Morgunblaðið - 18.01.2018, Page 71

Morgunblaðið - 18.01.2018, Page 71
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 2018 ✝ Margrét Guð-laugsdóttir fæddist í Stóra- Laugardal, Tálkna- firði, 9. apríl 1950. Hún lést á Landspít- alanum við Hring- braut 10. janúar 2018. Margrét var yngst átta systkina en sjö þeirra kom- ust á legg. Faðir hennar var Guðlaugur G. Guðmundsson, bóndi í Stóra- Laugardal, f. 29. janúar 1900 á Krossi á Skarðsströnd, d. 28. feb. 1988. Foreldrar hans voru Guð- mundur Guðmundsson, f. 16. des. 1868 í Hvarfsdal, Saurbæjarhr., Dalasýslu, d. 14. júní 1946, og Arnbjörg Jónatansdóttir, f. 9. febrúar 1865 á Hellu í Bervík, Breiðavíkurþingum, Snæfells- nesi, d. 24. nóv. 1928. Móðir hennar var Hákonía Jóhanna Pálsdóttir húsfreyja í Stóra- Laugardal, f. 4. ágúst 1907 á Hamri, Barðaströnd, d. 24. mars 1998. Foreldrar hennar voru Páll Guðmundsson, f. í Brjáns- lækjarsókn Vestur-Barð. 25. ágúst 1861, d. 14. nóv. 1938, og eru Tómas Erich, Aníta og Ester. 3) Guðbjörg Arnardóttir, f. 15. júní 1976, m. Benedikt Páll Jóns- son, f. 19. júní 1973, börn þeirra eru Hilmar Örn, Benedikt Guð- jón, Guðlaugur Skúli og Sunna Marín. 4) Björgvin Arnarson, f. 30. október 1980, m. Eva Lind Jóhannesdóttir, f. 28. júlí 1977, dóttir hennar er Rebekka Ellen Daðadóttir, dætur þeirra eru Elísabet Emma, Íris Elma og Bríet Saga. Margrét ólst upp við hin ýmsu sveitastörf í Stóra-Laugardal Tálknafirði, hún gekk í Barna- skólann á Tálknafirði en gekk síðar í Húsmæðraskólann á Laugalandi í Eyjafirði. Hún starfaði m.a. í Kaupfélagi Tálknafjarðar, Vélsmiðju Tálknafjarðar þar sem hún gegndi skrifstofustörfum, Hrað- frystihúsi Tálknafjarðar, fisk- vinnslunni Annesi Tálknafirði, leikskóladeild Reykhólaskóla, Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Barmahlíð, Reykhólahreppi, þar sem hún starfaði við umönnun og sá um handverk í frístundastarf- inu þar. Hún var félagsmaður í Kvenfélaginu Hörpu, Tálkna- firði. Samhliða þessum störfum sinnti hún húsmóðurstörfum. Margrét greindist með krabbamein seinnipart nóvem- bermánaðar 2017. Útför hennar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 18. janúar 2018, klukkan 13. Jóna Guðmunds- dóttir f. á Skjald- vararfossi 19. sept. 1869, d. 12. jan. 1959. Systkini hennar eru Arnbjörg Guð- laugsdóttir, f. 1930, d. 1998, Guð- mundur Guð- laugsson, f. 1931, Þórður Guð- laugsson, f. 1933, Páll Guðlaugsson, f. 1935, Jóna Guðlaugsdóttir, f. 1937, Helga Guðlaugsdóttir, f. 1940, d. 1941, Sigrún Helga Guðlaugsdóttir, f. 1942. Margrét giftist Erni Snævari Sveinssyni skipstjóra 25. septem- ber 1971, hann er sonur Sveins Arnars Davíðssonar verkstjóra, f. 3. mars 1927, og Guðrúnar Jónu Torfadóttur húsmóður, f. 11. júní 1924, d. 20. júlí 2005. Börn Margrétar og Arnar eru: 1) Vignir Arnarson, f. 4. ágúst 1971, m. Helga Birna Berthelsen, f. 8. nóv. 1971, börn þeirra eru Arna Margrét, Davíð og Freyr. 