Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2018, Side 41
Jólablað 23. nóvember 2018 KYNNINGARBLAÐ
MÁLMLIST:
Íslandsklukkur um allan heim
Fyrir austan, á bænum Jaðri í Suðursveit, eru þau Bjarni Malmquist og Sigrún Elfa að
smíða fallegar gjafavörur úr áli. „Vélina
sem við notum til að skera út vörurnar
smíðaði Bjarni árið 2013 til að geta
skorið út og smíðað heimarafstöðv-
ar fyrir bændur. Við byrjuðum svo að
smíða Íslandsklukkurnar í september
2016 og hafa viðtökurnar verið mjög
góðar. Við skerum klukkurnar út úr 2
millimetra áli og dufthúðum þær í ýms-
um litum,“ segir Sigrún.
Jólaskraut úr baurstuðu áli
„Við hófum svo smíði á jólaskrauti núna
fyrir jólin, sem einnig er skorið úr 2
millimetra áli og ýmist dufthúðað með
hvítum lit eða er með burstaðri áferð.
Með hverju jólaskrauti fylgir rautt band
og erum við að selja skrautið í magn-
pakkningum og kostar stykkið frá 999
krónum,“ segir Sigrún.
Innblásnar af norðurljósunum
Íslandsklukkurnar koma í tveimur
stærðum, lítil er 32×43 sentimetrar og
stór 40×55 sentimetrar. „Við bjóðum
upp á þær í mismunandi litum, allt
frá svörtum yfir í litríka norðurljósaliti.
Svörtu litirnir eru háglans, mattur og
svo litur sem við köllum Stjörnuhimin,
sem er svartur með lituðu glimmeri
sem kemur skemmtilega út þegar ljós
skín á klukkuna.
Einnig erum við með klukkur sem við
köllum Norðurljós og Áróru en báðar
útgáfurnar eru innblásnar af norður-
ljósunum. Þær eru handslípaðar svo
engar tvær klukkur eru nákvæmlega
eins. Þær njóta sín best ef ljóskastara
er beint að þeim, þá lifna norðurljósin
við og dansa í klukkunni,“ segir Bjarni.
10% afsláttur fyrir lesendur DV
„Verðið á klukkunum er frá 15.990
krónum en við viljum bjóða lesendum
DV afslátt. Ef pantað er með afslátt-
arkóðanum JOL2018 inni á netversl-
uninni okkar malmlist.com fæst 10%
afsláttur af klukkunum til 10. desem-
ber,“ segir Bjarni.
Fullkomin jólagjöf
Íslandsklukkurnar hafa verið sérlega
vinsælar í gjafir, ekki síst til Íslendinga
sem búa erlendis. Klukkurnar koma
innpakkaðar í sterkt en létt frauð og
eru báðar stærðir innan við 1 kíló með
pakkningunni.
Frí heimsending fram að jólum um
allan heim
„Alla jafna bjóðum við upp á fría
heimsendingu innanlands en við erum
í jólaskapi og höfum ákveðið að bjóða
einnig upp á fría hraðsendingu með
DHL á Íslandsklukkunum fyrir þá sem
búa erlendis, fram að jólum. Eins og er
eigum við allar gerðir af Íslandsklukk-
um til á lager, en fyrir þá sem vilja vera
vissir um að fá þann lit sem þeir óska
eftir er vissara að panta fyrir 10. des-
ember. Afhendingartími er að jafnaði
um þrír virkir dagar,“ segir Sigrún.
Nánari upplýsingar má nálgast
inn á netversluninni malmlist.com og
Facebook-síðunni Málmlist eða í síma
661-4172
Netpóstur: malmlist@bmj.is n