Morgunblaðið - 18.01.2018, Qupperneq 80

Morgunblaðið - 18.01.2018, Qupperneq 80
80 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 2018 flísar fyrir vandláta PORCELANOSA Skútuvogi 6 - Sími 568 6755 Það sem raunverulega á sérstað í lífinu er ekki þannigað það sé hægt að leggjaút af því. Sannleikurinn er ekki efni í góða predikun. Hann er svo oft ruglingslegur og niðurstað- an óskýr.“ Þannig kemst séra Flynn að orði þegar systir James spyr hann út í sannleiksgildi aldeilis prýðilegrar dæmisögu sem hann notaði í predikun um slúður. Þetta er alveg rétt hjá prestinum. Kannski þess vegna sem leikskáld grípa gjarnan til þess að staðsetja siðklemmu- leikrit innan veggja klausturs og kirkju. Þar eru línurnar einfaldari, færra sem hefur áhrif á gjörðir fólks. Og auðvitað meira í húfi en hjá hinum vantrúaða leikmanni nú- tímans. En jafnvel í þessu einfaldaða um- hverfi er manneskjan söm við sig og stjórnast af ótalmörgu öðru en siðviti og trú. Persónuleiki, lífs- reynsla, samfélagsstaða, hvatir; allt hefur þetta áhrif til góðs og ills. Þetta veit John Patrick Shanley mætavel og þess vegna er Efi alls ekki réttnefnd „dæmisaga“, heldur verk skrifað innan leikritunar- hefðar þar sem aðstæður og at- burðir líkja einmitt eftir hinum ruglingslega og óskýra raunveru- leika, innan kirkju og utan. Sem því nemur verra efni í dæmisögu. Við kirkju Heilags Nikulásar í New York er starfræktur barna- skóli. Þar ræður ríkjum systir Aloysius, framúrskarandi fær í sínu starfi, með óbilandi undirstöðu í kennisetningunum og einstreng- ingsleg og hrokafull eftir því. Hinn léttúðugi nútími hefur hafið innreið sína í gervum ungnunnunnar systur James og séra Flynn. Skólastýran hefur vald til að móta stúlkuna að vild, en öðru máli gegnir um prest- inn. Þegar atvik varðandi einn alt- arisdrengjanna vekur grunsemdir um misnotkun gengur systir Aloysius í málið af röggsemi sem fer jafnvel á skjön við skýran valdastrúktúr kirkjunnar. Velferð barns er í húfi, en undir og saman við kraumar persónuleg andúð og hugmyndaleg togstreita. Hvaða syndir er réttlætanlegt að drýgja til að leiða slíkt mál til lykta, og er drifkrafturinn kristilegt siðgæði, umhyggja og réttlætiskennd eða eitthvað lægra? Þarna er efinn. Þetta Pulitzer-verðlaunaleikrit er haganlega smíðað í hinni rótgrónu raunsæishefð sem nær amerískum hápunkti sínum í sumum verka Arthurs Miller. Upplýsingum er miðlað áreynslulaust og á tækni- lega hárréttum stöðum til að við- halda spennu, áhuga og óvissu áhorfenda. Persónurnar bæði fulltrúar hugmynda, stétta og lífs- afstöðu en nægilega búnar persónu- einkennum til að verða fyllri og nær því að líkjast fólki af holdi og blóði. Það sem á vantar til að það sé framúrskarandi er einna helst það að sálarangist systur Aloysius í lokin er ekki nægilega vel undir- byggð, eða okkur leitt nógu snemma í ljós að hún sé hið raun- verulega efni leikritsins. Það er of seint að segja áhorfandanum í síð- ustu setningunum að það sem á undan er gengið sé í raun harm- leikur og draga þá loksins fram hver sé hin tragíska hetja. En sem sagt: fram að því afbragðsgott, og mikið fóður fyrir leikara sem hafa þessa hefð á valdi sínu. Það er óhætt að segja að það eigi við um leikhóp Stefáns Bald- urssonar, sem og kunnáttu hans í meðferð efnis af þessu tagi, enda er sýningin einstaklega lipurlega svið- sett og nákvæmlega unnin svo allt komist til skila. Ég hef reyndar smá efasemdir um lögnina á frú Miller, móður altarisdrengsins sem á eina senu þar sem hún mætir til viðtals við skólastýruna sem leitar sannana fyrir illvirkjum prestsins. Mig vantaði meira óöryggi, jafnvel undirgefni, í túlkun Sólveigar Guð- mundsdóttur frammi fyrir hinni valdamiklu, jafnvel ógnvekjandi systur Aloysius. Það er varla hægt að vera á jafn augljósum útivelli og frú Miller. Sonur hennar er eini þeldökki nemandinn í skólanum í írsk-ítalska verkamannahverfinu og öll hans framtíð veltur á að hann útskrifist þaðan. Ég held líka að þegar frú Miller setur fram sína sýn á málið og hryllilegar aðstæður fjölskyldunnar væri samanbitin harka rökréttari og áhrifaríkari en sýnileg örvænting. Sólveig vann vel úr þeirri leið sem valin hafði verið, verðugur mótherji skólastýrunnar. Það lendir á ungum herðum Láru Jóhönnu Jónsdóttur að gefa sýningunni léttleika