Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2018, Qupperneq 59
Jólablað 23. nóvember 2018KYNNINGARBLAÐ
Hágæða sængurfatnaður úr náttúrulegum efnum sem sérstaklega miðar að góðum
svefni eru helstu einkennin á vöruúr-
vali í vefversluninni Sofðu rótt. Versl-
unin er hluti af fyrirtækinu Vitar ehf.
sem m.a. býður upp á sængurfatnað
og lín fyrir hótel og gistihús en býður
nú almenningi upp á sængurvörur
o.fl. í gegnum vefverslunina sofdurott.
is.
„Í tengslum við hótelbransann
áttaði ég mig á því að ég var kominn
með framleiðendur í hæsta klassa
og fannst ég verða að bjóða hluta af
þeirra vörum til sölu til einstaklinga.
Sérstaða vöruframboðsins í vefversl-
uninni er sú að almennt eru þetta
vörur úr náttúrulegum efnum, dún,
ull, hör, silki eða bómull. Dúnninn er
flokkaður eftir stærð og gæðum sem
skýrir verðmun á sængum. Við erum
með sængur frá þýska fyrirtækinu
Kauffmann sem er bæði einn stærsti
sængurframleiðandi í Evrópu en jafn-
framt einn af þeim virtari í heiminum
og hefur verið starfandi í tæp 200 ár.
Velferð dýra skiptir Kauffmann miklu
máli og er fyrirtækið með vottun upp á
að allur dúnn sem fer í sængurnar og
koddana þeirra sé reyttur af dauðum
fuglum en því miður er talsvert um að
dúnn sé reyttur af lifandi fuglum,“ segir
Arnar Þór Jónsson hjá Vitum ehf.
Mikil áhersla á góðan svefn ein-
kennir þessar vörur: „Þegar þú leggst
upp í rúm er mikilvægt að hitastigið
sé rétt. Margir velja sér mjög hlýja
eða heita sæng þar sem þeim þykir
hún notaleg. En svo sefurðu kannski
ekki nógu vel undir henni þar sem þér
verður of heitt. Við bendum fólki á að
velja réttu sængina miðað við svefn-
herbergishita og líkamsþyngd,“ segir
Arnar en á vefsíðunni sofdurott.is
undir liðnum „Upplýsingar“ er að finna
góðar leiðbeiningar um þetta.
Sængin Climabalance frá Kauff-
mann er sérhönnuð með góðan svefn
í huga. „Kauffmann selur þessa sæng
undir einkaleyfi um allan heim. Svefn-
rannsóknarstöð háskólasjúkrahússins í
Regensburg í Þýskalandi gerði rann-
sókn á áhrifum hita á svefngæði þar
sem Climabalance-sængin var borin
saman við hefðbundna, sambærilega
sæng. Niðurstöðurnar voru afger-
andi: Þú ert fljótari að sofna undir
Climabalance-sænginni, svefninn
verður rólegri, þú vaknar sjaldnar,
REM-svefninn lengist og djúpsvefn
lengist um allt að 50%. Það svitna
allir á næturnar, mismikið þó, en raki
fer þrisvar sinnum hraðar í gegnum
Climabalance-sængina en hefð-
bundna sæng og því verður jafnara
hitastig undir sænginni og þú sefur
betur.“
Sofðu rótt stóð fyrir lítilli óvísinda-
legri tilraun á haustmánuðum til að
sjá hvort sömu niðurstöður fengjust á
Íslandi. Valdir voru einstaklingar sem
hafa glímt við mikinn nætursvita og
léleg svefngæði. Að sögn Arnars voru
niðurstöður enn betri en hann þorði
að vona.
Á sofdurott.is er bæði lögð áhersla
á há gæði og hagstætt verð. „Við
erum ekki í verðsamkeppni við sængur
úr gerviefnum en verðlagið á þess-
um vörum er það sama og úr versl-
un í Þýskalandi eða annars staðar í
Evrópu,“ segir Arnar.
„Við ætlum að bæta smám saman
við vörum í vefverslunina okkar, nýver-
ið tókum við inn æðislega merino-ullar
inniskó og heilsukoddann Viscospring.
Þá eru að detta í hús teppi sem gætu
t.d. verið frábær jólagjöf fyrir ömmu
og afa og sérstaklega mjúkir treflar
úr „baby alpaca“-ull. Þá er hægt að
sérpanta sængur fyrir þá sem hafa
ofnæmi fyrir dún en vilja samt sæng
úr náttúrulegum efnum. Væntanleg-
ur er vatnsheldur rúmfatnaður sem
andar mjög vel og hentar því börnum
sem væta rúmið og öðrum með sama
vandamál.
Það er því um að gera að fylgjast
reglulega með síðunni www.sofdurott.
is. n
SOFDUROTT.IS:
Fyrir þá sem vilja sofa betur