Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2018, Page 59

Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2018, Page 59
Jólablað 23. nóvember 2018KYNNINGARBLAÐ Hágæða sængurfatnaður úr náttúrulegum efnum sem sérstaklega miðar að góðum svefni eru helstu einkennin á vöruúr- vali í vefversluninni Sofðu rótt. Versl- unin er hluti af fyrirtækinu Vitar ehf. sem m.a. býður upp á sængurfatnað og lín fyrir hótel og gistihús en býður nú almenningi upp á sængurvörur o.fl. í gegnum vefverslunina sofdurott. is. „Í tengslum við hótelbransann áttaði ég mig á því að ég var kominn með framleiðendur í hæsta klassa og fannst ég verða að bjóða hluta af þeirra vörum til sölu til einstaklinga. Sérstaða vöruframboðsins í vefversl- uninni er sú að almennt eru þetta vörur úr náttúrulegum efnum, dún, ull, hör, silki eða bómull. Dúnninn er flokkaður eftir stærð og gæðum sem skýrir verðmun á sængum. Við erum með sængur frá þýska fyrirtækinu Kauffmann sem er bæði einn stærsti sængurframleiðandi í Evrópu en jafn- framt einn af þeim virtari í heiminum og hefur verið starfandi í tæp 200 ár. Velferð dýra skiptir Kauffmann miklu máli og er fyrirtækið með vottun upp á að allur dúnn sem fer í sængurnar og koddana þeirra sé reyttur af dauðum fuglum en því miður er talsvert um að dúnn sé reyttur af lifandi fuglum,“ segir Arnar Þór Jónsson hjá Vitum ehf. Mikil áhersla á góðan svefn ein- kennir þessar vörur: „Þegar þú leggst upp í rúm er mikilvægt að hitastigið sé rétt. Margir velja sér mjög hlýja eða heita sæng þar sem þeim þykir hún notaleg. En svo sefurðu kannski ekki nógu vel undir henni þar sem þér verður of heitt. Við bendum fólki á að velja réttu sængina miðað við svefn- herbergishita og líkamsþyngd,“ segir Arnar en á vefsíðunni sofdurott.is undir liðnum „Upplýsingar“ er að finna góðar leiðbeiningar um þetta. Sængin Climabalance frá Kauff- mann er sérhönnuð með góðan svefn í huga. „Kauffmann selur þessa sæng undir einkaleyfi um allan heim. Svefn- rannsóknarstöð háskólasjúkrahússins í Regensburg í Þýskalandi gerði rann- sókn á áhrifum hita á svefngæði þar sem Climabalance-sængin var borin saman við hefðbundna, sambærilega sæng. Niðurstöðurnar voru afger- andi: Þú ert fljótari að sofna undir Climabalance-sænginni, svefninn verður rólegri, þú vaknar sjaldnar, REM-svefninn lengist og djúpsvefn lengist um allt að 50%. Það svitna allir á næturnar, mismikið þó, en raki fer þrisvar sinnum hraðar í gegnum Climabalance-sængina en hefð- bundna sæng og því verður jafnara hitastig undir sænginni og þú sefur betur.“ Sofðu rótt stóð fyrir lítilli óvísinda- legri tilraun á haustmánuðum til að sjá hvort sömu niðurstöður fengjust á Íslandi. Valdir voru einstaklingar sem hafa glímt við mikinn nætursvita og léleg svefngæði. Að sögn Arnars voru niðurstöður enn betri en hann þorði að vona. Á sofdurott.is er bæði lögð áhersla á há gæði og hagstætt verð. „Við erum ekki í verðsamkeppni við sængur úr gerviefnum en verðlagið á þess- um vörum er það sama og úr versl- un í Þýskalandi eða annars staðar í Evrópu,“ segir Arnar. „Við ætlum að bæta smám saman við vörum í vefverslunina okkar, nýver- ið tókum við inn æðislega merino-ullar inniskó og heilsukoddann Viscospring. Þá eru að detta í hús teppi sem gætu t.d. verið frábær jólagjöf fyrir ömmu og afa og sérstaklega mjúkir treflar úr „baby alpaca“-ull. Þá er hægt að sérpanta sængur fyrir þá sem hafa ofnæmi fyrir dún en vilja samt sæng úr náttúrulegum efnum. Væntanleg- ur er vatnsheldur rúmfatnaður sem andar mjög vel og hentar því börnum sem væta rúmið og öðrum með sama vandamál. Það er því um að gera að fylgjast reglulega með síðunni www.sofdurott. is. n SOFDUROTT.IS: Fyrir þá sem vilja sofa betur
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.