i hlutverki hæfileikaríku hugsjónakonunnar systur James, sem við sjáum að er – eðlilega – undir hælnum á systur Aloysius en getur þegar mikið ligg- ur við staðið uppi í hárinu á henni og er glöggskyggn á bæði kosti hennar og galla. Skýr og vel unnin persóna þar sem mikið var sagt með líkamsmáli og augnaráði. Hilmir Snær Guðnason er fram- úrskarandi sem séra Flynn. Geisl- andi af persónutöfrum og brothætt- um myndugleika. Reynsla, færni og hæfileikar Hilmis Snæs nýtast til fullnustu í þessum stíl, við sjáum áreynsluleysi meðan tæknin vinnur vinnuna. Þeir Stefán og Hilmir stilla sig algerlega um að gera Flynn grunsamlegan eða ljá honum einhver einkenni sem falla að staðalímyndum um níðinga. Sem eykur spennustigið fremur en hitt. En auðvitað er endurkoma Stein- unnar Ólínu Þorsteinsdóttur stóru fréttirnar. Það er óhætt að segja að það sé umtalsverður stæll yfir henni. Stjörnubragur. Systir Aloy- sius verður bæði ómótstæðileg og ógnvekjandi í túlkun Steinunnar Ólínu, hún drottnar yfir sviðinu og allar setningar sem eiga að vekja hlátur gera það. Og aftur: áreynslu- leysi. Vald á viðfangsefninu. Það fer einkar vel saman með því valdi sem persónan hefur lengst af á aðstæðum og öllum í kringum sig, að henni sjálfri meðtalinni. Leikmynd og búningar eru verk Þórunnar Sigríðar Þorgrímsdóttur. Búningarnir stýrast eðlilega af raunsæisnálgun sýningarinnar, nunnur og prestur skrýdd eins og vera ber, þó háir hælar skólastýr- unnar hafi fengið mig til að velta vöngum. Og kannski hefði frú Mill- er mátt mæta örlítið settlegri með siðprúðari pilssídd á fundinn í klausturskólanum. Umgjörð Þórunnar um verkið er eins einföld og verða má. Hvítur bogadreginn veggur sem lita mátti með ljósum og varpað var á falleg- um trúarlegum teikningum milli þátta. Einnig er gefið til kynna með texta hvar senurnar eiga sér stað, sem vinnur með dæmisagnahug- myndinni en á móti raunsæiseðli verksins en truflaði hvorki né gerði gagn þegar upp var staðið. Íþrótta- vallarmerkingar á sviðsgólfinu þóttu mér meira truflandi en gef- andi. Tónlist Veigars Margeirs- sonar er þénug og hógvær. Þýðing Kristjáns Þórðar Hrafnssonar stingur hvergi í eyru. Húsgögn og annar sviðsbúnaður naumhyggju- legur mjög, hér er öll áhersla á list leikara og nákvæma meðferð texta. Fjórmenningarnir standa vel undir þeirri ábyrgð. Sýning Þjóð- leikhússins á Efa er prýðistækifæri til að sjá framúrskarandi leikhóp flytja af öruggu listfengi vel upp- byggt og alvörugefið verk sem ætl- ar sér þegar upp er staðið aðeins um of sem drama en rígheldur leik- húsgestum, skemmtir og hreyfir við. Sálarháski alstaðar Ljósmynd/Hörður Sveinsson Listfengi „Sýning Þjóðleikhússins á Efa er prýðistækifæri til að sjá framúrskarandi leikhóp flytja af öruggu list- fengi vel uppbyggt og alvörugefið verk,“ segir í leikdómi um uppfærslu Þjóðleikhússins á Efa – dæmisögu. Þjóðleikhúsið Efi bbbbn Eftir John Patrick Shanley. Íslensk þýð- ing: Kristján Þórður Hrafnsson. Leik- stjórn: Stefán Baldursson. Leikmynd og búningar: Þórunn Sigríður Þorgríms- dóttir. Lýsing: Ólafur Ágúst Stefánsson og Jóhann Friðrik Ágústsson. Tónlist: Veigar Margeirsson. Hljóðmynd: Elvar Geir Sævarsson. Leikarar: Steinunn Ól- ína Þorsteinsdóttir, Hilmir Snær Guðna- son, Lára Jóhanna Jónsdóttir, Sólveig Guðmundsdóttir. Frumsýning í Kass- anum í Þjóðleikhúsinu 13. janúar 2018, en rýnt í 2. sýningu 14. janúar 2018. ÞORGEIR TRYGGVASON LEIKLIST Aflausn Yrsu Sig- urðardóttur er að mati Bo Tao Michaëlis, gagn- rýnanda Politi- ken, vel skrifuð, heillandi og spennandi. Hann gefur bókinni fimm hjörtu af sex mögulegum. Michaëlis skrifar að Yrsa hafi verðskuldað hlotið Palle Rosinkrantz-verðlaunin í fyrra fyrir bestu erlendu glæpasöguna í Danmörku fyrir DNA. „Hér er nán- ast um slátrun að ræða sem knúin er áfram af hvatvísi og kvalalosta. Þar sem ástæðan tengist einelti, vægð- arlausum, kaldrifjuðum og tilgangs- lausum eltingarleik stálpaðra barna við þá sem eru sérkennilegir og öðruvísi. […] Ef þú hefur þegar heillast af Íslandi verðurðu gjör- samlega gagntekinn eftir að hafa lesið þessa grípandi og spennandi glæpasögu um glæpi og refsingu á hinni síðnútímalegu sagnaeyju,“ segir Michaëlis í lok umsagnar. Fær fimm hjörtu Yrsa Sigurðardóttir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.