Morgunblaðið - 18.01.2018, Page 70

Morgunblaðið - 18.01.2018, Page 70
70 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 2018 Stórt skarð er höggvið í systkina- hópinn sem ólst upp á efri hæðinni að Eyrarvegi 12 á Selfossi upp úr miðri síðustu öld, nú þegar stóra systir mín Vilborg Árný er dáin. Hún var fimm ára þegar ég fædd- ist og gaf mér gælunafnið mitt (Systa). Hún sagðist hafa verið ánægð að eignast litla systur en gamanið hafi farið að kárna þegar hún þurfti alltaf að passa mig. En hún var alltaf góð við mig og hjálpaði mér að læra að hjóla. Hún hljóp Eyrarveginn fram og til baka og hélt í hjólið þar til ég náði þeirri færni, einnig kenndi hún mér að „húlla“ og að „gera með tveimur“. Ég man vel her- bergið hennar og þegar hún keypti Bravóblöðin og safnaði pörtum af Elvis Presley í fullri lík- amsstærð og hengdi á hurðina, vá hvað mér fannst þetta flott. Ég leit mikið upp til hennar og vildi gera allt eins og hún, t.d.vera jafn lengi úti á kvöldin,fannst við vera „jafnöldrur“. Fermingarárið sitt réð hún sig í kaupavinnu í sveit, það gerði einnig Reykjavíkur- drengur sem var árinu eldri. Þau fóru að draga sig saman og fram- tíð þeirra varð ráðin. Meðan Vil- borg var enn í foreldrahúsum eignuðust þau Ingibjörgu og bjuggu þær mæðgur þar, á meðan Einar lauk kennaranámi, þá fluttu þau saman í Kópavoginn. Örlög okkar systra urðu þau að við bjuggum oftast annaðhvort á sama stað eða nálægt hvor ann- arri. Ég flutti t.d. til þeirra og fékk að sofa í stofunni í heilt ár. Maríubakki 14 varð síðan þeirra heimili og Óli bættist í hópinn. Þegar við Bjössi fórum að búa fluttum við að Maríubakka 4 og urðu samskiptin þar af leiðandi áfram náin. Vilborg og fjölskylda fluttu til Noregs þegar Einar fór í framhaldsnám og þar vann hún m.a. við heimaþjónustu og á hót- eli. Þegar heim kom fluttu þau í Mosfellssveitina og stuttu seinna flutti mín fjölskylda þangað einn- ig. Vilborg varð þroskaþjálfi nokkrum árum á eftir mér, þar með urðum við einnig stéttarsyst- ur og um tíma samstarfsfélagar. Allt þetta varð til þess að treysta böndin enn frekar og þarna vor- um við orðnar „jafnöldrur“. Margar hefðir héldum við í heiðri, t.d. komu fjölskyldur okkar alltaf saman fyrir jólin og bökuðu laufa- brauð og það var sko gert frá „grunni“ eins og mamma gerði- .Við bjuggum til nýjar hefðir og eru 45 ár síðan við fórum að hitt- ast á Þorláksmessu til skiptis á heimilum okkar og smakka heitt jólahangikjötið, um svipað leyti fórum við að hittast á hverju gamlárskvöldi á heimili þeirra Einars. Nýliðnar hátíðir og und- irbúningur þeirra hafa því verið erfiðar vegna veikinda Vilborgar og var hennar sárt saknað. Hún var mikil fjölskyldumanneskja og naut þess að hafa fólkið sitt í kringum sig. Við Bjössi og stór- fjölskyldan úr Njarðarholtinu sendum Einari, Ingibjörgu, Óla og fjölskyldum þeirra okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Minn- ingarnar lifa. Jarþrúður Einarsdóttir (Systa). Af einstakri hlýju tók tengda- móðir mín, Vilborg, á móti mér fyrir tveimur áratugum og bauð mig velkomna í fjölskyldu sína. Mér var mikið í mun að koma vel Vilborg Árný Einarsdóttir ✝ Vilborg ÁrnýEinarsdóttir