Morgunblaðið - 18.01.2018, Síða 77

Morgunblaðið - 18.01.2018, Síða 77
DÆGRADVÖL 77 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 2018 Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 5175000 | stalogstansar.is Við bjóðum gott úrval af reimum í flesta snjósleða, fjórhjól og bíla. Ekki bara jeppar Reimar í bíla, vélsleða og fjórhjól Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þótt þú kunnir vel við vini þína þarf þig ekki endilega að langa til að hitta þá í dag. Hugsaðu þig tvisvar um áður en þú fram- kvæmir. 20. apríl - 20. maí  Naut Náið samband étur þig upp eins og villi- dýr, og þú ræður ekkert við það. Lærðu að meta það sem þú átt og njóta þess án þess að vera stöðugt að renna augunum yfir til ná- grannans. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Það er mikill áhugi í kringum þig á starfi þínu og menn bíða spenntir eftir út- komunni. Ef þú klúðrar einhverju er það frek- ar samskiptavandamál en eitthvað sem þú hefur gert af þér. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Reyndu að hafa stjórn á hlutunum þótt að þér sé sótt úr mörgum áttum. Per- sónulegur stíll þinn laðar að þér nýja vini og viðskiptavini. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú heldur þér upptekinni/teknum við eitt og annað til þess að losna við að takast á við þau mál sem skipta öllu. Farðu þér hægar og þá gengur dæmið upp. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Samband sem stofnað er til í dag get- ur átt eftir að verða mjög djúpt og andlegt. Sá sem spyr of margra spurninga er ekki traustsins verður. 23. sept. - 22. okt.  Vog Dagur eins og þessi væri innantómur ef ekki kæmi til náins samneytis við fjölskyld- una. Passaðu hvað þú tekur þér fyrir hendur. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Varaðu þig að vera svo hagsýn/n að það geri bara illt verra. Ef einhver er ein- mana er það verst af öllu að líta fram hjá honum. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú hefur á tilfinningunni að ein- hverjir séu að leyna þig mikilvægum stað- reyndum. Þér gæti fundist sem fólk í valda- stöðum sé að reyna að ráðskast með þig í dag. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þér gæti fundist einhver vera að senda þér misvísandi skilaboð í dag. Skoðaðu málið vandlega svo þú hafir það á hreinu. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Fólk þarfnast sköpunarkrafts eins og ástar. Hagaðu þér eins og leiðtogi svo að aðrir fylgi þér. Einhverra hluta vegna ertu skylduræknin uppmáluð. 19. feb. - 20. mars Fiskar Óvæntur kaupauki eða greiði mun gera lífið auðveldara í vinnunni. Gefðu fólki séns, láttu af kröfunum og þú verður ekki fyr- ir vonbrigðum. Stökur halda áfram að berast umBjarna Har. á Sauðárkróki. Ólafur Atli Sindrason, kennari í Varmahlíðarskóla, er af hagyrð- ingum kominn og lætur ekki sitt eftir liggja: Lausnir víst hann löngum fann ljúfmennið að tarna. Eldsneytið frá Olís rann aftur – þar hjá Bjarna. Gunnar Rögnvaldsson á Löngu- mýri kann að segja frá í bundnu máli: Rúnna þurfti reglurnar svo renna færi um slöngurnar. Nú er allt sem áður var, eldsneytið og Bjarni Har. Séra Hjálmar Jónsson þjónar nú Sauðkrækingum á ný í námsleyfi Sigríðar Gunnarsdóttur, sóknar- prests Króksara. Hans framlag var svona: Einn er frækinn innan fjarðar aðalsmaður, lord og sör. Eldsneyti úr iðrum jarðar afgreiðir með bros á vör. Sigurður Hansen á Kringlumýri lagði svo leið sína í búðina til Bjarna og afhenti honum