Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2015, Page 52

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2015, Page 52
A n d r é s E i r í k s s o n 52 TMM 2015 · 4 einbeitti hann sér að hinni menningarlegu hlið sjálfstæðisbaráttunnar. John og Ellen systir hans bjuggu í nágrenni við fjölskyldu Yeats. Þau áttu líkast til stærsta safn írskra fræða í einkaeign. Heimili þeirra var eins konar Unu­ hús Dyflinnar, þar sem ungskáld og upprennandi menningarvitar hittust reglulega til skrafs, ráðagerða og nokkurs gleðskapar. Þarna hittust þeir sem seinna urðu í fararbroddi hinnar gelísku endurreisnar. Það lék dýrðarljómi um hinn gamla byltingarmann og ungmennin gleyptu í sig hvert hans orð. Í huga Yeats var O’Leary holdgerfingur hins forna, rómantíska Írlands, ósnortnu af enskættaðri efnis­ og gróðahyggju. Seinna orti Yeats: „Romantic Ireland is dead and gone, / It’s with O’Leary in the grave.“ (September 1913 í Responsibilities 1914.) Það var fyrir atbeina O’Learys sem skáldskapur Yeats breyttist. Yeats gerði viðhorf O’Learys að sínum og hóf að boða þau öðrum: „Lang flest þeirra írsku skálda sem byggt hafa á öðru en írsku efni og írskri hugsun falla fljótt í gleymskunar dá. Allar merkar bókmenntir eiga sér þjóðerni, allar merkar þjóðir eiga bókmenntir.“30 Fyrir tilstilli og undir leiðsögn Johns O’Leary fór Yeats að leita sér írsks efnis, sem skipta má í þrjá flokka. Í fyrsta lagi voru það ljóð þjóðlegra írskra enskumælandi skálda síðustu áratuga. Þau voru þjóðleg á þann hátt að þau boðuðu írska þjóðernisstefnu, ellegar á þann hátt að þau sóttu sér efnivið í írskar fornsögur, þjóðsögur og skáldskap munnlegrar geymdar. Þetta tvennt fór stundum saman, en alls ekki alltaf. Mörg þjóðleg skáld og frumkvöðlar írskra þjóðfræða voru angló­ írskir menntamenn og flestir hlynntir breskum yfirráðum. Í ljóði sínu To Ireland in the Coming Times (The Rose 1893) ávarpar Yeats Íra um alla fram­ tíð og útlistar hvernig skáld hann vilji vera og teljast. Hann byrjar á því að skipa sér í flokk þeirra þjóðlegu skálda sem ort höfðu um og fyrir írska þjóð: Know that I would accounted be True brother of a company That sang, to sweeten Ireland’s wrong, Ballad and story, rann and song; En jafnframt áskilur hann sér rétt til þess að beita annarri nálgun og dýpri hugsun á sviði eilífðarmála og dulhyggju í leit að hinum stóra sannleika og hinni eilífu fegurð. Bæði Yeats og O’Leary gerðu sér grein fyrir að hina þjóð­ legu írsku ljóðagerð þyrfti mikið að þróa og fága, og að hversu góð sem sum skáld hennar væru, teldust þau engin heimsskáld á borð við Byron og Shelley. Í alþýðlegum fyrirlestri 1886 sagði O’Leary: „Það er hluti af margháttaðri ógæfu Írlands að þjóðin hefur enn ekki getið af sér stórbrotið ljóðskáld.“31 Kannski grunaði hann þá þegar að með sínum unga lærisveini stæði þetta til bóta. Í öðru lagi fór Yeats að kynna sér írskar fornsögur, sem skrifaðar voru á 11. öld og fram á 15. öld.32 Yeats kunni ekkert í írsku, hvað þá fornírsku, en studdist við endursagnir á ensku. Hann hóf að yrkja kviðu um fornkappann
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.