Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2018, Page 57
Jólablað 23. nóvember 2018KYNNINGARBLAÐ
Besta leiðin til þess að koma sér burt frá jólastressinu er klár-lega að skella sér á skíði, renna
burt frá öllu amstri og sveigja kringum
áhyggjurnar. Síðustu ár hefur skíðafærið
ekki endilega verið upp á marga fiska á
höfuðborgarsvæðinu en það er engin
ástæða til þess að örvænta. Hlíðarfjall
á Akureyri mætti segja að sé eins og
Tenerife skíðamannsins. Þar er afburða-
góð aðstaða fyrir skíðafólk, hvort heldur
þá sem stunda venjuleg skíði, gönguskíði
eða snjóbretti. „Við stefnum á að opna
um mánaðamótin nóvember–desember
og ég mæli heilshugar með því að fólk
skelli sér á skíði á milli jóla og nýárs og
skilji endilega jólastressið eftir heima.
Hægt er að fá gistingu á fjölmörgum
hótelum eða gistihúsum hér í bænum og
svo eru Akureyringar margrómaðir fyrir
afbragðs matargerð,“ segir Guðmundur
Karl Jónsson, forstöðumaður Skíða-
svæðisins Hlíðarfjall.
Allir skíða
Í Hlíðarfjalli eru fjölmargar skíðalyftur
og brekkur sem henta bæði byrjendum
sem lengra komnum. Einnig eru margar
gönguskíðabrautir fyrir gönguskíðafólk.
Hlíðarfjall býður að auki upp á skíðaleigu
með góðu úrvali hefðbundinna skíða,
gönguskíða og bretta og margt fleira.
Svo starfrækir skíðasvæðið skíðaskóla
þar sem ungum jafnt sem öldnum er
kennt á skíði eða bretti á öruggan hátt.
„Við bjóðum sérstaklega velkomna í
skíðaskólann skíðaiðkendur á aldrinum
5–12 ára,“ segir Guðmundur.
Engar biðraðir
„Hægt er að kaupa vetrarkortin á vefsíð-
unni okkar hlidarfjall.is og er hægt að
kaupa annars vegar kort sem duga allan
veturinn fram til 28. apríl eða borga fyrir
hvert skipti inn á Sidata kortin okkar.
Við gerðum fólki kleyft að kaupa miða á
netinu sem hefur nær útrýmt biðröðum í
miðasölu og í lyfturnar,“ segir Guðmund-
ur.
Sími: 462-2280
http://www.
hlidarfjall.is/is
https://
hlidarfjall.skiper-
formance.com/
shop/is/store n
SKÍÐAÐU JÓLASTRESSIÐ Í KAF:
Hlíðarfjall Akureyri