vísu af þessu tilefni, þar sem hinn blái stjórnmálalitur kaupmannsins kemur við sögu Nú er allt sem áður var, ekkert niðurskorið. Og bensínið hjá Bjarna Har blánar fram á vorið Ármann Þorgrímsson hafði orð á því á laugardag að það mætti spara stórfé með því að senda stjórnar- andstöðuna heim: Ekki gagnast okkur lengur eftirsjá er varla að þeim öllum væri að því fengur að þeir væru sendir heim. Það ef ræðst með þessum hætti þá ég ekki betur sé en að spara á því mætti ótrúlega mikið fé. Ingólfur Ómar er mikill veðurviti og orti á sunnudag: Nú er úti norðanfjúk næða kyljur stríðar. Frónið hulið fannadúk frystir innan tíðar. Öskrar bylur, aukast sköll, ásýnd dylur fjalla. Mjöllin hylur hlíð og völl hamraþil og stalla. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Bjarni Har. enn og leið til sparnaðar „MÉR ER ALVARA MEÐ AÐ ÉG VILJI TJASLA UPP Á HJÓNABANDIÐ. HVERS VEGNA HELDURÐU AÐ ÉG HAFI KOMIÐ MEÐ LÍMBAND?“ „TÖLVAN ER AÐ KREFJAST ÞESS AÐ HÚN FÁI ALMENNILEGA UPPFÆRSLU Á HÁLFS ÁRS FRESTI OG TVEGGJA VIKNA FRÍ Í ÁGÚST.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... einhver sem skilur þig. LEYFIÐ FAGMÖNNUNUM AÐ SJÁ UM ÞAÐ EKKI VERA ILL- KVITTIN, KRAKKAR HRÓLFUR, HVENÆR ÆTLAR ÞÚ AÐ FARA Á FÆTUR? JÆJA? ÆTLARÐU AÐ SVARA MÉR? LEYFÐU MÉR AÐ SOFA Á ÞVÍ Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann SPARK ! HJÓNABANDS- RÁÐGJÖF Það að „Strákarnir okkar“ í hand-boltalandsliðinu reyni að taka allt yfir í janúar hlýtur að falla undir dálkinn „fastir liðir eins og venju- lega“. Þjóðin er þá nýbúin að jafna sig á kjöri íþróttamanns ársins en er ekki alveg tilbúin í páskahretið og geðvonskuna sem fylgir því. Þá getur verið gott að slaka á og horfa á full- vaxna karlmenn spila óskiljanlega íþrótt, sem virðist einkum snúast um bakhrindingar. x x x Því miður fyrir „Strákana okkar“og þjóðina alla reyndist dvölin á EM heldur skammvinnari en vonir stóðu til. Skilst Víkverja að „slæmi leikkaflinn“ hafi þar skipt meginmáli, en svo virðist sem sá leikkafli hafi verið um einn og hálfur handbolta- leikur að lengd að þessu sinni. Verð- ur það að teljast óvenjulangt, og lík- lega brýnt fyrir landsliðið að fara að vinna í því hvernig eigi að stytta kafl- ann, þannig að hann nái helst ekki yf- ir meira en eins og einn hálfleik eða svo. x x x Víkverji man að þegar hann varkrakki, fyrir allt of löngu, voru hugtök eins og „slæmi leikkaflinn“ og „Svíagrýlan“ þegar komin í almenna notkun. Þá riðu hetjur um héruð, sem síðar fengu flestar þægilega innivinnu í bankakerfinu. Þeim voru allar leiðir færar, nema að sigrast á Staffan „Faxa“ Olsson, eða að spila heilan leik án þess að klúðra stórum hluta seinni hálfleiks. Ekkert hefur breyst, nema það að sænsku leik- mennirnir hafa skellt sér í klippingu. x x x Víkverji veit ekki hvort hann á aðvera feginn eða sorgmæddur yf- ir því að ekki hafi gengið betur í ár. Hann þykir svona almennt séð hafa fremur lítinn áhuga á handbolta. Engu að síður nær hann oft þegar vel gengur að gíra sig upp, og verður þá kaþólskari en handboltapáfinn. Hringitónninn í símanum hans verð- ur þá: „Við gerum okkar, gerum okk- ar, gerum okkar, gerum okkar besta!“ og Víkverji mætir andlitsmál- aður í vinnuna. Vinnufélagar hans varpa því eflaust öndinni léttar að losna við það í ár. vikverji@mbl.is Víkverji Daníel tók til máls og sagði: Lofað sé nafn Guðs um aldir alda því að hans er viskan og mátturinn. (Daníel 2:20)
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.