Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2018, Page 22

Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2018, Page 22
22 UMRÆÐA Sandkorn 23. nóvember 2018 DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. Aðalnúmer: 512 7000 Auglýsingar: 512 7050 Ritstjórn: 512 7010 Útgáfufélag: Frjáls fjölmiðlun ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson Framkvæmdastjóri: Karl Garðarsson Aðalritstjóri og ábyrgðarmaður: Kristjón Kormákur Guðjónsson Aðstoðarritstjóri: Einar Þór Sigurðsson Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur Suðurlandsbraut 14 2. hæð 108 Reykjavík FRÉTTASKOT 512 7070 ABENDING@DV.IS Í vikunni greindi DV.is frá því að Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, hefði keypt sér ein­ býlishús á Ólafsfirði. Það væri varla frásögur færandi nema af því að hún býr í leiguhúsnæði á vegum Brynju, hússjóðs Öryrkja­ bandalagsins. Vegleg 148 fer­ metra íbúð með bílskúr. Þetta þótti blaðamönnum athyglisvert í ljósi þess að eitt af umsóknarskilyrðum Brynju er að umsækjandi eigi ekki fasteign. Þá má umsækjandi ekki hafa yfir 5,1 milljón í laun á ári. Inga hefur á þessu ári fengið 15 milljónir króna. En það gerðist jú, eftir að hún fékk íbúðina í sín­ ar hendur. Á sama tíma og Inga Sæland er forréttinda manneskja í íslensku samfélagi með himinhá laun, er búið að loka fyrir umsókn­ ir hjá Brynju. Í kjölfarið af þessum fréttaflutn­ ingi birti Inga færslu þar sem hún kvartar yfir „rætnum og illgjörnu óvinum“ sem „svífast einskis“ til að „rægja hana og rakka.“ Jafn­ framt segir Inga að hún hafi haft hátt undanfarið, sé að taka á líf­ eyrissjóðunum og að flokkurinn sé rísandi í skoðanakönnunum. Má skilja þetta á þann veg að hún haldi því fram að frétt DV sé ein­ hvers konar viðbrögð við því. Að blaðamenn DV hafi verið að ganga erinda lífeyrissjóðanna þegar þeir birtu fréttina. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Inga bregst svona við. Hún hefur áður lýst umfjöllun DV um hús­ næðismál hennar sem „skít“, „við­ bjóði“ og „illgirni“. Hún er ekki heldur sú eina sem hefur gerst sek um að bregðast við á þennan hátt. Þetta er algengt stef hjá stjórn­ málamönnum, þó að fæstir noti jafn sterk orð og Inga. Eitt dæmið er Braggamálið sem upp kom fyrir skemmstu og DV fjallaði ítarlega um. Til er það fólk sem heldur í alvöru að DV sé í ófrægingarherferð gegn Degi B. Eggertssyni og borgarstjórnar­ meirihlutanum. Er þar ekki að­ eins um að ræða einhver tröll úr netheimum heldur málsmetandi fólk. Aldrei er litið inn á við, aldrei er tekið á málunum sjálfum. Þegar upplýst er um mál sem kemur stjórnmálamönnum illa er ráðist á þann sem greindi frá. Það hljóti að vera annarlegar kenndir á bak við skrifin en ekki heiðarleg blaða­ mennska. Reynt er að stilla fjöl­ miðlinum og blaðamanninum upp í einhverja blokk, merkja hann og gera orð hans ómarktæk. Í stað þess að líta á sig sem fórnarlamb eða koma af stað samsæriskenn­ ingum mættu þeir stjórnmála­ menn sem rata á síður blaðanna þegar þeim verður á, miklu frekar líta í eigin barm og læra af mis­ tökunum. Þeir yrðu þá menn að meiri, hvort tveggja sem mann­ eskjur og stjórnmálamenn. Meirihluti fólks sér í gegnum svona leikrit en þessi hegðun stjórnmálamanna lýsir grund­ vallarmisskilningi og afskræmingu á því sem fram fer á ritstjórnar­ skrifstofunni. Hér eru ekki hyrndir púkar í leit að næsta fórnarlambi til að leiða til slátrunar. Hingað koma hvorki forsvarsmenn lífeyris­ sjóðanna né aðrir peningamenn til þess að skipa fólki fyrir verkum. Fréttir eru ekki fluttar nema fótur sé fyrir þeim og DV tekur heim­ ildavinnu sína mjög alvarlega. DV gengur ekki erinda neinna nema lesendanna sjálfra og almennings. Við höfum líka trú á því að langflestir átti sig á þessari að­ ferð stjórnmálamanna og annarra valdhafa til að dreifa athyglinni frá eigin klúðri og spillingu. Traust er lykilorðið í þessu sambandi. Við treystum því að lesendur sjái í gegnum þetta og þeir geta treyst því að við höldum áfram að stinga á kýlum valdsins. n Inga dreifir athyglinni Tobba á fljótandi fæði Tobba Marinós vakti mikla lukku á matarvef Moggans þegar hún upplýsti hvaða tryllitæki í eldhúsinu hún gæti ekki lifað án. Gott og vel. Hvergi er að sjá að um sé að ræða vörukynningu dulbúna sem frétt en það er þó margt sem bendir til þess að svo geti verið. Til dæmis er alltaf tek­ ið fram hvaða tegund er um að ræða, ekki að það þurfi að eiga tæki með einhvers konar eiginleika. Svo virðist sem Tobba gæti ekki lifað án þess að eiga fjóra Vitamix­blandara … efst á síðunni má svo finna auglýsingu frá Vitamix. Fyrir utan blandarana fjóra myndi hún deyja ef hún ætti ekki töfrasprota með utanáliggj­ andi hakkavél frá Braun, sem og matarhakkavél frá Magimix. Ef Tobba er ekki að setja nafn sitt á dulbúna auglýsingu, sem er bannað, þá er hún greinilega öll í fljótandi fæðu. Allt skotið niður Tvær fréttatil­ kynningar bár­ ust DV með stuttu millibili í vikunni. Önn­ ur þeirra var frá Sjálfstæðismönnum í Reykja­ vík sem sögðu að meirihlutinn í borginni hefði skotið niður allar þeirra hugmyndir á fundi borgarstjórnar. Hugmyndir þeirra væru til þess fallnar að laga allt sem þyrfti að laga. Stuttu síðar kom annar tölvu­ póstur. Nú frá Samfylkingunni á Alþingi sem kvartaði hástöf­ um undan því að stjórnarflokk­ arnir hefðu skotið niður allar þeirra hugmyndir, hugmynd­ ir sem væru til þess fallnar að laga allt sem þyrfti að laga. Svona er stjórnmálaumræðan í dag, allt er víst skotið niður og sá eini sem græðir er almanna­ tengillinn. Spurning vikunnar Á að leyfa kirkjuheimsóknir í skólum? „Einstaklingur verður að fá að ráða sínu formi. Ég á fjögur börn og þau verða öll að fá að ráða hvort þau fari í kirkju.“ Guðbergur Garðarsson „Jájá.“ Sunna Sigurðardóttir „Já, endilega. Það yrði skömm að leyfa það ekki.“ Guðrún Lára Ásgeirs- dóttir „Af hverju ekki? Þetta er frjálst land og fólk verður að fá að tjá sig. Ég er hare krishna.“ Inacio Pacas Leiðari Kristinn Haukur Guðnason kristinn@dv.is
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.