fæddist 10. ágúst 1946. Hún lést 4. janúar 2018. Útför Vilborgar fór fram 15. janúar 2018. fyrir, enda meira en lítið hugfangin af syni hennar. En fólk þurfti ekki að taka inntökupróf í hennar fjölskyldu, það var nóg að vilja tilheyra hennar fólki. Við sem tengdumst henni blóðböndum eða í gegnum hjú- skap urðum svo lán- söm að eignast í henni okkar mesta vin og aðdá- anda. Fjölskyldan var nefnilega hennar stærsta áhugamál. Hún hafði unun af því að annast um fólkið sitt, gleðjast með því og segja sögur jafnvel af pínulitlum afrekum þess. Alla afmælisdaga, brúðkaupsafmæli og stundum læknistíma annarra kunni Vil- borg utanbókar og oft naut ég góðs af því að geta flett upp í henni. Vilborg ákvað ung að árum að verða framúrskarandi amma og börnin mín nutu sannarlega góðs af þessu markmiði hennar. Amma Bogga varð kjölfesta í lífi þeirra þar sem hún beinlínis ann- aðist þau öll eftir að fæðingaror- lofi okkar foreldranna lauk. Og á þessum dýrmæta tíma sem börn- in fengu með henni lærðu þau að spila, föndra, gróðursetja og vingast við smáfugla hverfisins. En þau lærðu fyrst og fremst að þau væru öll einstök. Nú þegar miðjan í þessum litla alheimi okkar er horfin er sem við höfum einhvern veginn misst fót- anna. Mikið sem við söknum kær- leikans, athyglinnar og þess að vera í samvistum við hana. Elsku Bogga, ég verð þér ætíð þakklát fyrir allt sem þú varst og allt sem þú gafst okkur. Megir þú hvíla í friði. Elva Brá. Að eignast vin tekur eitt and- artak en að vera vinur tekur alla ævina. Þessi setning kemur upp í hugann er ég minnist vinkonu minnar Vilborgar Einarsdóttur, eða Boggu eins og hún var kölluð. Áralöng trygg vinátta er fögur og yljar og minningarnar streyma fram líkt og árniður. Ég kynntist Boggu fyrst í ferð sem nýútskrifaðir kennarar fóru í til Kaupmannahafnar, Ítalíu og London. Við Einar vorum skóla- systkini og í þessari ferð voru makar okkar með. Þetta var árið 1967. Við áttum oft eftir að minn- ast á þessa ógleymanlegu ferð. Herbergisgólfið hjá Boggu og Einari í Feneyjum hallaði svo mikið að ef settur var hlutur út við vegg rann hann yfir gólfið á vegg- inn á móti. Eftir að hafa keyrt um Ítalíu í marga daga enduðum við á ströndinni Lignano. Þar leigðum við okkur m.a. tveggja manna hjólabát sem við skiptumst á að nota og einnig tveggja manna hjól, en svoleiðis fyrirbæri höfð- um við ekki séð áður. Það voru engar verslanir við ströndina þannig að við hjóluðum í bæinn m.a. til að kaupa barnaföt. Heima á Íslandi áttum við tveggja ára börn, þau Ingibjörgu og við Sig- urð. Árið 1968 byrjuðu þeir saman í bridgeklúbbi Einar og Víðir. Þessi hópur í bridgeklúbbnum og makar höfum átt margar ánægju- stundir saman og ferðast bæði innanlands og utan og skötuveisla í desember var eitt af því sem allt- af var á dagskrá. Við Bogga mættum alltaf ásamt mökum okkar í afmæli hvor hjá annarri. Í nokkur ár bjuggu þau Bogga og Einar í göngufæri frá okkur á Kársnesinu og þá var oft farið á milli. Einu sinni að sumri til ákváðum við með stuttum fyrir- vara að ferðast saman til Akur- eyrar, þar sem við áttum yndis- lega helgi saman. Á leiðinni norður drukkum við kaffi hjá skólasystur okkar Einars og ég hafði hlaupið inn að vita hvort hún væri heima og hún heyrði ekki rétt þegar ég sagði hvaða fólk væri með mér. Þegar við vorum rétt sest niður með kaffið sagði hún allt í einu við Einar: „Mikið rosalega ertu líkur honum Einari Hólm.