Breiðfirðingur - 01.04.1954, Blaðsíða 116
106
BREIÐFIRÐINGUR
Þorlákshöfn, þá verSur þar stærsta útflutningshöfn lands-
ins er tímar líða. Þaðan verður ekki einungis fluttur þorsk-
ur og lýsi til iðnaðarborga nágrannalandanna, heldur og
landbúnaðarafurðir í stórum stíl, er framleiddar verða í
hinum gullfallegu sveitum er þarna liggja skammt upp frá
Þorlákshöfn.
Hveragerði er fallegt sveitaþorp, sem risið hefur upp
við jarðhitann í Olfusinu á nokkrum árum. Þar sá ég fall-
ega sundlaug og stórar skólabyggingar, og fleira er þar
með miklum myndarsvip.
Fararstjórinn hafði pantað þarna kaffi fyrir allan mann-
skapinn og var það með þökkum þegið og drukkið. —•
Síðan var haldið austur fyrir Ingólfsfjall, upp Grímsnes
til Þingvalla. A þeirri leið er víða sumarfagurt land og bú-
sældarlegt, ekki sízt við Álftavatn. Sér og á að Reykvík-
ingum þykir gott að sóla sig þar í skógarkjarrinu. Sumar-
bústaðir eru í tugatali með veginum.
Mannmargt var á Þingvöllum, eins og svo oft áður um
þetta leyti árs. Æskan dansaði á vellinum og lék sér á
bátum á vatninu, en ellin sat að áti í gildaskálum. — Öíl
borð voru upptekin, og það var rétt.með erfiðismunum og
troðningi að hægt var að ná sér í ölflösku til að svata þorst-
anum. — Og viti menn, þarna í þrönginni gaf að líta alla
hina fyrirmannlegu forustumenn, sem um morguninn biðu
við dyrnar á Hótel Borg. Og nú hafði foringi okkar allra
Stefán .Tóhann Stefánsson, bætzt í hópinn. Ég hafði þá eetið
mér skakkt til um ferðaáætlun stórmennisins. Og óvíst er
með öllu að dr. Sigurður Þórarinsson hafi farið í Þiórsár-
dal þennan dag. Máske hefur hann. verið á Þingvöllum
líka, þó ég kæmi ekki auga á hann. Það fer svo lítið fvrir
svörtu alpahúfunni hans. — Svona er að gerast spámaður
um fyrirætlanir annarra manna.
Eftir stutta viðdvöl á hinum fornhelgu völlum, var hald-