2) Steinar Arnarson, f. 30. apríl 1973, m. Marion Gisela Worth- mann, f. 18. júlí 1972, börn þeirra Elsku Magga, það er ótrúlega sárt að þú sért farin frá okkur svona allt of snemma og það er átakanlegt að vera að skrifa minningargrein núna um þig. Fyrir 26 árum eignaðist ég þig fyrir tengdamóður og þú fékkst uppáhaldstengdason þinn inn í líf þitt. Það var svo sem ekki mikil samkeppni þar sem ég var eini tengdasonur ykkar hjóna. Þú varst mér alltaf svo góð og óendanleg ást í garð fjöl- skyldu þinnar er ómetanleg, ég þakka þér fyrir hversu hrein og bein þú varst þegar á þurfti að halda, óhrædd við að segja þína skoðun á öllum hlutum og tókst alltaf hanskann upp fyrir þá sem minna mega sín. Mér er einkar minnisstætt þegar við bjuggum hlið við hlið á Tálknafirði á Túngötunni og strákarnir okkar gátu hlaupið yfir til ömmu og þá þurfti ekki annað en bleyju á bossann og stígvél og svo af stað yfir í ömmuhús, þar var hægt að ganga að þeim vísum í fanginu á afa eða eitthvað að snöfla í eld- húsinu hjá Möggu ömmu, þar sem þeir fengu eitthvað hollt og gott í gogginn enda var það þér hjartans mál að þeir fengju hollt að borða en ekki eitthvert syk- urjukk. Seinna fluttuð þið á Reykhóla og þú hafðir einstaklega gaman af því að segja skemmtilegar sögur af gamla fólkinu sem þú annaðist á Barmahlíð. Í tvö sum- ur dvaldi ég hjá ykkur á Reyk- hólum (Rokhólum eins og Örn kallar það stundum) og það var nú ekkert slor að vera í vist hjá þér, Magga mín, þú hreinlega stjanaðir við heimilisfólkið þitt og máttir ekki heyra á það minnst að maður færi í upp- vaskið enda hafði dóttir þín oft orð á því að þjónustustigið væri fullhátt hjá þér og væri aðeins til þess fallið að dekra okkur kallana úr hófi. Margar góðar stundir áttum við fjölskyldan með ykkur hjón- um í Sunnukoti, sumarhúsinu okkar í Húsafelli, ómetanlegur tími fyrir okkur og alltaf varst þú með hollan og góðan mat á borðum hvort heldur það var heima við, í Sunnukoti, í hús- bílnum eða úti á sjó um borð í SV Elmu, skútunni ykkar, sem þið keyptuð í fyrra vetur og siglduð nánast allt sl. sumar, það sem ég var ánægður með þig þegar ég var með ykkur úti í Danmörku í haust og sjá þig í siglingabransanum erlendis brosandi út að eyrum. Þetta átti við þig sem kom nú flestum á óvart en sannar bara hversu lífs- glöð og ævintýragjörn þú varst. Undanfarin nokkur ár hafið þið hjónin búið um ykkur í fal- legu timburhúsi í blómabænum Hveragerði og passar það einkar vel við blómarós eins og þig, Magga mín, enda einkar hrifin af blómum og þá sérstaklega rósum og deilir hún Sunna mús þessum blómaáhuga með þér og heldur honum á lofti. Samskipti okkar voru alltaf góð þó svo að þú létir mig alveg vita af því ef þér mislíkaði eitt- hvað í mínu fari enda veitti ekk- ert af því og er ég þér þakklátur fyrir hreinskilnina sem gerði mér aðeins gott. Vertu sæl, elsku tengda- mamma, kæra vinkona, og þakka þér fyrir samfylgdina, þú varst mér sannur vinur sem ég ber mikla virðingu fyrir og ég veit að þú munt njóta virðingar og aðdáunar á þeirri siglingu sem þú hefur lagt í nú. Hjá okk- ur er tómarúm en minningin um Möggu mun að einhverju leyti fylla upp í það skarð. Hvíldu í friði, kæra vinkona og tengdamamma. Þinn vinur Benedikt Páll (Benni Palli). Ég man svo vel eftir því þeg- ar þú fæddist, elsku systir. Þá var ég 13 ára og við pabbi okkar biðum í eftirvæntingu eftir þér inni í stofu í sveitinni seinni part dags. Upplifunin er eftir- minnileg og síðan varstu mér alltaf kær. Þegar illa gekk að svæfa þig vildi ég fá að reyna og varð svo stolt yfir því hve vel mér tókst upp. Þá sussaði ég á allt heimilisfólkið á meðan ég ruggaði þér í svefn. Þú nefndir það síðar við