“ Við höfum hlegið að þessu alla tíð síðan. Við Bogga áttum þá sameigin- legu reynslu að hafa farið í miklar höfuðaðgerðir, hún 12 árum á undan mér. Hún kom til mín með flottar höfuðslæður eftir að ég kom úr minni aðgerð og gaf mér góð ráð. Slæðurnar notaði ég áður en ég gat farið að nota hárkollu. Bogga var þroskaþjálfi og naut sín í því starfi. Hún las mikið og orti ljóð. Bridgefélagarnir og makar buðu okkur Víði austur í Fljótshlíð yfir helgi í júní 2004 í tilefni 60 ára afmælis okkar beggja. Þar voru tekin á leigu tvö sumarhús. Þá flutti Bogga okkur ljóð sem hún orti til okkar. Einnig fengum við ljóð frá henni er hún kom fyrst til okkar í sumarbú- staðinn. Ég þakka samfylgdina og ára- langa tryggð og vináttu. Einari, Ingibjörgu, Ólafi og að- standendum öllum votta ég mína dýpstu samúð. Jóhanna Á. Þorvaldsdóttir. Þegar litið er til ævi okkar mannanna eru fimmtíu ár nokkuð langur tími þótt stuttur geti verið þegar önnur viðmið eru notuð. Í ár eru einmitt fimmtíu ár síðan ég kynntist hinni ágætu konu, Vil- borgu Einarsdóttur, sem við kveðjum í dag. Við andlát hennar hafa minningar frá fyrstu kynn- um okkar komið sterkt í hugann. Það var haustið 1968 sem Kenn- araskóli Íslands bauð íslenskum kennurum í fyrsta sinn upp á að stunda eins árs framhaldsnám við skólann og í þetta fyrsta sinn varð nám í sérkennslufræðum fyrir valinu. Kallinu svöruðu níu kenn- arar, þeirra á meðal ég. Námið einkenndist af stífri tímasókn sex daga vikunnar og gerði starf sam- hliða náminu næstum útilokað. Litli nemendahópurinn fann snemma að stundum væri gott að takast á við námið saman, leita lausna og finna leiðir. Brátt fór svo að makar og fjölskyldur urðu beinir þátttakendur í glímu við strembna texta á erlendum tungumálum og aðrar kröfur sem gerðar voru, því metnaður stjórn- enda námsins var mikill og þeim fannst á þeirra ábyrgð að sýna fram á að hér væri um fullgilt eins árs nám að ræða – ekki léttvægt „námskeið“ . Þennan eftirminni- lega vetur kynntist ég Vilborgu því hún var í hópi makanna, eig- inkona Einars Hólm Ólafssonar, sem að námi loknu varð samkenn- ari minn við Höfðaskóla og seinna skólastjóri Öskjuhlíðarskóla. Þótt þau hjónin væru í nokkur ár við nám og störf í Noregi og á Skála- túni slitnaði þráðurinn ekki því Öskjuhlíðarskóli í Reykjavík átti eftir að njóta starfskrafta þeirra beggja vel og lengi en þau komu bæði til starfa á skólastjóraárum mínum. Vilborg tók að sér að veita skóladagheimili á vegum Öskju- hlíðarskóla forstöðu haustið 1981 og gegndi því starfi til ársins 1996. Þá hafði Reykjavíkurborg tekið við rekstri skólans af ríkinu og var þessi þjónusta skólans þá lögð niður. Menntun Vilborgar sem þroskaþjálfi nýttist afar vel starf- inu að Lindaflöt 41 og var dagvist- un og umönnum barna og ung- linga með mikla hreyfihömlun sinnt af fagmennsku, stakri alúð og nákvæmni. Öskjuhlíðarskóli var lagður niður fyrir allmörgum árum, en fyrrverandi starfsmenn