Morgunblaðið - 26.04.2018, Side 54

Morgunblaðið - 26.04.2018, Side 54
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2018 Þóra Sigurðardóttir thora@mbl.is Því er sannarlega ekki komið að auð- um kofunum þegar hið sjóðheita um- ræðuefni matarsóun ber á góma. „Ég er ansi dugleg við að nýta það hráefni sem ég vinn með og er útsjónarsöm með hvernig best sé að nýta afganga. Þannig getum við slegið tvær flugur í einu höggi, lagt okkar af mörkum til að sporna við matarsóun og fengið meira fyrir peninginn.“ Ásdís segist öflug við að kaupa inn vörur sem sérmerktar eru verkefn- inu Minni sóun og fáist í verslunum Nettó, þar sem ýmiskonar vörur sem farnar eru að nálgast síðasta söludag eða eru gengisfelldar fyrir útlitsgall- aðar umbúðir, séu á sannkölluðum spottprís – þó nákvæmlega ekkert sé að þeim. „Þetta eru allskonar vörur, allt frá þurrvöru upp í stórsteikur sem eru á 20-70% afslætti, svo það borgar sig að skoða hvað er í boði. Ekki bara fyrir umhverfið heldur líka veskið,“ útskýrir hún létt í bragði. Ásdís dregur hér fram tvær upp- skriftir þar sem hún býður lesendum upp á að nýta það sem til er og töfra fram dásemdarmáltíðir fyrir lítinn pening. „Súpan kostar um 500 krón- ur þegar ég nýti mér Minni sóunar- vörurnar eins og ég get og þessar möffins kosta um 800 krónur en ég fæ um 12 stykki út úr þessari upp- skrift. Ætli möndlusmjörið hafi ekki kostað mest í þessum uppskriftum og þó er það ekki dýrt – og endist auk þess mjög lengi,“ segir hún að lokum. Bláberja- & bananamúffur 2 þroskaðir bananar ½ b. möndlusmjör (má nota hnetu- smjör, það er talsvert ódýrara) ¼ b. möndlumjólk ½ b. hunang 2 tsk. vanilluduft/dropar 2 ¼ b. hafraflögur 1 tsk. vínsteinslyftiduft ½ tsk. matarsódi ¼ tsk. sjávarsalt ½ b. fersk/frosin bláber 2 egg Aðferð: Hitið ofn í 175°C og smyrjið eða spreyið 12 múffu form. Blandið fyrst saman blautefnum nema bláberjum og setjið í blandara eða matvinnsluvél og bætið svo þurr- efnum út í og blandið vel saman þar til mjúkt. Hellið í skál og hrærið bláberj- unum út í deigið rólega með skeið. Hellið deiginu í form og fyllið hvert form um ¾. Bakið í ofni í 20 mín. þar til hæfilega gyllt á lit. Leyfið þessu að kólna í um 10-15 mín. áður en þið gæðið ykkur á þess- um gómsætu múffum! Það er til dæmis mjög sniðugt að eiga þessar heilsumúffur í frysti til að grípa í þegar tíminn er naumur og hægt að nota þær í morgunmat eða millimál. Einnig er hægt að gera þær glúteinlausar og nota þá glúteinlausa hafra í staðinn. Papriku- & linsubaunasúpa 4 stk. rauðar paprikur 3 stk. gulrætur 2 hvítlauksrif 1 laukur 2 ½ b. vatn ½ msk. kókosolía 2 dósir hakkaðir tómatar 1 bolli rauðar linsubaunir 1 gerlaus grænmetisteningur 1 dós kókosmjólk 1-2 tsk. Tandoori-krydd ½ tsk. Herbamere krydd ¼-½ tsk. sjávarsalt Smá pipar Hitið ofn í 180°C. Saxið paprikur og setjið í eldfast mót, kryddið þær aðeins og setjið smá olíu ef vill. Ofn- ristið í ofni í ca. 20-30 mín. eða þar til ristaðar. Hitið olíu í potti og steikið saxaðar gulrætur, lauk og hvítlauk, kryddið og hrærið reglulega og leyfið þessu að malla saman í nokkrar mínútur. Bætið vatni, grænmetistening, kókosmjólk, linsubaunum og hökk- uðum tómötum saman við og látið suðuna koma upp, lækkið hitann og látið malla í 20-25 mín. Hægt að mauka súpuna í blandara eða matvinnsluvél til að gera hana meira kremkennda. Bætið við hrein- um fetaosti eða rifnum veganosti og smá sítrónusafa áður en þið berið súpuna fram. Afar ljúffeng súpa sem gefur okk- ur góða næringu og fyllingu í amstri dagsins. Að borða sig frá matarsóun Ásdís Ragna Einarsdóttir, eða Ásdís grasalæknir eins og flestir kalla hana, er býsna snjöll í eldhúsinu og hefur ráð undir rifi hverju þegar kemur að stórkostlegri matseld – hvort sem er til að seðja hungrið eða vinna bug á hverskyns kvillum. Ljósmynd/Hilmar Bragi Hræódýr Súpan er bæði gómsæt og afskaplega ódýr. Einfaldar Muffurnar eru í senn einfaldar og góðar. Lifir enn Paprikan er í góðu lagi þótt komin sé fram yfir síðasta söludag. Meistarasnillingur Ásdís grasalæknir er frábær kokkur og þykir afar útsjónarsöm. Leitar þú að traustu Smiðjuvegur 30 (GUL GATA) | 200 Kópavogi Sími 587 1400 | www. motorstilling.is ALHLIÐA BÍLAVIÐGERÐIR < HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA Lífslíkur bílsins margfaldast ef hugað er reglulega að smurningu.ENGAR tímapantanir MÓTORSTILLING fylgir fyrirmælum bílaframleiðanda um skipti á olíum og síum. Rafport ehf • Auðbrekka 9-11 • 200 Kópavogur • Sími 580 1900 • rafport@rafport.is Merkivélarnar frá Brother eru frábær lausn inná hvert heimili og fyrirtæki Komdu og kíktu á úrvalið hjá okkur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.