Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2015, Side 56

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2015, Side 56
A n d r é s E i r í k s s o n 56 TMM 2015 · 4 frætt Yeats á ensku, en stundum þurfti einhver að túlka. Heimildarmenn eru ekki nefndir með nafni, alltént ekki réttu, en gjarnan sagðir vera einfaldlega gömul kona eða gamall maður. Fáir kaflar í The Celtic Twilight mynda heilsteypta sögu með upphafi, miðju og endi. Í flestum er mörgum stuttum atvikasögum skeytt saman svo að þær myndi eitt ákveðið þema, oftast innan einnar sýslu. Það er Yeats sem flokkar stuttsögurnar og tengir með nokkrum útlistunum. Í bókinni koma fyrir álfar, draugar og það mannfólk sem kalla má kynlega kvisti. Hvað varðar Sligo er álfatrú þó helsta þemað og það sem við skulum staldra við. Yeats sagði nær alla á vesturströnd Írlands, jafnvel opinbera embættis­ menn, trúa á álfa, þótt sumir efuðust um flest annað, líkt og drauga og helvíti. Eins og maður nokkur „með tattú af móhíkana á handleggnum“ sagði við Yeats: „Þeir eru rökréttir.“46 Álfarnir sem Yeats fjallar um eru þeir sem hann flokkaði sem hópálfa eða félagslynda álfa („trooping fairies“, „sociable fairies“), sem búa í stórum álfasamfélögum og líkjast mönnum, en eru þó margfalt fegurri og glæsilegri og geta birst í hvaða stærð sem er. Auk þeirra eru ýmsar gerðir álfa sem fara einförum, oftast litlir og skringilegir. Þeir birtast fólki gjarnan sem fyrirboðar, oftast illir.47 Hvað varðar uppruna hópálfa taldi Yeats tvær kenningar líklegastar. Hugsanlega væru þeir fallnir englar, ekki nógu góðir fyrir Himnaríki, ekki nógu vondir fyrir Helvíti. Ellegar væru þetta hinir fornu heiðnu guðir Kelta sem kristnin rak í jörðu niður, ofan í vötn eða í eyjar á hafi úti.48 Yeats virðist frekar hallast að seinni kenningunni, enda eru í verkum hans oft óglögg skil milli álfa, fornkappa og goða. Yeats þekkti margar álfabyggðir, enda þær að finna „víða á Rosses og í sveitum Kólumkilla.“ Sú stærsta og glæstasta er fjallið Ben Bulben sem álf­ arnir streyma úr á hverri nóttu, eins og áður er getið. Norður af Rosses Point er hellir, nú grafinn og gleymdur, sem liggur inn í stóra álfaborg neðanjarðar langt inni í landi.49 Hart Lake (Hjartavatn), suður af Sligobæ, er varla nema tjörn, en full af álfum.50 Sligobúar forðast að tala um álfa þar sem þeir gætu heyrt og sýna þeim þá virðingu að kalla þá „góða fólkið“ eða „hefðarfólkið“ („the good people“, „the gentle people“, „the gentry“). Þó geta álfarnir trauðla talist góðir, né heldur illir, enda standa þeir guðlausir utan við mannlega siðfræði. En oftar en ekki gera þeir mönnum miska, einkum með því að ræna fólki og búpeningi. Þeir ræna bara fallegu fólki og helst ungabörnum og nýgiftum ungum konum. Fyrir ungabörn setja þeir umskipting, en eldri börn og full­ orðnir einfaldlega hverfa eða deyja að því er mönnum virðist. Stundum skilja þeir þó eftir viðarbút, útskorinn í líki þess sem rænt er. Það gerist einstaka sinnum að fólki er skilað aftur, yfirleitt eftir sjö ár. „Tvær eða þrjár mílur frá Hjartavatni býr gömul kona sem rænt var þegar hún var ung. Eftir sjö ár var henni af einhverjum ástæðum skilað aftur, en þá var hún tálaus, hún hafði dansað af sér tærnar.“51 Mannrán álfa í Sligo er efni leikrits Yeats frá 1894, The Land of Heart’s
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.