Reykjavík. þjóðarétti frá Edinborgarháskóla. Í samtali við Morgunblaðið bendir Snjólaug á að einhliða mörk lögsögu Íslands, þ.e. þar sem hafsvæði Fær- eyja og Grænlands skarast ekki við lögsöguna, séu ekki fyllilega traust í sessi að svo stöddu. Samkvæmt ákvæðum hafréttarsáttmála Samein- uðu þjóðanna þurfi að lýsa umrædd- um mörkum með kortum og hnitum fyrir aðalframkvæmdastjóra Samein- uðu þjóðanna. Réttindin í meiri óvissu „Það getur skipt miklu máli fyrir Ís- land að einhliða mörk séu skráð í sam- ræmi við hafréttarsamning SÞ, því Al- þjóðadómstóllinn í Haag hefur litið til þess við mat á gildi slíkra marka. Ef ríki mótmæla mörkunum ekki eftir að þau eru skráð má svo líta þannig á að þau hafi gefið þeim þögult samþykki sitt. En eins og staðan er núna, þá geta ríki mótmælt þeim hvenær sem er. Ef málið færi fyrir dómstóla þá væri aðeins hægt að byggja á ein- hliða mörkum að því marki sem þau uppfylla skilyrði þjóðaréttar. Við mat á því væri litið til þess hvort mót- mæli hefðu komið fram eftir lög- mæta skráningu.“ Í dómi Al- þjóðadómstólsins í Haag, í máli Rúmeníu gegn Úkraínu, kom fram að ef búið er að lýsa einhliða mörkum fyrir aðalframkvæmdastjóra SÞ og engin mótmæli koma fram, þá fyrst geta mörkin orðið algjörlega bindandi. „Fram að þeim tíma eru réttindin okkar í meiri óvissu,“ segir Snjólaug. Grunnlínur gætu sætt gagnrýni Hafsvæði ríkja eru jafnan ekki mæld út frá strandlengjunni sjálfri heldur grunnlínum. Út frá þeim er meðal annars landhelgi og efnahags- lögsaga ákvörðuð, þar með talin fisk- veiðilögsaga sem er Íslendingum að sjálfsögðu mikið hagsmunamál. Al- mennt eiga þessar grunnlínur að fylgja stórstraumsfjöruborði strand- lengju viðkomandi ríkis, en þegar hún er mjög vogskorin og óregluleg, eða ef strandeyjaröð er í næsta nágrenni, getur ríki dregið beina línu á milli við- eigandi grunnlínupunkta. Sú aðferð hefur verið notuð hér á landi. Snjólaug segir grunnlínur Íslands geta sætt gagnrýni og tekur sem dæmi grunnlínuna sem dregin hefur verið þvert yfir Faxaflóann. Hún geti talist óhófleg á alþjóðlegan mæli- kvarða en mál vegna slíkra óhóflegra grunnlína hafa farið fyrir Alþjóðadóm- stólinn í Haag. „Við erum með nokkuð beinar Skúli Halldórsson sh@mbl.is Eigi hafsvæði Íslands ekki að skerðast á komandi árum, þurfa íslensk stjórn- völd að huga að því að lýsa mörkum hennar og skila gögnum þar að lútandi til Sameinuðu þjóðanna. Þetta segir dr. Snjólaug Árnadóttir, sem útskrif- aðist í desember með doktorspróf í grunnlínur, við lokum til dæmis Faxa- flóa með línu þvert yfir han og notum grunnlínupunkta sem önnur ríki gætu véfengt, og byrjum í raun ekki að telja hafsvæðið okkar fyrr en út frá þeim línum,“ segir hún og bætir við: „Ef allt færi á versta veg eftir mót- mæli annars ríkis, þá þyrftum við að fara niður í venjulegar grunnlínur, sem færu í kringum hvert einasta sker og algjörlega meðfram strandlengj- unni.“ Enn fremur bendir hún á að Geir- fugladrangur undan ströndum Reykjaness sé að fara í kaf, og jafnvel megi halda því fram að sú sé þegar raunin. Drangurinn var áður um tíu metra hár en er nú flæðisker, og tapi hann stöðu sinni minnkar íslenska lög- sagan um tíu til fimmtán þúsund fer- kílómetra. „Ef við viljum virkilega tryggja hann sem grunnlínupunkt, og treysta á að mörkunum verði ekki breytt þeg- ar sum þeirra landsvæða sem við mið- um við fara í kaf, þá verðum við að lýsa mörkunum fyrir aðalframkvæmda- stjóra Sameinuðu þjóðanna.