hafa tengst sterkum vináttubönd- um, myndað svokallað „átthaga- félag“ og hafa notið samvista á mánaðarlegum kaffifundum og lengri skemmtikvöldum. Á þess- um sérstöku samkomum var Vil- borg jafnan glöð í góðra vina hópi, lét sér annt um hagi fólks, miðlaði öðrum af reynslu sinni, greindi frá gleðitíðindum af börnum og barnabörnum, ferðum og dvöl í sælureit þeirra í sumarhúsinu. Nærvera hennar var styrkjandi og uppörvandi. Á skilnaðarstundu hafa rifjast upp hlýjar minningar frá ótal góð- um stundum með Vilborgu í leik og starfi á liðnum áratugum sem ég er afar þakklát fyrir. Ég leyfi mér ekki hvað síst að þakka fram- lag hennar í þágu hins flókna starfs og uppbyggingar nauðsyn- legrar þjónustu við börnin sem voru í umsjá okkar og við foreldra þeirra og aðstandendur. Ég veit að hugur allra fyrrver- andi starfsmanna Öskjuhlíðar- skóla er nú hjá Einari og fjöl- skyldu og sjálf votta ég þeim mína dýpstu samúð. Jóhanna G. Kristjánsdóttir. Veistu ef þú vin átt þann er þú vel trúir og vilt þú af honum gott geta. Geði skaltu við þann blanda og gjöfum skipta, fara að finna oft. (Úr Hávamálum.) Á mótum lífs og dauða koma upp í hugann margvíslegar minn- ingar af kynnum við þá, sem við mætum á ferð okkar. Sum eru stutt og gleymast fljótt, önnur lengri og leiða til vináttu, sem aldrei rofnar. Sú vinátta, sem við eignuðumst í ykkur hjónum fyrir áratugum, kæra Vilborg, var traust, gefandi og áreynslulaus. Við minnumst ánægjulegra sam- verustunda heima hjá hvort öðru, við munum ferðir um landið og við munum ferðir til útlanda, en ann- aðhvort var lengi nánast árlegur viðburður. Við munum margt fleira frá sameiginlegri vegferð, sem verður varðveitt í brunni minninganna. Lífið er hins vegar ekki alltaf dans á rósum. Skýi getur brugðið fyrir sólu fyrirvaralaust og án við- vörunar. Alltaf birtir upp um síðir en stundum heldur skuggi skýs- ins áfram að deyfa birtu sólar- ljóssins. Það fékkst þú að reyna fyrir meira en þrjátíu árum þegar þú veiktist skyndilega, enn í blóma lífsins. Lífi þínu var alvar- lega ógnað og það var tvísýnt hvort færi með sigur af hólmi, það eða dauðinn. Lífið sigraði að lok- um en varð aldrei samt fyrir þig og fjölskyldu þína eftir það. Þú þurftir að læra ýmislegt upp á nýtt til að geta tekist á við annir hversdagsins. Þetta tókst þér um síðir með krafti og viljastyrk. Þú gekkst aftur að starfi þínu þrátt fyrir að þér væri í dagsins önn skorinn þrengri stakkur en þú áttir að venjast. En þú valdir að lifa því breytta lífi sem þér var fengið, en ekki bara að vera til. Til þess naust þú aðstoðar fjölskyldu þinnar, en þar mæddi mest á eig- inmanninum. Hann vakti yfir vel- ferð þinni nótt sem nýtan dag af einstakri umhyggju og vandræða- lausri væntumþykju. Það fór ekki framhjá neinum og vakti virðingu og aðdáun þeirra, sem til þekktu. Samskipti okkar héldu sínum fyrra takti eftir að lífið vitjaði þín á ný. Við ferðuðumst innan lands og utan og við hittumst þess á milli af ýmsum tilefnum. Það voru góð ár en síðasta ferð ykkar hjónanna og okkar var hringferð um landið fyrir tæpum tveimur árum. Þegar þið heimsóttuð okk- ur til Akureyrar síðastliðið sumar ræddum við að bregða okkur með