Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2018, Blaðsíða 47
Jólablað 23. nóvember 2018KYNNINGARBLAÐ
LITLA GJAFABÚÐIN:
Gjafavörur og allt fyrir hátíðahöld
Litlu Gjafabúðina opnaði Anne Helen núna í október og síðan þá hefur versluninni aldeilis vax-
ið fiskur um hrygg. „Ég er með mjög
mikið úrval af alls konar skemmtilegri
og fallegri gjafavöru. Hér fást fallegar
englastyttur og blómálfastyttur,
tröllastyttur og álfastyttur, auk þess
sem ég er með mikið af kertum og
servíettum fyrir alls kyns tilefni.
Einnig erum við með gott úrval af
dúkum og löberum. Að auki er mikið
úrval af jólareykelsum og það sem er
nýtt hjá okkur þetta árið eru litlar ilm-
stangir sem hengdar eru á gervijóla-
tré og gefa frá sér yndislegan jólailm.
Þrenns konar ilmur er af þessum
sniðugu ilmstöngum,“ segir Anne.
Jólin koma líka í Litlu Gjafabúðina
„Að sjálfsögðu býð ég upp á eitthvað
af jólavörum í Litlu Gjafabúðinni
núna rétt fyrir jólin en þær vörur eru
kannski með aðeins öðru sniði en
jólavörurnar í Jólabúðinni.
Til dæmis er ég með fallegt svart
jólatré hér í búðinni sem skreytt er
páfuglaskrauti af ýmsu tagi. Þetta
hefur vakið töluverða athygli og hríf-
ast margir af þessu fallega skrauti,“
segir Anne Helen.
Litla Gjafabúðin er að Laugavegi
8, 101 Reykjavík
Sími: 552-2413
Opið er mánudaga–föstudaga frá
10–18, laugardaga 10–17 og sunnu-
daga 11–17 n
LITLA JÓLABÚÐIN:
Jólin byrja í Jólabúðinni
Það þekkja það eflaust margir að komast loks í almennilegt jólaskap þegar þeir gera sér ferð inn í Litlu
Jólabúðina þegar jólin nálgast. Verslun-
ina ættu allir Reykvíkingar að kannast
við enda hefur hún verið staðsett við
Laugaveginn í hartnær 19 ár. Verslunin
er opin allt árið um kring þrátt fyrir að
vöruúrvalið einskorðist við jólavörur.
Stolt af jólasveinunum
„Helstu viðskiptavinir mínir yfir sumar-
tímann eru ferðamennirnir. Þeim þykir
sérstakt að hér sé opin jólabúð allt árið
um kring. Við starfsmennirnir í búðinni
erum með sögustund oft á dag þar sem
við segjum útlendingunum frá íslensku
jólasiðunum og ekki síst íslensku jóla-
sveinunum þrettán, Grýlu, Leppalúða
og jólakettinum sem við seljum sem
styttur í búðinni.
Þessi séríslenska saga er alveg
stórskemmtileg og þykir þeim gaman
að heyra hana. En þessar skemmti-
legu styttur eru vinsælir minjagripir hjá
ferðamönnunum auk þess sem Ís-
lendingar kaupa þær einnig. Íslendingar
eru svo stoltir af þessum sérstaka
sagnaarfi,“ segir Anne Helen Lindsay,
eigandi Litlu Jólabúðarinnar.
Alltaf fyrst í jólaskapið
Verslunin er einnig með stórgott úrval af
fallegu jólaskrauti og væri líklega hægt
að prýða hverja einustu grein jólatrésins
með mismunandi jólakúlu, klemmum
og skrauti frá Litlu Jólabúðinni. Anne
Helen bætir við að þær stöllur í búðinni
komist undantekningarlaust í jólaskap
þegar Íslendingarnir fara að láta sjá sig
í október/nóvember. „Þá eru jólin fyrir
alvöru komin hjá mér,“ segir Anne Helen.
Nánari upplýsingar má nálgast á
Facebook-síðunni Litla Jólabúðin
Litla Jólabúðin er að Laugavegi 8,
101 Reykjavík
Sími: 552-2412
Opið er mánu-
daga–föstu-
daga frá 10–18,
laugardaga 10–17
og sunnudaga 11–17
n