Breiðfirðingur - 01.04.1954, Blaðsíða 109
BREIÐFIRÐINGUR
99
anvert við vatnið eru tveir höfðar. Innri- og Ytri-höfði heita
þeir. Sumir segja, Innri- og Ytri-Stapi. Þar var stanzað og
litlast um. Fyrst er athuguð málmplata, sem greypt er inn í
Innri-höfða. Þeim megin er að veginum snýr. A henni
stendur nafnið Stefán Stefánsson ásamt fæðingardegi og
ártali, svo og dánardægri og ártali. (En þeim ártölum og
dagatölum hef ég því miður gleymt).
Þetta kvað vera minningartafla um Stefán nokkurn Stef-
ánsson, er kunnur ferðamaður var á sinni tíð og oft fylgdi
útlendingum um byggðir og óbyggðir Islands. Við Kleifar-
vatn tók hann tryggð mikla, og taldi þar eitt fegursta um-
hverfi á landi hér. — Hann gerði svo ráð fyrir, að þegar
hann dæi, skyldi lík hans brennt og öskunni dreift yfir
Kleifarvatn, en málmplata til minningar um hann sett í
höfðann. — Svo var gert, sem Stefán mælti fyrir, og mega
nú allir sjá töfluna. En hvort aska hans svífur enn yfir
vatninu, eða hvort hún er orðin að botnföllnum leir, veit ég
ekki. — Sumir hafa orðið varir við einhvern slæðing þarna
meðfram vatninu, jafnvel um hábjartan dag, en hvort hann
hefur orðið til eftir að Stefán tók sér þarna hinzta hvílustað
eða hvort hann er eldri, veit ég heldur ekki. — Ekki sá ég
eða heyrði neitt undarlegt á þessum slóðum, og er Stefán nú
úr sögunni.
Þarna við höfðana er dálítið undirlendi og grasblettur,
og þar á grjótrústir, líklega hrunið fjárbyrgi. — Utsýni er
þarna góð yfir vatnið og hin nöktu eldbrunnu fjöll umhverf-
is það. Einmana svartbakur húkti á kletti úti í vatninu, og
var það hið eina lifandi kvikindi, sem ég sá við Kleifar-
vatn. — Eg óskaði með sjálfum mér, að nokkrir svartbakar
heiman úr Breiðafjarðareyjum væru komnir þarna, til að
halda hinum einmana frænda sínum selskap. — En líklega
er þetta galdravatn „steindautt“ svo hvorki tollir í því fisk-
ur eða fugl.