haustinu út fyrir landsteinana í stutta ferð. En þá tóku örlögin í taumana. Heilsu þinni fór að hraka og fljótlega varð ljóst að hverju stefndi. Þú tókst þeim lokadómi með æðruleysi og sagð- ist ekki hræðast dauðann en fannst sá gestur óþarflega snemma á ferðinni. Það fannst okkur líka. Gull á ég ekki að gefa þér og gimsteina ekki neina en viltu muna að vináttan er verðmætust eðalsteina. (Hjálmar Freysteinsson.) Kæra Vilborg. Við kveðjum þig með virðingu og þakklæti fyrir að hafa mátt eiga með þér og Einari samfylgd á þeim göngustígum lífsins, sem við höfum þrammað. Kæri Einar. Innilegar samúð- arkveðjur til þín og fjölskyldna ykkar. Bjarni og Elsa. Frá því við Vilborg vorum pínulitlar stelpur á þriðja árinu áttum við heima hlið við hlið á Eyraveginum á Selfossi. Við, þessar litlu píslir, urðum strax vinkonur. Aldrei settist sólin öðru vísi en að vináttan væri komin á hreint aftur, þótt stundum hvessti milli okkar stutta stund. Þar spil- aði jafnaðargeð Vilborgar mikla rullu og líka tilhneiging hennar til að standa alltaf með sínum. Óteljandi góðar stundir áttum við saman. Fyrst sem börn og unglingar í þeirri barnaparadís sem Selfoss barnæsku okkar var. Fólk kom hvaðanæva af landinu til að taka þátt í uppbyggingu þorpsins og atvinnulífsins. Allir krakkar voru meira og minna úti að leika allar lausar stundir. Traustur vinur og trygglynd var hún Vilborg mín. Við bættum hvor aðra sannarlega upp og vörðum hvor aðra ef á þurfti að halda, hvor með sínum hætti. Stundum fékk ég ákúrur fyrir að hafa verið of harðhent við stríðn- ispúkana. Þá sagði Vilborg festu- lega: „Hún gerði það í sjálfsvörn!“ Svo urðum við unglingar og áfram hélt fjörið hjá barnaskara eftirstríðsáranna á Selfossi. Nú voru það skátarnir, íþróttirnar, sjoppan í Tryggvaskála og djúk- boxið, sveitaböllin. Alltaf var eitt- hvað um að vera. Og áfram héldum við utan um hvor aðra í blíðu og stríðu, ungar konur með börnin okkar og heim- ili. Eitt atriði til dæmis var algjör snilld. Þegar jólaundirbúningur- inn var að nálgast suðumarkið gáfum við gjarnan hvor annarri „smákökufrí“ með því að passa börnin hvor fyrir aðra daglangt, svo að gott næði skapaðist til þess sem gera þurfti. Andstreymi mætti Vilborg mín með jafnvægi og festu og lét ekk- ert buga sig. Velgengni tók hún fagnandi og líka með jafnaðar- geði. Á þessum tímamótum fyllist hugur minn þakklæti fyrir að hafa alltaf átt vináttu Vilborgar vísa – vináttu Vilborgar minnar tryggðatrölls. Gagnkvæm væntumþykja okk- ar entist heila mannsævi. Ég votta Einari og fjölskyld- unni mína dýpstu samúð. Harpa Bjarnadóttir. Elsku vinkona mín, sem ég kveð í dag, kom frá Selfossi ásamt foreldrum sínum norður á Skaga- strönd fjögurra ára gömul til sinnar fyrstu sumardvalar hjá ömmu sinni og afa. Þau bjuggu í næsta húsi við mig, það sumar urðum við vinkonur, vinátta sem aldrei féll skuggi á. Um leið og farfuglarnir komu á vorin kom hún og við tók áhyggju- laus leikur alla daga í götunni okkar undir Höfðanum, þegar alltaf var sól og sunnangola á Skagaströndinni góðu. Við lærðum að synda saman í litlu 25 metra lauginni. Ég kenndi henni að hjóla og skammast mín enn fyrir þá kennslu, ég sleppti