Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2018, Blaðsíða 25
FÓLK - VIÐTAL 2523. nóvember 2018
mikið við stelpur. Þegar strák-
arnir fóru að hafa áhuga á fót-
bolta leiddist mér. Stelpurnar voru
frekar til í að setjast niður með mér
og skrifa bók, setja upp leikrit eða
bíómyndir.“
Heldur þú að það hafi hentað
þér vel að alast upp í litlu sjávar-
plássi?
„Já, og ég er ákaflega þakklátur
fyrir að hafa alist upp í litlu þorpi.
Ég tel að það hafi hentað einstak-
lingi eins og mér ofboðslega vel.
Ég er ekki viss um að ég hefði þrif-
ist jafn vel í allri umferðinni og
hraðanum í Reykjavík. Úti á landi
hefur maður meiri tíma, það er svo
stutt í allt. Ég var svo frjáls.“
Bubbi mætti í plássið
Trúin á leiklistar- og söngferilinn
dó aldrei hjá Eyþóri. Eftir grunn-
skólann fór hann í Verkmennta-
skólann á Akureyri. Þar var hann
aðeins í eitt og hálft ár en náði
þar að leika Jesú Krist og vinna
Söngvakeppni framhaldsskól-
anna. Hann segir:
„Mér gekk illa í skólanáminu
og hafði engan áhuga á læra frekar
á bókina. Ég vildi læra tónlist og
leiklist. Eina ástæðan fyrir því að
ég skráði mig í VMA var að einhver
hvíslaði því að mér að það myndi
hjálpa til við að komast inn í Leik-
listarskólann. Ég hef alltaf verið
frekar áhyggjulaus og hugsa ekk-
ert of mikið út í hlutina. Læt bara
vaða. Það hefur sína kosti og galla,
æðruleysi og kæruleysi.“
Sigurinn í söngvakeppninni
reyndist vera stökkpallur fyrir Ey-
þór því ári síðar var hann kominn
í aðra keppni, Bandið hans Bubba,
sem sýnd var á Stöð 2 árið 2008.
Eyþór segist þó ekki hafa sótt um
það sjálfur.
„Það var búið að biðja mig um
að taka þátt en ég hafði engan
áhuga á svona raunveruleikasjón-
varpi. Þá kom Bubbi sjálfur og
náði í mig heim á Dalvík.“
Hvernig var það fyrir átján ára
strák?
„Ég skalf bara á hnjánum og gat
ekki sagt nei við hann. Þorði það
ekki. Ég gat sagt nei við alla aðra.“
Eyþór segist eiga Bubba mik-
ið að þakka því hann vann að lok-
um keppnina og varð þekkt andlit
á skjáum landsmanna. Hann segir
að þetta hafi flýtt mjög fyrir ferlinu
og gefið honum gott start. Hann
fékk snemma svo mikla vinnu við
tónlist að hann gat einbeitt sér al-
gjörlega að henni.
„Ég var ekki kominn með fjöl-
skyldu og þurfti ekki að hafa mik-
ið milli handanna til að lifa af. Þess
vegna nýtti ég tækifærið og hellti
mér á fullt út í þetta.“
Eyþór ferðaðist um landið með
kassagítarinn, spilaði á tónleikum,
árshátíðum og böllum. Eldri tón-
listarmenn buðu honum einnig að
spila með sér og tóku hann und-
ir sinn verndarvæng. Nefnir Ey-
þór sérstaklega Magna úr Á móti
sól, Hreim úr Landi og sonum og
Matta úr Pöpunum, sem einnig er
frá Dalvík.
„Þetta var skemmtilegur tími
og mikið fjör. Ég held að það hafi
hjálpað mér mikið hvað ég er jarð-
bundinn. Þegar ég hugsa til baka
sé ég hversu auðvelt það hefði ver-
ið að villast af leið. Átján ára strák-
ur frá Dalvík sem allt í einu verður
þekkt andlit úti á götu í Reykjavík.
Það er getur verið svolítið stórt
stökk fyrir sveitalubba eins og
mig.“
Árið 2009 var Eyþór gripinn inn
í Stuðmenn, þá aðeins tvítugur.
Var hann fenginn til að leysa Egil
Ólafsson af sem reyndist nokkur
áskorun.
„Þetta voru stórir skór að fara í,“
segir Eyþór og brosir. „Ég ætla ekki
að segja að það hafi verið auðvelt,
en þetta var mikill skóli og Jakob
Frímann kenndi mér mikið. Ég
hafði gaman af þessu en það var
samt erfitt að standa á sviði með
hljómsveitinni, strákpjakkur sem
var í einhverjum sjónvarpsþætti.
Fólkið úti í sal vildi fá Egil.“
Sveik sjálfan sig
Nú hefur þú tekið þátt í þremur tón-
listarkeppnum og unnið þær allar.
Er mikill keppnismaður í þér?
„Nei. Það er enginn íþróttamað-
ur í mér og enginn keppnismaður.
Ég er ekkert hrifinn af keppnum og
að það sé yfir höfuð verið að keppa
í tónlist. Þetta er nokkuð skondið
þegar litið er til baka. Kannski hef-
ur þetta æxlast svona út af kæru-
leysinu í mér,“ segir Eyþór og hlær.
Sú stærsta sem hann sigraði í
var vitanlega Söngvakeppni Sjón-
varpsins árið 2013 með laginu Ég
á líf eftir Pétur Örn „Jesú“ Guð-
mundsson og Örlyg Smára. Í kjöl-
farið flugu þeir út til Malmö til að
taka þátt í Eurovision, komust upp
úr undanriðlinum og höfnuðu í
sautjánda sæti lokakeppninnar.
„Eurovision var aldrei á stefnu-
skránni hjá mér, jafnvel þó að ég
hafi alla ævi verið mjög upptekinn
af söng. Kannski datt mér þetta í
hug þegar ég var sex eða sjö ára. En
allt frá unglingsárum fannst mér
þetta það hallærislegasta sem til
var.“
Eyþór segir að Eurovision hafi í
raun verið svik af hans hálfu. Bæði
gagnvart sjálfum sér og Bubba
Morthens.
1
BARNABÆKUR
14.-20. NÓV
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | www.forlagid.is
n Ímyndaði vinurinn Ganga n Þrefaldur sigurvegari en enginn
keppnismaður n Fjölbreytnin mikilvæg
með Eurovision
Sveik
sjálfan sig