Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2015, Side 46

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2015, Side 46
A n d r é s E i r í k s s o n 46 TMM 2015 · 4 Kynlíf og dauði eru skáldinu ofarlega í huga og honum er tíðrætt um þann skramba að búa með frjóan anda og kvensamar fýsnir í hrörnandi líkama. Best er þó, hér sem endranær, að byrja á byrjuninni, UNGA YEATS, ljóðunum frá 1885–1910. Á bak við þau býr sú vissa að til sé altækur guð­ legur sannleikur og eilíf fegurð sem ljóðskáldið getur túlkað með táknum og miðlað með rími. Þetta eru rómantísk ljóð um ást, fegurð, alþýðufólk, þjóðsögur og álfa.6 Þar er Íslendingurinn á heimavelli. Og hlýtur að spyrja: „Hverra manna er skáldið?“ Að gefa sjávarklettunum tungu William Butler Yeats var frumburður Johns Butler Yeats og konu hans Susan Mary, sem borin var Pollexfen. Þau hjón áttu alls sex börn. Þar af dóu tvö kornung, Jane Grace á fyrsta ári og Robert Corbet þriggja ára. Þau sem á legg komust voru, auk Williams, dæturnar Lolly og Lily og sonurinn Jack Butler.7 Engin fjölskylda hefur sett jafn mikið mark á listalíf Írlands. Faðirinn var snjall málari og sonurinn Jack Butler enn snjallari. Fjölmargir telja hann fremsta listmálara Írlands fyrr og síðar. Lolly og Lily stunduðu útsaum og ýmsan annan listiðnað og ráku hina merku bókaútgáfu Cuala Press.8 Og svo var það stórskáldið William, eða Willie eins og fjölskyldan kallaði hann. Willie var af heldra fólki í báðar ættir, landeigendum, embættismönnum, klerkum, kaupmönnum, iðjuhöldum og skipaeigendum. Þetta voru svokall­ aðir Angló­Írar, yfirstétt af enskum uppruna, mótmælendur innan írsku Biskupakirkjunnar sem nátengd var hinni ensku. Þeir sóttu menntun sína og menningu, viðmið og pólitík til Englands og voru vitaskuld enskumælandi án nokkurrar kunnáttu í írsku. Írsk tunga var einungis töluð af kaþólskri alþýðu til sveita og jafnvel þar var hún á hröðu undanhaldi. Angló­Írar höfðu drottnað í krafti jarðeigna og lögbundinna forréttinda mótmælenda, en sú staða var óðum að breytast. Lagalegt jafnrétti trúflokka var nú að mestu tryggt og barátta bænda, bæði vopnuð og þingræðisleg, færði þeim smátt og smátt aukin réttindi og loks lögbundna sjálfseign upp úr 1885. Angló­Írar höfðu þó enn menningarlegt forræði, stjórnuðu æðri menntun og svokallaðri hámenningu, þar á meðal skrifuðum bókmenntum sem voru á ensku og tengdari enskri mennt en írskri menningu. Trinity háskólinn í Dyflinni var í senn höfuðvígi æðri menntunar og alma mater Angló­Íra. William Butler Yeats fékk aldrei að njóta þess góss jarðeigna, fasteigna og fjármuna sem hann virtist eiga í vændum við fæðingu. Komu þar bæði til ofangreindar þjóðfélagsbreytingar og uppátæki föður hans. William var ekki fyrr fæddur en John ákvað að hætta ábatasömum lögfræðistörfum í Dyflinni, flytja til Englands og læra þar myndlist. Hún varð upp frá því hans helsti starfi, en því miður rýr tekjulind. Hann þótti snjall málari en naut ekki þeirrar velgengni sem hæfileikarnir buðu. Þar gat hann sjálfum sér um kennt, var lítill framkvæmdamaður og sölumaður, en þeim mun meiri
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.