hjólinu og hún rann á fullri ferð á grindverk og meiddi sig, þá grét ég jafn mikið og hún. Hún kenndi mér að rokka og kom með rokkbuxur að sunnan handa mér og sérstaka strigaskó. Við rokkuðum fyrir Ensa á Karls- skála, hann gaf okkur pening fyr- ir, honum fannst stelpan að sunn- an liprari en ég, þá var ég ekki búin að ná millisporinu, eftir aukatíma náðist það og Ensi varð ánægður. Allt breyttist árið sem við urð- um 12 ára, þá komu þær fréttir að vinkona mín kæmi ekki, hún var búin að ráða sig í vist upp á kaup. Þetta var mikið áfall, ég held næstum að farfuglarnir hafi held- ur ekki látið sjá sig þetta vorið. Árið sem við fermdumst fór hún sem kaupakona að Móeiðar- hvoli, þá varð ekki aftur snúið, þar var kaupamaður strákur úr Reykjavík árinu eldri og mjög sætur. Bréfin sem ég fékk frá henni það sumarið voru afar spennandi og ég verð að játa að ég var bullandi afbrýðisöm út í kaupamanninn. Alltaf hafa leiðir okkar legið saman, við giftum okkur á svip- uðum tíma og urðum mæður með mánaðarmillibili og hittumst oft á þeim árum. Vinskapur okkar var svo sterkur að þrátt fyrir að vera ekki í stöðugu sambandi var alltaf eins og við hefðum hist í gær, við gátum endalaust rifjað upp bernskuárin á Skagaströnd. Við höfum alla tíð haldið þeim sið að hafa samband og hittast í kringum afmælin okkar, ég hef alla ævi fengið afmælisgjöf frá henni. Vinkona mín veiktist illa 38 ára gömul, hún vann sig vel út úr þeim veikindum enda stóð hún ekki ein, þá sýndi sig best hvað ástin og væntumþykjan sem kviknaði sumarið 1960 var sterk. Ég hef alltaf dáðst að hjónabandi þeirra, gömul og góð gildi voru í hávegum höfð og þau nutu samveru hvort annars. Á seinni árum fórum við að fara í bæjarferðir, áttum okkar „dóta- daga“ eins og við kölluðum þá, keyptum okkur eitthvað fallegt, fórum svo á veitingastað og borð- uðum saman. Spjölluðum lengi og gátum tal- að um allt enda vorum við trún- aðarvinkonur. Vinkona mín átti góða fjöl- skyldu sem hún elskaði af öllu hjarta og hefði svo gjarnan viljað vera lengur með. Stóra ástin í lífi hennar, maðurinn hennar, um- vafði hana umhyggju sinni til hinstu stundar, það var gott að upplifa það. Kæra fjölskylda. Megi minning hennar vera ljós í lífi ykkar allra. Ég kveð þig núna, elsku vin- kona mín, þú manst eins og við töluðum um, þegar minn tími kemur. Takk fyrir allt og allt. Þín vinkona, Guðrún. HINSTA KVEÐJA Elsku amma. Við elskum þig mjög mikið og þú hefur alltaf verið besta amma í heimi. Þú hefur alltaf gert besta hafragraut í heimi og líka bollur, hakk og spa- gettí og pönnukökur. Það var mjög gaman að gera piparkökur fyrir jólin. Hér er þín uppáhalds- bæn: Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náð- arkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson) Þín elskulegu, Freyja, Una og Einar. Þó tárin streymi niður vanga minn þá skýr er sú minning sem vermir hjarta mitt. Minningin um þig. Hún mun lifa svo lengi sem er líf og allt það sem var veitir hjartanu ró. Æviskeið og litlir sigrar tímamót og hversdagsstund, ég leitaði til þín. Ég aldrei mun þér gleyma elsku Bogga amma mín. Íris Hólm Jónsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.