Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2018, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2018, Page 28
28 FÓLK - VIÐTAL 23. nóvember 2018 www.avaxtabillinn.is • avaxtabillinn@avaxtabillinn.is • 517 0110 Ávaxtaðu betur Epla- og mandarínukörfur með merki fyrirtækisins á öllum ávöxtum Talsvert töff að þakka samstarfsfyrirtækjum fyrir árið með því að senda þeim svona körfur. Viljið þið panta bara einu sinni? Þá er þessi pakki tilvalinn, 8,5 kg af ávöxtum á 6.500 kr. Svo pantið þið bara aftur. Jólakörfur • Blandaðar ávaxtakörfur. • Blandaðar ávaxtakörfur með súkkulaðisveinum og ýmsu öðru. • Ávaxta- og ostakörfur með ýmsum blæbrigðum. Mandarínukassar Eitthvað ægilega jólalegt við að hafa þá uppi á borði í kaffistofunni fyrir jólin. Veislubakkar Ávaxta- og grænmetisveislubakkar við hvert tækifæri. bíllinn Færir fyrirtækjum jólin upp á borð flakka. Oft mjög drukkið fólk. Oft- ast næ ég að leiða svona hluti hjá mér. Ég get orðið þakklátur ef ég fæ góða gagnrýni. Líka mjög sár ef ég fæ vonda. Einn af mínum göll- um er að ég vil að öllum líki vel við mig, sem er ekki hægt. Það er mitt eilífðarverkefni að reyna að láta mér standa á sama um hvað fólki finnst.“ Eftirhermurnar náttúrulegar Í desember ferðast Eyþór um landið með gítarinn og kemur fram á jólatónleikum. Eru þetta nokkuð innilegir tónleikar þar sem hann segir einnig sögur og gantast við áhorfendur. Kórar úr heima- byggð taka einnig undir með hon- um. Eyþór er orðinn landsþekktur fyrir eftirhermur sínar, til dæmis af Ladda, Kristjáni Jóhannssyni, Jakobi Frímanni og fleirum. „Ég hef alltaf gert þetta, al- veg síðan ég var krakki. Laddi var fyrstur af því að hann var átrúnað- argoðið mitt og ég hlustaði sífellt á hann. Það var hins vegar ekki fyrr en fyrir nokkrum árum að ég byrj- aði að gera þetta opinberlega. Það er mikið grínast baksviðs og þegar ég var að rifja upp sögur var mér bent á að ég næði fólkinu sem ég var að tala um vel. Það var samt ekki meðvitað, ég hef aldrei sest niður og unnið í eftirhermunum. Þær eru líka misgóðar.“ Eyþór segist í dag eiga ágætis safn sem hann getur gripið í, þar af margar persónur sem Laddi skap- aði. Hvernig taka fyrirmyndirnar þessu? „Ég veit það ekki,“ segir Eyþór hugsi. „Ég held og vona innilega að flestir taki þessu létt. Ástæðan fyrir því að ég hermi eftir fólki er að ég hef fylgst mikið með því og lít upp til þess. Það myndi brjóta í mér hjartað að vita af einhverj- um sem væri sár við mig út af eft- irhermu.“ Myndir þú þá hætta með þá persónu? „Já. Mig langar svo til að fólki líki vel við mig,“ segir Eyþór og hlær dátt. Auk þess að túra um landið kemur Eyþór fram á stórum jólatónleikum með Jóhönnu Guð- rúnu um helgina í Háskólabíói. Þeir eru af allt öðrum toga, íburðar- meiri, hátíðlegri og fjörugri. „Þetta verður mikið stuð, gospel og læti. Þarna verður mikil pissu- keppni á milli okkar um hvort nær hærri nótum.“ n Hægt er að nálgast miða á alla jólatónleika Eyþórs Inga á midi.is „Það myndi brjóta í mér hjartað að vita af einhverjum sem væri sár við mig út af eftirhermu
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.