Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2018, Síða 18
18 23. nóvember 2018
Þ
egar forsætisráðherra
Papúa Nýju-Gíneu fór ný-
lega í heimsókn til Peking
ræddi hann við kínverskan
starfsbróður sinn og sagði honum
meðal annars að hann vildi gjarn-
an leggja stóran og breiðan veg
þvert í gegnum Port Moresby, sem
er höfuðborg Papúa Nýju-Gíneu.
Það er ekkert vandamál svaraði
kínverski forsætisráðherrann.
„Segðu mér eitt, á hann að vera
nægilega breiður til að skriðdrekar
komist eftir honum?“
Miklir peningar
Það eru margar gamansögur eins
og þessar sem sagðar eru í Port
Moresby þessa dagana en á bak við
þær er hins ákveðin alvara og sann-
leikur því áhrif Kínverja fara sívax-
andi í landinu. Kínverjar hafa lagt
til fjármagn við fjölda framkvæmda
í höfuðborginni, vegir, leikvangar
og jafnvel strætisvagnabiðstöðvar
hafa verið byggðar fyrir kínverska
peninga. Þessi fátæka þjóð hefur
tekið þessu fjármagni fagnandi.
En áhugi Kínverja á Papúa Nýju-
Gíneu er ekki nýr af nálinni og það
er áhugi þeirra á Kyrrahafi og ríkj-
unum þar ekki heldur.
Árið 2016 námu fjárfestingar
Kínverja á Papúa Nýju-Gíneu um
21 milljón dollara. Á síðasta ári var
upphæðin komin yfir 60 milljónir
dollara. Þetta eru auðvitað miklir
peningar en ef fjárfestingar og
eyðsla Ástrala í landinu er skoðuð
sést að hún er mun meiri, en
Ástralir standa undir 70% af þeirri
fjárhagsaðstoð sem landið fær
enda var Papúa Nýja-Gínea áður
nýlenda Ástrala. Fátækt er mikil í
landinu og um 40% þjóðarinnar
hafa minna en einn Bandaríkja-
dal til framfærslu á dag samkvæmt
tölum frá Sameinuðu þjóðunum.
Í gegnum tíðina hafa Ástralir sett
fjármagn í menntakerfið og þjálf-
un opinberra starfsmanna til að
bæta stjórnsýsluna í landinu. Kín-
verjar setja á hinn bóginn peninga
í það sem íbúar landsins segjast
hafa mesta þörf yfir, innviði.
Herstöð á næstu áratugum
Allt er þetta hluti af áætlun Kín-
verja um að tengja Kína við önnur
ríki heimsins með fjárfestingum
og viðskiptum. Þessi áætlun er
hugarfóstur Xi Jinping forseta sem
hefur ekki farið leynt með þennan
áhuga sinn. Í síðustu viku tilkynntu
áströlsk stjórnvöld að þau ætli að
fjárfesta fyrir einn milljarð dala á
Kyrrahafssvæðinu og verður fjár-
festingunum beint að innviðum.
Þetta er gert til að mæta vaxandi
áhrifum Kínverja á svæðinu.
Á Papúa Nýju-Gíneu hefur
verið gagnrýnt að það sé oft vandi
við kínversku peningana að ekkert
gagnsæi sé um hvernig þeir eru
notaðir eða hverjir fá þá. Hluti af
þessu vandamáli er léleg stjórn-
sýsla á Papúa Nýju-Gíneu og mikil
spilling. Annar hluti þess er að
Kínverjar láta oft fé af hendi og
spyrja síðan hvað var gert við það.
Þetta veldur því að oft er ráðist í
óþörf verkefni sem mikið fé fer í á
meðan þarfari verkefni sitja á hak-
anum, má þar nefna heilbrigðis-
mál.
Það sem dregur Kínverja meðal
annars að Papúa Nýju-Gíneu er að
þar eru miklar náttúruauðlindir á
borð við sjaldgæfar steintegundir.
Ekki má heldur gleyma að þar býr
þriðjungur allra stuðningsmanna
Taívan í heiminum en það er eitt-
hvað sem Kínverjar vilja gjarnan
breyta enda er Taívan þeim þyrn-
ir í augum.
En ekki er ósennilegt að Kín-
verjar séu að horfa langt fram í
tímann með þessum fjárfesting-
um sínum. Ástralir og Banda-
ríkjamenn óttast að lokatakmark
Kínverja sé að koma sér upp her-
stöð einhvers staðar í Kyrrahafi á
næstu tuttugu til þrjátíu árum. Af
þessum sökum hafa bæði Ástralir
og Bandaríkjamenn undanfarið
brugðist við auknum áhrifum Kín-
verja á svæðinu.
Papúa Nýja-Gínea er í nokkurra
þúsunda kílómetra fjarlægð frá
Guam sem er bandarískt yfirráða-
svæði með stórri herstöð. Í nýrri
skýrslu frá bandaríska varnar-
málaráðuneytinu kemur fram að
líklegt megi teljast að kínverski
herinn hafi hug á að stækka að-
gerða- og áhrifasvæði sitt lengra út
frá Kína til að sýna fram á getu sína
til að ráðast á heri Bandaríkjanna
og bandamanna þeirra á vestur-
hluta Kyrrahafssvæðisins, þar á
meðal Guam. n
FRÉTTIR - ERLENT
FEGURÐ
ENDING
MÝKT
Kostirnir eru ótvíræðir:
• Fallegra hús
• Ekkert viðhald
Ál er okkar mál • Fossaleyni 8 • 112 Reykjavík • Sími: 577 4100 • altak.is
VEGGKLÆÐNINGAR
Fyrir allar gerðir húsa, ný
jafnt sem gömul, fjöldi lita og gerða
Mikill áhugi Kínverja á Papúa Nýju-Gíneu
Hvað vilja þeir? „Segðu mér
eitt, á hann
að vera nægi-
lega breiður til að
skriðdrekar kom-
ist eftir honum?
Kristján Kristjánsson
ritstjorn@dv.is
Xi Jinping Ráðstefna í Papúa Nýju-Gíneu.
Papúa Nýja-
-Gínea Mikil fátækt
og spilling.