Tímarit Máls og menningar - 01.11.2015, Qupperneq 51
H i n g u l a s t r ö n d S i n b a ð s
TMM 2015 · 4 51
bátum og sitja og annast hesta. Hann kynntist alþýðukveðskap, þjóðlegum
fróðleik og sögum um álfa og drauga. Frá föður sínum og skólakerfinu fékk
hann hins vegar í arf enskættaða bóklega mennt efri stétta: Klassísk fræði,
heimspeki og bókmenntir, ekki síst enska lýríska rómantík. Ljóðagerð Yeats
var afsprengi þessara tveggja menningarheima sem kölluðust og tókust á í
huga, sál og ljóðum hins unga skálds. Seinna sagði Yeats um Sligo: „þegar
ég byrjaði að semja var það þar sem ég hugðist finna mína áheyrendur.“27
Þetta er þó ekki alls kostar rétt. Yeats hóf að yrkja sem unglingur og fyrstu
varðveittu ljóð hans eru frá 1882, þegar hann var 16 ára. Fyrstu ljóð hans
birtust á prenti 1885, þegar hann var 19 ára. Fæst ljóða sinna 1882–86 fékk
hann útgefin, en mörg þeirra hafa þó varðveist.28 Þau tengjast nánast ekkert
Sligo og Írlandi. Sögusviðið er Evrópa miðalda eða fornalda, einkum Grikk
land hið forna, sem og Indland með tilvísunum í austurlenska dulspeki,
sem William hafði þá bundið trúss sitt við, fríþenkjandi föður sínum til
hrellingar. Það er lítið írskt við þessi fyrstu verk, hvort sem litið er á efnivið
eða stíl. Þau bera þess heldur engin merki að höfundur sé að leita áheyrnar
alþýðufólks í Sligo. Það er eins og hann tengi ekkert þá menningu, þjóðtrú og
náttúru sem hreif hann í Sligo við alvarlega og marktæka ljóðagerð.
Þegar hér var komið sögu var fjölskyldan flutt aftur til Írlands og bjó í
Dyflinni eða næsta nágrenni 1881–86. Þar lauk William menntaskóla við
lít inn orðstír, komst ekki í Trinity háskólann, flosnaði upp úr listnámi eftir
eitt ár og einsetti sér þá að helga líf sitt skriftum og verða stórskáld. Læri
faðir hans var Edward Dowden, stórvinur Johns Butler Yeats. Dowden var
prófessor í bókmenntum við Trinity og sérfræðingur í Shakespeare, Goethe
og enskri rómantík, einkum Wordsworth og Shelley. Anglóírskur bak
grunnur Yeats, skólaganga hans í Lundúnum og Dyflinni, sem og áhrifin
frá Dowden skýra auðveldlega þá gjá sem var á milli ljóðagerðar hans
annars vegar og alþýðlegrar menningar Írlands og Sligo hins vegar. Öllu
sem flokkaðist undir listrænan skáldskap hafði hann kynnst í gegnum
enskan menningarheim. Fyrirmyndir hans voru allar enskar, Spenser, Keats,
Tennyson og Shelley. Þegar hann leit til baka sagði hann að skáldskapur sinn
á þessum árum hefði bara verið stæling á Spenser og Shelley.29 (Hann hafði
enn ekki kynnst William Blake, sem hann seinna mat mest allra skálda.)
Hins vegar þekkti hann nánast ekkert til írskra skálda, hvort sem þau ortu
á írsku eða ensku.
Á þessu varð gjörbreyting í lok árs 1885 þegar Yeats fann sér nýjan læri
föður. Sá hét John O’Leary. Þeir kynntust í málfundafélagi um menningu og
stjórnmál, Contemporary Club í Graftonstræti. John O’Leary var nýkominn
aftur til Írlands eftir tuttugu ára fjarveru, hafði fyrst setið níu ár í tukt
húsi á Englandi og síðan dvalist í ellefu ára útlegð í París, dæmdur fyrir níð
um Bretaveldi og hvatningu til vopnaðrar uppreisnar. Þegar hér var komið
hafði O’Leary lítil bein afskipti af stjórnarfarsmálum og flokkapólitík, enda
nokkuð á skjön við nýjar hreyfingar þingræðissinna og bænda. Þess í stað