Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2018, Side 28
28 FÓLK - VIÐTAL 23. nóvember 2018
www.avaxtabillinn.is • avaxtabillinn@avaxtabillinn.is • 517 0110
Ávaxtaðu betur
Epla- og mandarínukörfur
með merki fyrirtækisins á öllum ávöxtum
Talsvert töff að þakka samstarfsfyrirtækjum fyrir
árið með því að senda þeim svona körfur.
Viljið þið panta
bara einu sinni?
Þá er þessi pakki tilvalinn,
8,5 kg af ávöxtum á 6.500 kr.
Svo pantið þið bara aftur.
Jólakörfur
• Blandaðar ávaxtakörfur.
• Blandaðar ávaxtakörfur
með súkkulaðisveinum
og ýmsu öðru.
• Ávaxta- og ostakörfur
með ýmsum blæbrigðum.
Mandarínukassar
Eitthvað ægilega jólalegt
við að hafa þá uppi á borði í
kaffistofunni fyrir jólin.
Veislubakkar
Ávaxta- og grænmetisveislubakkar
við hvert tækifæri.
bíllinn
Færir fyrirtækjum jólin upp á borð
flakka. Oft mjög drukkið fólk. Oft-
ast næ ég að leiða svona hluti hjá
mér. Ég get orðið þakklátur ef ég
fæ góða gagnrýni. Líka mjög sár ef
ég fæ vonda. Einn af mínum göll-
um er að ég vil að öllum líki vel við
mig, sem er ekki hægt. Það er mitt
eilífðarverkefni að reyna að láta
mér standa á sama um hvað fólki
finnst.“
Eftirhermurnar náttúrulegar
Í desember ferðast Eyþór um
landið með gítarinn og kemur
fram á jólatónleikum. Eru þetta
nokkuð innilegir tónleikar þar sem
hann segir einnig sögur og gantast
við áhorfendur. Kórar úr heima-
byggð taka einnig undir með hon-
um. Eyþór er orðinn landsþekktur
fyrir eftirhermur sínar, til dæmis
af Ladda, Kristjáni Jóhannssyni,
Jakobi Frímanni og fleirum.
„Ég hef alltaf gert þetta, al-
veg síðan ég var krakki. Laddi var
fyrstur af því að hann var átrúnað-
argoðið mitt og ég hlustaði sífellt á
hann. Það var hins vegar ekki fyrr
en fyrir nokkrum árum að ég byrj-
aði að gera þetta opinberlega. Það
er mikið grínast baksviðs og þegar
ég var að rifja upp sögur var mér
bent á að ég næði fólkinu sem ég
var að tala um vel. Það var samt
ekki meðvitað, ég hef aldrei sest
niður og unnið í eftirhermunum.
Þær eru líka misgóðar.“
Eyþór segist í dag eiga ágætis
safn sem hann getur gripið í, þar af
margar persónur sem Laddi skap-
aði.
Hvernig taka fyrirmyndirnar
þessu?
„Ég veit það ekki,“ segir Eyþór
hugsi. „Ég held og vona innilega
að flestir taki þessu létt. Ástæðan
fyrir því að ég hermi eftir fólki er
að ég hef fylgst mikið með því og
lít upp til þess. Það myndi brjóta
í mér hjartað að vita af einhverj-
um sem væri sár við mig út af eft-
irhermu.“
Myndir þú þá hætta með þá
persónu?
„Já. Mig langar svo til að fólki
líki vel við mig,“ segir Eyþór og
hlær dátt.
Auk þess að túra um landið
kemur Eyþór fram á stórum
jólatónleikum með Jóhönnu Guð-
rúnu um helgina í Háskólabíói.
Þeir eru af allt öðrum toga, íburðar-
meiri, hátíðlegri og fjörugri.
„Þetta verður mikið stuð, gospel
og læti. Þarna verður mikil pissu-
keppni á milli okkar um hvort nær
hærri nótum.“ n
Hægt er að nálgast miða á alla
jólatónleika Eyþórs Inga á midi.is
„Það myndi brjóta í
mér hjartað að vita
af einhverjum sem væri sár
við mig út af eftirhermu