Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2018, Síða 71
Jólablað 23. nóvember 2018 KYNNINGARBLAÐ
Sígræn jólatré með led-ljósum
Skátarnir byrjuðu að selja Sígræna jólatréð – gervijóla-tré – fyrir 25 árum. Þessi tré
endast gríðarlega vel, svo vel að þau
eru að erfast á milli ættliða. Þetta er
innflutt vara, hágæða tré sem hafa
reynst mjög vel. Allur ágóði af jóla-
tréssölunni fer beint í æskulýðsstarf
skátanna,“ segir Kristinn Ólafsson,
framkvæmdastjóri Skátabúðarinnar.
Ekkert barr, ekkert vesen
Sígrænu gervijólatrén frá Skátunum
eru klárlega mjög góður kostur í þeim
tilvikum þegar lifandi jólatré henta
ekki. Kristinn telur að notkun gervi-
trjáa fari vaxandi. „Margir verða sífellt
þreyttari á öllu barrinu, þrifunum og
veseninu sem fylgir lifandi trjám og
sumir hafa ofnæmi fyrir gróðrinum,“
segir Kristinn en telur þó að lifandi
jólatré hafi sannarlega mikla kosti
og mikinn þokka til að bera. Sígræna
jólatréð sé hins vegar góður valkostur
til hliðar við þau: „Það er gott að eiga
tréð alltaf niðri í geymslu og þurfa
ekki að huga að jólatréskaupum fyrir
hver jól. Svo er líka gott að geta byrj-
að að skreyta fyrr fyrir jólin, margir
eru farnir að skreyta um miðjan des-
ember og jafnvel fyrr.“
Sígræna jólatréð frá Skátunum
endist gríðarlega vel og er selt með
tíu ára ábyrgð. Hægt er að skipta
um einstaka greinar á því, eða eins
og Kristinn segir sposkur: „Já, það er
hægt að fá varahluti.“
Led-tré – lausn á öllum vanda
heimsins
Mesti hausverkurinn við jólatrés-
uppsetningu er líklegast ljósa-
serían. Við kaup þarf að
huga að dreifingu á ljósum
og hversu margra ljósa
serían þarf að vera.
Hvað þá þegar kemur
að því að taka hana
niður að jólahátíð
lokinni. Þá þarf að
finna nógu stóran
sívalning til þess að
vefja henni utan um
svo hún flækist ekki.
Það þarf enginn
að örvænta því
Skátarnir eru
byrjaðir að flytja inn stórsnið-
ug sígræn jólatré með áföstum
led-ljósum. „Það þarf ekki lengur
að vesenast með flæktar ljósaser-
íur með biluðum perum sem þarf
að skipta út og kemur svo í ljós
að fást hvergi. Led-tréð er þak-
ið litlum hvítum led-ljósum sem
veita fallega mjúka birtu. Þeim er
fullkomlega dreift svo það eina
sem þarf að hugsa um er að setja
jólaskrautið á. Það er auk þess
miklu betri ending á led-ljósun-
um en venjulegum perum,“ segir
Kristinn.
Gæðatré á góðu verði
Þó að Sígræna jólatréð sé inn-
flutt er það framleitt í samræmi
við fyrirmæli frá Skátabúðinni og
hannað með þeim hætti að það
líkist sem mest normannsþini,
sem Íslendingar þekkja vel. Efnið
sem notað er í tréð er þykkara en
á flestum öðrum trjám og það er
jafnframt ekki eins eldfimt og önn-
ur gervitré. Í trénu er þykkara plast
en gengur og gerist með gervi-
tré, sem veldur því að greinarnar
leggjast síður niður við geymslu
milli jóla, og tréð virkar eðlilegra
þegar komið er við það.
Óbreytt verð í þrjú ár
Verð hefur ekki breyst í þrjú ár
og kostar Sígræna jólatréð frá
5.900 krónum. Mikill fjöldi
stærða er í boði og er verðið
breytilegt eftir stærðum.
Minnstu trén eru 60 sentimetr-
ar á hæð og þau stærstu
heilir fimm metrar.
Stærstu trén prýða
anddyri í húsnæði
ýmissa stórfyrir-
tækja.
Sígræna jóla-
tréð er til sölu í
Skátabúðinni,
Hraunbæ 123.
Opið er alla
virka daga í
nóvember frá
9–17.
Opnunartími frá 1. desember
9–18 alla virka daga, og frá 12–18
um helgar.
Sími: 550-9800
Jafnframt er hægt að kaupa
trén í vefversluninni sigraena.is.
Trén eru heimsend hvert á land sem
er. n