mig er við vorum að rifja upp æskuárin að mér hefði verið líkt við varðhund við svefnstað þinn. Samlíkingin kall- aði fram hlátur hjá okkur þó að ekki hafi mér þótt umhyggju- semi mín í þinn garð endilega mjúklega orðuð. Hratt flýr stund og allt lífs- hlaup þitt varstu reiðubúin að láta til þín taka og létta öðrum lífið. Eftir að þú hættir að vinna sastu aldrei auðum höndum. Þig munaði sem fyrr ekki um að ferðast um landið þvert og endi- langt á húsbílnum, heimsækja afkomendur og önnur skyld- menni, taka barnabörnin með í ferðalag, skutlast í bústaðinn til að eiga stund með þínu fólki og sinna nýjasta áhugamáli ykkar hjóna, sem var að sigla á skútu milli erlendra hafna – ávallt svo lífleg, dugleg og drífandi. Þú hafðir lag á að gera margt í einu, varst handlagin og hug- myndarík og lést fátt hindra þig í að framkvæma hlutina. Jafnvel þegar þú varst farin að kenna þér meins fannst þér síst betra að sitja heima. „Veistu hvar ég er núna?“ spurðir þú gjarnan er þú slóst á þráðinn. Við tvær vor- um alla tíð í reglulegu síma- sambandi og þá kom ekki á óvart að annan daginn varstu fyrirvaralaust komin norður í land og hinn daginn vestur á firði. Stundum fann ég á mér hvar þú varst, hringdi í þig og spurði hvort ekki ætti að koma við. Það gladdi mig þegar þú komst en stoppaðir að mér fannst alltaf of stutt. Það má segja að þú hafir ævinlega verið að flýta þér og enn ertu á hraðferð. Ég hefði að sjálfsögðu viljað að þú dokaðir aðeins lengur við, elsku vina mín, en nú eru það aðrir ætt- ingjar og vinir sem kalla. Ég var farin að nefna það við ykkur hjónin að nú færuð þið að koma með til sólarlandanna og þið tók- uð vel í það en nú er orðið ljóst að för þinni er heitið í aðrar blómabrekkur. Þegar ég horfi til baka sé ég lífshlaup þitt ofið mörgum sterk- um og mildum litum. Það hefur verið gefandi og lærdómsríkt að vera þér samferða allt þitt ævi- skeið. Þú varst sú sem hélt tengslum við fólk, fylgdist vel með öllu sem gerðist í fjölskyld- um okkar, sýndir ættmennum á öllum aldri áhuga og miðlaðir fréttum. Börnin mín og barna- börn léstu þér þykja vænt um, sýndir það í verki og þakka þau það af heilum hug. Í fáum orðum varstu gjafmild, gamansöm og sannur vinur í raun. Ég á eftir að sakna þín, systir kær, langra símtala okkar, frískandi orkunn- ar sem fylgdi þér, glettinna frá- sagna þinna og hreinskiptra skoðana. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Eiginmanni, börnum, mökum og barnabörnum votta ég mína innilegustu hluttekningu. Minn- ingin lifir í hjörtum okkar sem fengum að elska og njóta. Þín systir, Jóna. Fyrir tæpum tveimur árum fluttu þau sæmdarhjón Margrét og Örn frá Reykhólum til Hveragerðis, þar sem þau ætl- uðu að eyða næstu árum saman í góðu yfirlæti við að rækta sjálf sig og sinna áhugamálum. Í Hveragerði voru þau búin að koma sér vel fyrir og framtíðin blasti við þeim. En engin veit hvað morgun- dagurinn ber í skauti sér. Óvæg- ið krabbamein er búið að fella okkar kæru Margréti á allt of stuttum tíma svo ótímabært. Margrét Guðlaugs, eins og við kölluðum hana, var vinnufélagi okkar á hjúkrunarheimilinu Barmahlíð í mörg ár. Hennar var sárt saknað af okkur og heimilisfólkinu þegar hún hætti störfum þar. Margrét var alveg einstaklega ljúfur og góður samstarfsfélagi með sterka