“ Miklar breytingar yfirvofandi Doktorsritgerð Snjólaugar fjallar um tilkall ríkja til auðlinda í hafi og þær breytingar sem verða á umfangi þessara réttinda þegar strandlínur breytast, til dæmis vegna hækkunar sjávarmáls, landrofs, landriss, eldgosa og manngerðra breytinga. Þessar yfir- vofandi breytingar gefi tilefni til að endurskoða viðteknar hugmyndir um landfræðilegan stöðugleika sem grundvöll réttinda í þjóðarétti, en fram til þessa hefur verið óljóst hvort gildandi reglur geri ráð fyrir að um- hverfisbreytingar hafi áhrif á afmörk- un hafsvæða milli aðlægra og mót- lægra ríkja og hvort samningum megi rifta á grundvelli gjörbreyttra land- fræðilegra aðstæðna. „Ég varð ofboðslega heilluð af þessu sviði lögfræðinnar eftir að ég skráði mig í námskeið í hafrétti í Gautaborg. Þá bjó ég á pínulítilli eyju við hafið og fékk þetta alveg á heil- ann,“ segir Snjólaug. „Í kennslubók- inni var ekkert fjallað um þessar yfirvofandi breytingar. Bara ein setn- ing um að öll réttindi yfir hafsvæðum væru mæld frá strandlengjunni, þær væru hins vegar að breytast um allan heim og að enginn vissi hvað það hefði í för með sér.“ Mörgum spurningum var því ósvar- að, fannst Snjólaugu, og afréð hún að leita þeirra svara. „Mér fannst að einhver þyrfti að taka þetta fyrir og stökk til, enda spennandi og áhrifamikið viðfangs- efni. Allar þessar yfirvofandi breyt- ingar geta virkilega farið að breyta kortinu.“ Surtsey framlengdi lögsöguna Hún segir breytingarnar líklega ekki munu koma jafn illa niður á Ís- landi og mörgum öðrum ríkjum, enda sé gert ráð fyrir landrisi hérlendis vegna bráðnunar jökla. „Þá geta réttindi okkar í raun auk- ist, og eins ef aðrar eyjar verða til við landið eins og í tilfelli Surtseyjar árið 1963. Þá verða til ný hafsvæði sem falla undir okkar lögsögu. Þetta getur því komið sér vel fyrir okkur að þessu leyti, en á sama tíma standa ýmis lönd í Kyrrahafi frammi fyrir því að missa allt tilkall til haf- svæða, en um leið og landsvæði verða óbyggileg þá geta viðkomandi ríki ekki gert tilkall til tiltekinna hafsvæða á grundvelli þeirra.“ Snjólaug bendir á að Surtsey hafi til að mynda framlengt efnahagslögsög- una sem nemur fjarlægð hennar frá næsta fasta landi. „Ekki er ljóst hvort Surtsey myndi skapa tilkall til efnahagslögsögu og landgrunns ef hún hefði til dæmis orð- ið til við eldgos á síðasta ári,“ segir hún. „Segja má að skilyrðin til að telj- ast eyja séu að verða stífari, eftir að ákvörðun gerðardóms í Suður- Kínahafsdeilunni síðastliðið sumar setti markið hátt. En vegna þess að við erum þegar búin að semja um haf- svæðið í kringum Surtsey þá verður því ekki breytt svo auðveldlega.“ Morgunblaðið/RAX Flogið yfir Eldey Eyjarnar, skerin og drangarnir umhverfis Ísland hafa mótað grunnlínur efnahagslögsögunnar um árabil. Eldeyjardrangur þar á meðal. Stjórnvöld treysti mörk lögsögunnar Surtsey verður til Tilkoma eyjarinnar framlengdi efnahagslögsöguna. Snjólaug Árnadóttir MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 2018 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum PON Pétur O. Nikulásson ehf. Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður | Sími: 580 0110 | pon.is skotbómulyftara AG línan frá Manitou býður meðal annars upp á nýtt ökumannshús með góðu aðgengi og útsýni. HANNAÐUR TIL AÐ VINNA VERKIN NÝ KYNSLÓÐ • DSB stjórntakkar • JSM stýripinni í fjaðrandi armi • Stýrð stjórnun og hraði á öllum glussahreyfingum • Virk dempun á bómu Íshúsið ehf ∑ Smiðjuvegur 4a, græn gata, 200 Kópavogur viftur.is -andaðuléttar hljóðlátu baðvifturnar Stundum þarf maður bara smá frið Atvinna
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.