réttlætiskennd, bar hag heimilisfólksins ávallt fyrir brjósti, var alltaf tilbúin að hjálpa til við það sem til féll, t.d. gera við föt, sauma það sem þurfti, snúast fyrir heimilisfólk- ið. Hún starfaði einnig við handavinnu með heimilisfólkinu, bakaði, gerði slátur og svona mætti lengi upp telja, allt virtist leika vel í höndunum á henni. Okkur samstarfsfólkinu reyndist hún alltaf góður félagi. Fjölskyldan var Margréti mjög kær, oft sýndi hún okkur stolt myndir af barnabörnunum sín- um, alltaf með eitthvað á prjón- unum sem ætlað var þeim. Við sendum Erni og börnum, tengdabörnum og barnabörnum okkar dýpstu samúðarkveðjur. Hvíl í friði, elsku Margrét okkar, Fyrir hönd samstarfsmanna í Barmahlíð, Helga Garðarsdóttir. Margrét Guðlaugsdóttir Smáauglýsingar Hljóðfæri Gítarinn ehf. Stórhöfði 27 Sími 552 2125 www.gitarinn.is Þjóðlagagítarpakki kr. 23.900 Gítar, poki, ól, auka strengja- sett, stillitæki og kennsluforrit RISAÚTSAL A Gítarinn ehf. Stórhöfði 27, sími 552 2125, gitarinn.is Ukulele í úrvali Verð við allra hæfi RISAÚTSAL A Sumarhús Ýmislegt Bifreiðastjórar                          ! " # $ %  &'# ( )!%# *   %+  # ,  )  $  " # ,  ) - .  - & / 0 # ,  ) 1 23 '4 .       %  /5  - '2'4 * 0  '&# ,  ) # - 23 &' Húsviðhald Til leigu ÍBÚÐ TIL LEIGU Björt 110 m 2, 3- 4 herbergja íbúð í 101. Mikil lofthæð, tvennar svalir, lyfta í húsinu, bílastæði, engin gæludýr. Laus nú þegar. Áhugasamir hafi samb.á netf: leiguibud2018@gmail.com Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð- viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 660 0230 og 561 1122. Bílar Til sölu Ford Escape jeppi, benzín, árgerð 2007, ekinn 193.000km. Ekkert ryð, vel með farinn bíll, dráttarkrókur og vetrardekk fylgja. Verð 550.000þús. Uppl. í sima 617-7330 og 437-1571 Veiði S. 892 8655 • heimavik.is Þekking - Reynsla - Gæði Grásleppuveiðimenn 12mm flottóg lækkað verð 10mm blýtóg á gamla verðinu grásleppunet, felligarn o.fl. Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Þjónusta Faglærðir málarar Tökum að okkur öll almenn málningarstörf. Tilboð eða tímavinna. Sími 696 2749 - loggildurmalari@gmail.com Bílaþjónusta GÆÐABÓN Stofnað 1986 • Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Hví grátið þér þanns í gröf hvílir, ungan elskuson? örðug ganga var oftar geymd mörgum mæðudögum. Helgur engill hjarta saklausu í yðar faðmi felst; sá man trúfastur uns tími þrýtur lítill verndar vinur. Tár þau trúlega er tryggð vakti söfnuð sjóði í góðverka yðar fyri guð flytur Friðrik Sófusson ✝ Friðrik Sófus-son fæddist 10. júní 1927. Hann lést 4. janúar 2018. Útför Friðriks fór fram 16. janúar 2018. sem elskar einlægt brjóst. Þær munu skærstar er þér skýi borin líðið til ljóss sala, fagurt skart yðar friðarklæðis, glansperlur glóa. (Jónas Hallgrímsson.) Friðrik var ynd- islegur maður og ótrúlega blíður. Hann tók sér- staklega vel á móti mér sem og Ingunn og ég mun aldrei gleyma því. Ég og strákarnir fengum alltaf hlýtt faðmlag og geislandi bros þegar við komum og það átti við um alla sem komu í heimsókn. Það er sjaldgæft að hitta eins fal- legar sálir og Ingunni og Friðrik. Ég sendi mínar innilegustu sam- úðarkveðjur til Ingunnar og fjöl- skyldu. Friðrik Ingi, Sigrún, Ágúst og Axel.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.